Læknablaðið - 15.10.1997, Side 19
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
643
allir íbúarnir í þjónusturými voru þátttakendur
í eigin mati, en aðeins helmingur fbúa í hjúkr-
unarrými.
Samkvæmt gögnunum voru nær allir skráðir
sjálfráða, enda þótt um það bil helmingurinn
hefði einhvers konar skerðingu á vitrænni
getu, fleiri í hjúkrunarrými en færri í þjónustu-
rými. Einungis 15% íbúa í hjúkrunarrými voru
taldir fullkomlega sjálfstæðir í ákvörðunum er
snertu daglegar athafnir.
Um fjórðungur íbúa hafði umtalsverða
heyrnarskerðingu. Allflestir gátu gert sig skilj-
anlega með talmáli. Sjónskerðing var stórt
vandamál þar sem þriðjungur íbúa í hjúkrunar-
rými var með verulega eða mikið skerta sjón og
annar þriðjungur með skerta sjón. Langflestir
notuðu hjálpartæki vegna sjónskerðingar.
Helstu sjúkdómsgreiningar reyndust heila-
bilun, gigt, beinþynning, háþrýstingur, krans-
æðasjúkdómur, þunglyndi, heilaáföll, kvíði,
ský á auga og gláka. Helstu heilsufarskvartanir
íbúanna voru hins vegar verkir, sérlega í lið-
um, svimi, bjúgur, hægðatregða og mæði.
Meðalfjöldi lyfja var 7,0 á höfuðborgarsvæðinu
en 6,4 á Akureyri, sú tala nær einnig til víta-
mína, kalks og húðlyfja. Fjórðungur tók geð-
deyfðarlyf. Á höfuðborgarsvæðinu tóku 61,8%
róandi lyf og svefnlyf, en 53,8% á Akureyri.
Sjúkraþjálfun er algengasta sérhæfða þjálfunin
sem aldraðir fá á öldrunarstofnunum. Reglu-
lega er fylgst með heilsufari íbúanna og kemur
það meðal annars fram í fjölda rannsókna sem
framkvæmdar eru.
íbúar í hjúkrunarrými búa við mikla færni-
skerðingu hvað athafnir daglegs lífs varðar og
þurfa mikla aðstoð. Einstaklingar í þjónustu-
rými eru hins vegar nokkuð sjálfbjarga í at-
höfnum daglegs lífs. Um helmingur íbúa í
hjúkrunarrými líður fyrir lausheldni á þvagi.
Um eða yfir 80% allra íbúa á öldrunarstofn-
unum hafa gervitennur. Um þriðjungur íbúa í
hjúkrunarrými á erfitt með að tyggja. Meðal-
þyngd íbúa í hjúkrunarrými er lægri en íbúa í
þjónusturými. Hátt hlutfall íbúanna fær fyrir-
byggjandi húðmeðferð gegn sáramyndun og
liggur á sérstökum rúmdýnum.
Þrír fjórðu íbúanna í þjónusturými á auðvelt
með samskipti við aðra, en liðlega 40% þeirra
sem eru í hjúkrunarrými. Liðlega fimmtungur
allra íbúa á öldrunarstofnunum tjáir sig um
andlega vanlíðan. Helsta tómstundagamanið
er fólgið í því að hlusta á útvarp og horfa á
sjónvarp. Af heilsufarsástæðum geta einungis
um 40% íbúa í hjúkrunarrými nýtt sér ljós-
vakamiðla.
Nærmynd þessi lýsir miklum heilsufars-
vanda og færnitapi þeirra sem búa í hjúkrunar-
rými. Þeir sem búa í þjónusturými eru alla
jafnan sjálfbjarga, enda hafa þeir oftast vistast
af félagslegum ástæðum ásamt með andlegri
vanlíðan. Samanburður innan og milli stofn-
ana, svo og alþjóðlegur samanburður mun
verða lærdómsríkur og sýna hvar íslendingar
standa vel og hvar þeir geti bætt sig. Dæmi um
spurningar sem vakna eru: Hvaða áhætta er
fólgin í því að fólk með vitræna skerðingu sé
talið sjálfráða í fjármálum? Ábendingu um
þetta efni hefur verið komið til dómsmálaráðu-
neytisins. Er svefnlyfjanotkun á íslandi óhóf-
leg? Hvað með notkun á geðdeyfðarlyfjum?
Eru Islendingar betri en aðrar þjóðir í því að
greina og meðhöndla þunglyndi meðal aldr-
aðra? Þannig mætti lengi halda áfram.
Alþjóðlegt samstarf, framtíðarsýn
RAI mælitækið hefur verið tekið upp víða
um heim og á árinu 1995 var ákveðið að allir
íbúar öldrunarstofnana á íslandi skyldu metnir
samkvæmt aðferðarfræði þess. Tölvunefnd
hefur samþykkt verkefnið og mun trúnaðar-
maður hennar útdeila sérstökum dulkennitöl-
um til allra þeirra sem vistast á öldrunarstofn-
anir, þannig að fyllstu persónuleyndar verði
gætt við úrvinnslu gagna sem safnast. íslend-
ingar sem vistast á elli- og hjúkrunarheimilum
munu því njóta þeirrar framþróunar sem hlýst
af notkun mælitækisins. Fagaðilar munu greina
áhættuþætti hrörnunar og geta leitað leiða til
að fyrirbyggja slíka hrörnun. Gæðavísarnir
verða mikilvægir og möguleiki verður á því að
greiða fyrir hjúkrunarheimilisþjónustu eftir
þyngdarstuðlum hvers heimilis fyrir sig og
tryggja þannig sjúklingum með miklar hjúkr-
unarþarfir aðgang að hjúkrunarheimilum til
jafns við þá sem þarfnast minni umönnunar.
Islendingar eru í alþjóðlegu samstarfi um
notkun RAI mælitækisins. Þjóðir frá öllum
heimsálfum eru þátttakendur og nefnist al-
þjóðahópurinn Inter-RAI. Innan Evrópu er
talað um Euro-RAI og á Norðurlöndum Nord-
RAI. Alþjóðlega kallast íslenski hópurinn Ice-
RAI. Reynslan af mælitækinu á öldrunarstofn-
unum þykir svo góð að nú er verið að hanna
sambærilegt tæki fyrir heimahjúkrun aldraðra
og standa vonir til þess að forprófa það mæli-
tæki í Reykjavík á haustdögum 1997. Þá er