Læknablaðið - 15.09.1996, Qupperneq 48
654
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
skorðaðist betur. Seinni fóturinn er enn í dag,
eftir aldafjórðungsnotkun, mjög heillegur.
Einn galli var þó ekki upprættur en hann
varðar staðsetningu spelkuliðamóta miðað við
hnélið. Til að spelkuliðamótin nýtist sem best
þurfa þau að liggja á hugsaðri línu eða öxli,
sem hnéð snýst um. Hjálpartækjasmiðir gera
greinarmun á öxli um hnéð, hnéöxli, og öxli
um spelkuliðamót, spelkuöxli (sjá B1-B2 á
mynd 7). Við spelkugerð þarf að tryggja að
öxlarnir falli saman. Ef þessa er ekki gætt rekst
gervifóturinn í stúfinn í hnébeygju, snýst um
hann og þvingar hnéð, allt eftir afstöðu öxl-
anna hvors til annars. Þannig var þessu farið
hjá Jóni. Liðamótin voru mishá og of aftarlega
er leiddi til árekstrar milli spelku og ganglims.
Samkvæmt munnlegum lýsingum samtíma-
manna voru læri og leggur Jóns mjög holdrýrir.
Gervifóturinn mun hafa sært stúfinn sem var
oft bólginn og blæðandi. Sérstaklega mun hafa
blætt fremst úr stúfendanum sem bendir til
ónógrar mjúkvefjaþekju yfir honum eða ert-
ingar frá tréfætinum. Geta má nærri að sárt
hafi verið fyrir Jón að ganga á tréfætinum,
enda segja kunnugir að hann hafi oft verið
kvalinn en harkað af sér. Hann mun hafa eytt
drjúgum tíma — á annan klukkutíma — að
vefja stúfinn með mörgum lögum af ull, baðrn-
ull, þeli, vaskaskinni, seglstriga og síðar nank-
inefni áður en hann fór í fótinn. I eldri fætinum
hefur hann sennilega vafið reifaðan stúfinn
fastan við spelkuna með bindi, en í þeim yngri
hefur hann smeygt honum ofaní stuðnings-
hulsu úr leðri og haft heldur betri stuðning.
Stúfendinn virðist ekki hafa legið mjög þungt á
tréleggjunum því þar finnast engin merki um
slit eða núning. Þetta bendir til þess að líkams-
þunginn hafi fremur hvílt á lærisfestingu, en á
tréleggnum. Stúfurinn hefur sennilega verið
hálflaus í göngu og því þörf á frekari stuðningi
nreð hækju og staf. Jón gekk haltur en þótti
bera fótinn vel og vera duglegur og fimur að
ganga jafnt í bröttum hlíðum fjalla, sem í fjör-
um (17).
Jón tók fötlun sinni vel og lét hana ekki
hindra sig í að sjá sér farborða. Hann var um
tíma vinnumaður á ýmsum bæjum en frá 1920 í
um fjörutíu ár húskarl á Litlanesi (18) í Austur-
Barðastrandasýslu þar sem hann hjálpaði
bóndanum við bústörfin, en hafði samhliða að-
stöðu til eigin búskapar með sérstakan tún-
blett, útihús og 20 kindur (9). Þá hafði hann
leyfi til að vinna á öðrum bæjuin fyrir kaupi og
var eftirsóttur fyrir sakir dugnaðar. Hann var
með afbrigðum ósérhlífinn og verklaginn til
allrar vinnu hvort sem það var heyskapur,
smalaferðir, vegghleðsla, torfrista eða mótekja
(5, 19).
Umræða
Safnmunir eru fulltrúar atburða og örlaga.
Fábrotnir og hrörlegir tréfætur Jóns húskarls
varpa ljósi á lífsbaráttu hans og hjálp samferð-
armanna hans. Jafnframt eru þeir hluti af sögu
bæklunarlækninga á íslandi. Smiðirnir hafa
líklegast ekki haft fyrirmynd að smíði sinni þar
sem gervifætur voru fátíðir á íslandi á þessum
tíma, en byggt á eigin reynslu og hyggjuviti.
Hugsanlegt er að þeir hafi séð staurfót með
hnéliðamótum á erlendum manni sem komið
hefur til landsins eða frétt af slíkum fæti með
öðrum hætti, en fjöldaframleiðsla gervifóta
hófst fyrir síðustu aldamót á meginlandinu. í
söluskrám hjálpartækjaframleiðanda í Vínar-
borg frá 1879 (20), Stokkhólmi 1901 (21) og
Múnchen 1906 (22) má sjá myndir af tréfótum
með hnéliðamót, sem líkjast fæti Jóns, svo ljóst
er að útbreiðsla þeirra hefur verið töluverð.
Auk einfaldra tréfóta er þar einnig boðið upp á
flóknari fætur með fótstykki og liðamótum í
tábergi, ökkla og hné. í Englandi, Frakklandi
og Ameríku varð svonefndur „Anglesey-fót-
ur“ mjög vinsæll á nítjándu öld. Hann var fyrst
smíðaður af Pott árið 1816 en tók síðan nokkr-
um breytingum. Hann var eins og ganglimur í
224.
Fig. 10. Wooden leg from a cata-
logue in Vienna 1879 (20).