Læknablaðið - 15.09.1996, Side 61
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
665
Lyfjamál 52
Frá heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu og landlækni
Gæða- og kostnaðarstýr-
ing lyfjaávísanna
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra hefur samþykkt
að kanna nánar þá leið að koma
á fót nokkurs konar gæða- og
kostnaðarstýringu á lyfjaávísan-
ir lækna. Slík vinna yrði unnin á
vegum Tryggingastofnunar rík-
isins í samvinnu við landlæknis-
embættið með svipuðum hætti
og gert hefur verið með góðum
árangri áNorður-írlandi, íDan-
mörku og víðar. Fengnir voru
ráðgjafar frá Norður-írlandi
vegna þessa verkefnis. Priggja
manna nefnd var skipuð, með
fulltrúum frá ráðuneyti, land-
lækni og Tryggingastofnun, til
að skipuleggja verkefnið.
Tilgangurinn með verkefninu
er sá að koma á framfæri óháðri
fræðslu til lækna með það mark-
mið að bæta lyfjaávísavenjur
þeirra þar sem þess er þörf,
sjúklingum og heilbrigðisyfir-
völdum til hagsbóta.
í samráði við landlæknisem-
bættið var ákveðið að gera
könnun á nokkrum heilsugæslu-
stöðvum til að sjá hvernig stað-
an væri með ávísanavenjur
lækna og hvaða árangri væri
hægt að ná. Sigurður Helgason,
heilsugæslulæknir var ráðinn til
þess að koma upplýsingum til
lækna og veita óháða fræðslu
um lyf. Hann hefur farið í heim-
sókn til Norður-írlands til þess
að kynna sér fyrirkomulag íra.
Sérfræðingar á vegum Iand-
læknis aðstoða Sigurð við verk-
ið ásamt lyfjafræðingi hjá
Tryggingastofnun. Þeir sér-
fræðingar sem veita stuðning
við þetta verkefni eru m.a.
Bjarni Þjóðleifsson, Guðmund-
ur Þorgeirsson og Haraldur
Briem. Ráðgert er að senda
læknum reglulega yfirlit yfir
lyfjaávísanir þeirra ásamt ýms-
um upplýsingum um lyf og lyfja-
meðferð. Sigurður hefur nú
þegar heimsótt nokkrar heilsu-
gæslustöðvar og farið yfir lyfja-
ávísanir og rætt um niðurstöður
könnunarinnar á fundum með
læknum stöðvanna. Læknar
hafa gert góðan róm að þessu
framtaki og undirtektir hafa alls
staðar verið jákvæðar.
Þetta starf er enn í mótun en
fyrirhugað er að skipuleggja
fleiri fundi á heilsugæslustöðv-
um, læknastofum og öðrum
heilbrigðisstofnunum og veita
læknum aðstoð við gerð lyfja-
lista (formulary) sem skynsam-
legt væri að nota að mestu leyti
við val á lyfjum á viðkomandi
stofnun. Svipaðar aðgerðir hafa
verið reyndar víða erlendis og
gefið góða raun þar sem þess
hefur verið gætt að hafa starf-
andi lækna með í ráðum um
skipulagningu og framkvæmd.
Þess vegna óskar ráðuneytið og
landlæknir eftir því að þeir
læknar sem áhuga hafa og vilja
taka þátt í þessu starfi eða óska
eftir aðstoð við gerð lyfjalista
snúi sér til Sigurðar Helgasonar
heilsugælulæknis eða Ólafar
Briem lyfjafræðings hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins.