Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1997, Page 36

Læknablaðið - 15.01.1997, Page 36
spjaldið! Trinovunr — Reynslan tryggir gæðin TRINOVUM TÖFLUR; G 03 A A 05 R 0 Hver pakkning inniheldur 7 hvítar, 7 Ijósferskjulitar og 7 ferskjulitar töflur (7 grænar töflur). Hver hvít tafla inniheldur: Norethisteronum INN 0,5 mg, Ethinylestradiolum INN 35 míkróg. Hver Ijósferskjulit tafla inniheldur: Norethisteronum INN 0,75 mg, Ethinylestradiolum INN 35 míkróg. Hver ferskjulit tafla inniheldur: Norethisteronum INN 1 mg, Ethinylestradiolum INN 35 míkróg. (Hver græn tafla inniheldur: Lactosum 93,5 mg). Eiginleikar: Getnaöarvarnatöflur sem eru blanda af östrógeni og gestageni. Gestagenmagnið er aukiö smám saman. Lyfið telst til lágskammta getnaðarvarnataflna. Bæði efnin frásogast vel frá meltingarvegi og helmingunartími þeirra í blóði er 6-8 klst. Þau umbrotna í lifur og skiljast út með þvagi og saur. Ábendingar: Getnaðarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa það konum með æðabólgur í fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill-eða góðkynja sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tíðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Væoar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverkur, mígreni, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa í pilluhvíld. Varúð: Konum sem reykja er miklu hættara við alvarlegum aukaverkunum af notkun getnaðarvarnataflna en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbítúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífampícín geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga í blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Meðferð hefst á1. degi tíðablæðinga og er þá tekin ein tafla á dag í 21 dag, gert hlé i 7 daga og byrjað aftur á sama vikudegi og síðast. (Trinovum 28 skulu teknar samfleytt án þess að hlé sé gert á töflutöku, 7 síðustu töflurnar eru án virkra efna og eru grænar). Fyrst eru teknar 7 hvítar töflur, þá 7 Ijósferskjulitar töflur, 7 ferskjulitar töflur (loks 7 grænar töflur). Pakkningar og verð 1.maí.1996: 21 stk. x 3 (þynnupakkað) - kr. 1116 28 stk. x 3 (þynnupakkað) - kr. 1116. Skráning lyfsins er bundin því skilyrði, að leiðarvísir á íslensku fylgi hverri pakkningu með leiðbeiningum um notkun þess og varnaðarorð. Cilag

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.