Læknablaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 76
692
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Lyfjamál 59
Frá heilbrigðis- og tryggingamáia-
ráðuneytinu og iandlækni
Lyfjaval
Bókin Lyfjaval kom út í júní
síðastliðnum. Hún er afrakstur
af samstarfsverkefni Félags ís-
lenskra heimilislækna (FÍH),
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins, landlæknisem-
bættisins og Tryggingastofnun-
ar ríkisins (TR). Verkefnið var
unnið í starfshópum lækna vet-
urinn 1996-97 og komu yfir 90
manns að því. Það verður að
teljast góð þátttaka, vinnu-
brögð voru fagleg, árangur góð-
ur og samstarfið farsælt.
Nú í vetur er ætlunin að halda
verkinu áfram. Á fræðslufund-
um FIH verður fjallað um ein-
staka kafla bókarinnar og þeir
teknir til endurskoðunar. En
einnig verður unnið að nýjum
verkefnum. Sigurður Helgason
heilsugæslulæknir skrifaði grein
í fréttabréf FÍH í ágúst (4. tbl.)
þar sem hann getur ríflega 30
nýrra verkefna sem vert væri að
huga að. Læknar eru eindregið
hvattir til að sýna áhuga sinn í
verki og skrá sig til þátttöku í
vinnuhópum. Það má gera með
því að hafa samband við Sigurð
eða Ólöfu í TR (sími: 560 4494).
Hugmyndin um samræmdar
vinnureglur og lyfjaval er hvar-
vetna að ryðja sér til rúms.
Sjúkrahúsin hafa útbúið lyfja-
lista og sérfræðingar eru hvattir
til að koma sér saman um lyfja-
val. Áhyggjur yfirvalda vegna
sífellt aukins lyfjakostnaðar
verða til þess að aðhald er hert.
Þetta er að gerast um allan
heim. Lyfjaiðnaðurinn dregur
síst úr áherslu á markaðssetn-
ingu. Læknar þurfa því að taka
höndum saman og standa vörð
um faglega þekkingu til að geta
veitt bestu, en jafnframt hag-
kvæmustu meðferð hverju
sinni. Rannsóknir hafa sýnt að
lyfjalistar sem heimilislæknar
vinna í samvinnu við aðra sér-
fræðinga hafa reynst vel til að ná
þessu markmiði.
Lyfjaval var sent öllum
heilsugæslulæknum og sjálfstætt
starfandi heimilislæknum á
landinu auk annarra sérfræð-
inga sem tóku þátt í verkefninu.
Einnig hafa verið send eintök í
allar lyfjabúðir.
Bókina má nálgast hjá TR.
Sérlyfjaskrá 1997
Skráin kom út í apríl síðast-
liðnum. Bókasala stúdenta hef-
ur tekið að sér dreifingu bókar-
innar og fæst hún í versluninni
og er einnig send í póstkröfu.
Hætt hefur verið við útgáfu við-
auka Sérlyfjaskrár. Lyfjanefnd
ríkisins gefur nú út fréttabréf
sem kynnir allar nýskráningar,
afskráningar og aðrar breyting-
ar sem verða á Sérlyfjaskrá fram
til næstu útgáfu. 1. tbl. 1. árg.
kom út í júlí síðastliðnum og hið
næsta er væntanlegt í október.
Tekið er við áskriftum að frétta-
bréfinu hjá Lyfjanefnd ríkisins í
síma 561 2111 eða á netfangi:
rannveig@skyrr.is
Áskriftargjald er 1.200 kr. á ári.
Notkun Iyfja á íslandi
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið gefur nú í októ-
ber út ritið Notkun lyfja á ís-
landi 1990-1996 sem inniheldur
yfirlitstöflur, línu- og súlurit um
lyfjanotkun bæði í magni dag-
skammta og verðmæti. Tölurn-
ar eru birtar niður á þriðja stig í
ATC flokkunarkerfinu. Einnig
kemur fram fróðlegur saman-
burður við Norðurlönd á árinu
1995.