Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1996, Síða 34

Læknablaðið - 15.09.1996, Síða 34
644 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 eða upp í 45-60 mínútur er aðeins hægt að nota við opnar aðgerðir. Niðurstöður Almenttt: Alls gengust 26 sjúklingar, 12 drengir og 14 stúlkur, undir 28 hjartaskurðaðgerðir á þessu sex ára rannsóknartímabili eða að með- altali fjórar aðgerðir á ári. Aldur sjúklinganna við aðgerð var frá þriggja daga til 18 ára (mið- tala (median) 10 mánuðir). Sjúkdómsgreining- ar þessara einstaklinga koma fram í töflum Ia og b. Opnar hjartaskurðaðgerðir voru átta en lokaðar aðgerðir voru 20. Tegundir aðgerða koma fram í töflu la svo og fjöldi sem gekkst undir hverja aðgerð ásamt aldri þeirra. Af þessum aðgerðum voru 16 skipulagðar en 12 bráðar eða nokkuð bráðar. Fimm aðgerðir voru tímabundnar aðgerðir en 23 aðgerðir end- anleg leiðrétting á hjartagallanum. Sjúkralega: Lengd sjúkrahúsdvalar var sjö til 96 dagar (meðaltal 10 dagar). Lega á gjör- gæsludeild var frá einum til 96 daga (meðaltal Number of patients 90 91 92 93 94 95 Year of operation Fig. 1. Number of patients undergoing cardiac surgery for congenital heart defects in lceland 1990-1995. Number of patients 30 ■ Operations abroad □ In lceland 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 Year of operation Fig. 2. Number of patients undergoing cardiac surgery for congenital lieart defects in lceland and abroad 1983-1995. tveir dagar). Tíu sjúklingar lágu á nýburagjör- gæslu (vökudeild). Allir sjúklingarnir nema tveir voru útskrifaðir í góðu ásigkomulagi að lokinni aðgerð. Fylgikvillar: Fjórir sjúklingar sem gengust undir aðgerð vegna ósæðarþrengsla áttu við tímabunda blóðþrýstingshækkun að stríða. Einn sjúklingur fékk lungnabólgu þremur dög- um eftir aðgerð. Einn sjúklingur fékk sjaldgæf- an fylgikvilla, söfnun á sogæðavessa í gollurs- hús (chylous pericaridal effusion). Var gerð gollurhúsástunga og vökvanum hleypt út. Einn sjúklingur fékk söfnun á sogæðavessa í fleiðru- hol (chylothorax) og gera þurfti tvær aðgerðir til að stöðva vessalekann. Dánartölur: Einn sjúklingur úr þessum hópi lést innan 30 daga frá aðgerð og var það ung- barn með flókinn hjartagalla, sem gekkst undir tvær tímabundnar aðgerðir sem hvorug beind- ist að megingalla, en sjúklingurinn lést tveimur dögum eftir seinni aðgerðina. Þrjátíu daga dánartölur eru því 3,8%. Annar sjúklingur lést þremur mánuðum eftir hjartaskurðaðgerð. Hann lést vegna hjartabilunar sem tengdist ekki aðgerðinni sem slíkri. Eftirlit þessara sjúklinga stendur frá þremur mánuðum til fimm og hálfs árs (miðtala 2,5 ár). Þrír sjúklinganna sem gengust undir tíma- bundnar aðgerðir hafa farið í frekari opnar hjartaskurðaðgerðir erlendis og hefur vegnað vel. Þeir sjúklingar sem gengust undir leiðrétt- ingaraðgerðir eru allir við góða heilsu og hefur vegnað vel. Þrír sjúklinganna sem gengust undir aðgerð vegna ósæðarþrengsla sem nýburar, fengu endurþrengingu á aðgerðarsvæðinu. Öll þrjú hafa gengist undir útvíkkun á ósæð í hjarta- þræðingu með góðurn árangri. Hjartaadgerðir á börnum erlendis: A þeim sex árurn sem rannsóknin nær til fóru samtals 116 börn til aðgerðar erlendis eða að meðaltali 19 börn á ári. Frá árinu 1983 hafa að meðaltali 15 börn farið til aðgerðar erlendis á hverju ári og þeim farið fjölgandi undanfarin ár eins og fram kemur á mynd 1. Þótt nokkrar sveiflur séu í fjöldanum eins og sést á mynd 2 (upplýsingar frá Siglinganefnd TR). Umræða Hjartaskurðaðgerðir á unglingum og full- orðnum með meðfædda hjartagalla hafa verið framkvæmdar hérlendis stopult frá árinu 1977. Þetta voru allt lokaðar hjartaaðgerðir svo sem

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.