Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1997, Side 12

Læknablaðið - 15.10.1997, Side 12
636 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 var það í höndum sama læknis allt tímabilið (JS). Allar upplýsingar voru fengnar úr sjúkra- skrám öldrunarlækningadeildarinnar. Fengnar voru upplýsingar um þá sem voru látnir hinn 1. desember 1996 og var því tími frá innritun eitt til 11 ár eða að meðaltali sex ár. Meðaltími frá upphafi sjúkdóms var 4,1 ár (1-10 ár). Upplýs- ingar um upphaf sjúkdóms voru fengnar frá aðstandendum. Upphaf sjúkdóms af þessu tagi er ætíð háð talsverðri óvissu, því byrjunin er hæg og misjafnt hversu vel aðstandendur taka eftir breytingunum. Þessa aðferð hafa margir rannsakendur notað (12-15), en einnig hefur verið miðað við tíma frá greiningu sjúkdóms (16-19). Tíminn frá upphafi einkenna til grein- ingar sjúkdómsins er afar misjafn. Reiknaðar voru út beinar dánarlíkur (crude survival) og var notast við aðferð Kaplan Meiers (20). At- hugað var einnig hverjar dánarlíkur voru mið- að við sambærilega hópa í íslensku þjóðfélagi með tilliti til fæðingarárs, kyns og aldurs (relative survival). Notast var við lifunarforrit frá Tölvinnustofu og Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands. Niðurstöður Af 167 sjúklingum sem fengið höfðu ein- hverja af þeim þremur greiningum sem hér er fjallað um höfðu 97 (58,1%) látist 1. desember 1996. Á myndum 1-3 má sjá lifunarkúrfur þess- ara einstaklinga samkvæmt aðferð Kaplan- Meiers, flokkaða eftir sjúkdómaflokkunum 290,0, 290,1,290,4 samkvæmt ICD-9. í töflu II má sjá lífshorfur þeirra miðað við lífshorfur jafnaldra íslendinga. í töflu III má sjá að fyrstu árin er lítill munur milli sjúklinga og viðmiðun- arhóps en síðan dregur í sundur og eftir níu ár (konur) og átta ár (karlar) er munurinn orðinn tölfræðilega marktækur (p<0,05). Umræöa Ýmsar faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt að klínísk greining á heilabilun hefur veru- leg áhrif til styttingar lífshorfa og má nefna rannsókn Molsa í Finnlandi (12) sem fann að sex ára lifun Alzheimers sjúklinga var 21,2% miðað við væntingar um 48,5% miðað við sama aldur. Samsvarandi tala fyrir sjúklinga með blóðrásartruflanir var 11,9% eftir sex ár miðað við 45,2% væntanlega lifun. Katzman og samstarfsmenn (17) gerðu faraldsfræðilega rannsókn á heilabilun í Shanghai í Kína og endurtóku athugunina fimm árum síðar. Þeir Fig. 1. Survival of patients with SDAT (290.0). Fig. 2. Survival of patients with PDAT (290.1). Cumulative survival Fig. 3. Survival of patients with MID (290.4).

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.