Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.1996, Side 67

Læknablaðið - 15.09.1996, Side 67
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 671 Þriðja vísindaþing Félags íslenskra heimilislækna Akureyri 18.-20. október 1996 Á þinginu verða bæði frjálsir fyrirlestrar og spjaldþing. Kynntar verða rannsóknir og rannsóknaráætlanir sem tengjast heilsugæslu. Auk þess verða bæði inn- lendir og erlendir gestafyrirlestrar. Ágrip skal skrifa á A4-blað meé sama sniði og á fyrri þingum. Þar skal koma fram tilgangur rannsóknarinanr, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Ágripum skal skilað á disklingum ásamt einu útprenti til Emils L. Sigurðssonar, Heilsugæslustöðinni Sólvangi, 220 Hafnarfjörður fyrir 1. september. Ágripin verða birt í sérstöku blaði þingsins sem dreift er til allra lækna á íslandi. Þátttökugjald er krónur 8.000. Þingið verður sett kl. 17:00 föstudaginn 18. október. Pex farmiði Reykjavík-Akureyri kostar krónur 9.730, og eru þátttakendur hvattir til þess að panta far með góðum fyrirvara. Þingið er styrkt af Thorarensen Lyf ehf. Þátttaka tilkynnist Jóni Steinari Jónssyni, Heilsugæslustöðinni í Garðabæ, 210 Garðabær, fyrir 15. september. Vísindaþingsnefndin Emil L. Sigurðsson Jón Steinar Jónsson Þorgils Sigurðsson Læknastofur til leigu Til leigu læknastofur í læknastöðinni Álftamýri 5, Reykjavík. Stofurnar eru rúmgóðar og bjartar, skiptast í viðtals- og skoðunarherbergi alls 26 fm. Skurð- stofuaðstaða er í húsinu. Læknastöðin er á jarðhæð (gengið inn af götunni). Næg og góð bílastæði. Um er að ræða sanngjarna leigu í læknastöð með mikla framtíðarmöguleika. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 568 8868 alla virka daga frá kl. 09:00-17:00.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.