Læknablaðið - 15.03.1998, Page 73
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
249
Samráð landlæknis
í Læknablaðinu í febrúar síð-
astliðnum birtist pistill frá land-
læknisembættinu um greiningu
og meðferð hryggvandamála
með taugarótareinkennum,
sem stílaður var sérstaklega til
heimilis- og heilsugæslulækna. í
þessum pistli, sem sagður er eiga
uppruna sinn á samráðsfundi sjö
sérgreinalækna á vegum land-
læknis, eru heimilislæknum
lagðar línurnar um hvernig þeir
eigi að greina og meðhöndla of-
angreint vandamál. Það er æði
margt sem ég hef við þennan
pistil að athuga. Hér er um að
ræða nokkurs konar verklags-
reglur (guidelines), sem ákveðn-
ar voru á samráðsfundi nokkurra
sérgreinalækna með landlækni
eins og fram kemur neðanmáls í
pistlinum.
Samráðið er á þann veg að
heimilislæknar koma þar hvergi
nærri.
Heimilislæknar hafa ítrekað í
mörg ár bent landlækni á að þeir
séu óhressir með að hann boði til
samráðsfunda og stofni samráðs-
nefndir sem fjalla um starf heim-
ilislækna, án þess að heimilis-
læknar komi þar nálægt. I hvert
skipti sem landlækni hefur verið
bent á þetta hefur hann haft góð
orð um að gera betur næst, en
svo virðist í raun vera að land-
lækni sé fyrirmunað að skilja
þessa umkvörtun heimilislækna
eða þá að hann líti á okkur sem
undirmálsfólk í hópi lækna, sem
ekkert vitrænt hafi fram að færa
og því þeim mun mikilvægara að
fræða okkur með góðu eða illu.
Landlækni á þó að vera ljóst
að Félag íslenskra heimilislækna
hefur unnið markvisst gæðastarf
á mörgum sviðum á annan ára-
tug, enda slíkt verið rækilega
kynnt fyrir honum og öðrum.
Undirritaður hefur verið svo
heppinn að fá að vinna að mörg-
um þessara mála fyrir heimilis-
lækna. Meðal annars hef ég unn-
ið í samevrópskum vinnuhópi
heimilislækna (EQuiP) í tæp sjö
ár. Þar hefur verið fjallað mikið
um verklagsreglur. Eitt af grund-
vallaratriðum varðandi verklags-
reglur er að ef koma á þeim á
framfæri og fá hljómgrunn
þeirra sem þær beinast að, þá
þarf að gæta þess að verklags-
reglurnar séu samdar af þessum
aðilum eða í náinni samvinnu
við þá. Til eru mörg dæmi frá ná-
grannalöndunum, til dæmis frá
Hollandi, þar sem heimilislækn-
ar semja sjálfir verklagsreglur og
byggja þær þá á faglegri úttekt
og vísindalegum rannsóknum.
Oftar en ekki er leitað til sér-
greinalækna, þegar við á. Verk-
lagsreglur um sama efni geta þó
litið öðruvísi út þegar ólíkir hóp-
ar fjalla um þær. Aherslur eru
ólíkar milli sérgreina og ekki
alltaf svo að til sé einn stór sann-
leikur í hverju tilviki. Þegar ólík-
ar sérgreinar reyna að sammæl-
ast um eina nálgun varðandi
verklagsreglur þá er talað um
samráð (consensus), en þá er
leitast við að hafa samráðið sem
víðtækast og þess gætt að ekki
séu skildir útundan hópar sem
hafa með vandamálið að gera í
daglegu starfi.
Það sem reynt er að forðast
varðandi verklagsreglur er að
neyða upp á fagaðila einhverju
sem þeir hafa ekki átt neinn þátt
í að móta, eða fengið að tjá sig
um. Það hefur því miður gerst í
þessu tilviki. Verklagsreglum
verður ekki þröngvað upp á
neinn.
Eg tel að samning og birting
verklagsreglna um hryggvanda-
mál, sem er kveikja þessara
skrifa brjóti gróflega þau grund-
vallaratriði sem vísað er til hér
að ofan. Áður en lengra er hald-
ið þá vil ég taka fram að ég er
ekki að ásaka kollegana sem
tóku að sér að semja verklags-
reglurnar og hafa eflaust gert það
í góðri trú og af bestu samvisku.
Hins vegar finnst mér einkenni-
legt að verklagsreglunum skuli
ekki fylgja neinn rökstuðningur
hvorki faglegur né vísindalegur,
né nokkrar skýringar á hvers
vegna landlæknir telur ástæðu til
að semja þessar reglur og birta
þær heimilislæknum sérstaklega
í Læknablaðinu. Það er ákaflega
sérkennilegt að verklagsreglurn-
ar skuli einungis beinast að ein-
um hópi lækna því fjölmargir
læknar úr sérgreinum, sem ekki
sátu í samráðsnefndinni, eru að
greina og meðhöndla sjúklinga
með bakvandamál. Rétt er að
minna landlækni og heilbrigðis-
yfirvöld á í þessu sambandi að í
um 50% tilvika, þar sem sjúk-
lingur hefur vandamál sem
heimilislæknir getur sinnt, þá er
þessum vandamálum sinnt af
sérgreinalæknum. Líkur eru á að
svipað eigi við um bakvandamál.
í ljósi þessa er mér fyrirmunað