Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 4
föstudagur 6. júlí 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Sjúkraflutningamaðurinn Kristján Guðmundsson vill fjölga sjúkraflutningamönnum
í Snæfellsbæ og koma í veg fyrir að þeir fari einir í útköll. Hann segir þær aðstæður geta
orðið lífshættulegar fyrir hina slösuðu. Landlæknir gaf út tilmæli um að heilsugæslu-
stöðvar þyrftu að fara eftir evrópskum stöðlum um sjúkraflutninga.
„Þessar aðstæður geta haft lífs-
hættulegar afleiðingar,“ segir Kristj-
án Guðmundsson, sjúkraflutninga-
maður í Ólafsvík en hann gagnrýnir
ráðamenn fyrir að hafa aðeins einn
sjúkraflutningamann á vakt í einu.
Samkvæmt evrópskum stöðlum eiga
að vera tveir sjúkraflutningamenn
þegar slasaður einstaklingur er
ferjaður. Landlæknisembættið hefur
sent tilmæli til Heilsugæslustöðvar-
innar á Ólafsvík sem og á fleiri staði.
Formaður Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna, Vern-
harð Guðnason, segir að upp hafi
komið skelfilegar aðstæður vegna
manneklunnar. Framkvæmdarstjóri
Heilsugæslunnar á Ólafsvík segir fé
ekki fylgja tilmælum.
Löng barátta
„Við höfum barist lengi fyrir því
að fjölga mönnum,“ segir Kristján og
segir þá baráttu hafa tekið nokkur ár.
Hann segir landlækni vera hliðholl-
an sjúkraflutningamönnum en hann
sendi út tilmælin eftir að Landssam-
band slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna leitaði til hans. Aftur á móti
hafa tilmælin enga lagalega þýð-
ingu og því er heilsugæslunni og
heilbrigðisráðuneytinu ekki skylt að
fylgja því.
Kristján gagnrýnir stjórnvöld fyr-
ir að deila ekki nægu fé á heilsugæsl-
urnar á landsbyggðinni og bætir við
að á höfuðborgarsvæðinu myndi það
ekki líðast að sjúkraflutningamenn
sinntu sjúklingum einir síns liðs. Því
er ljóst að mikill þjónustumunur sé
á höfuðborgarsvæðinu annarsvegar
og hinsvegar landsbyggðinni.
Eins og rússnesk rúlletta
Að sögn Kristjáns er það aðeins
spurning um tíma hvenær muni fara
illa vegna manneklunnar. Hann líkir
ástandinu við rússneska rúllettu og
vonar að það þurfi ekki slys að koma
til svo einhverjar breytingar eigi sér
stað.
Í Ólafsvík eru tveir sjúkraflutn-
ingamenn. Þeir vinna ekki saman á
vöktum heldur eru þeir ávallt á bak-
vakt. Það þýðir að þeir geta ekki farið
í frí á sama tíma, ekki einu sinni yf-
irgefið bæinn. Þá er umdæmi Snæ-
fellsbæjar mjög umfangsmikið en
mesta vegalengd sem sjúkraflutn-
ingamaður þarf að fara innan um-
dæmisins er 60 kílómetrar.
Slæmar aðstæður
„Menn hafa lent í skelfilegum
aðstæðum vegna manneklu,“ seg-
ir Vernharð Guðnason formað-
ur Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutninamanna. Hann segir að
í stjórnsýslunni bendi hver á annan
vegna málsins og sambandið fái ekki
nógu skýr svör. Þá bendir hann á að
Snæfellsbær og Ólafsvík séu ekki eini
staðurinn þar sem sjúkraflutningum
er ábótavant. Hann segir það sama
upp á teningnum í Borgarnesi.
„Þetta er ekki ásættanlegt eins
og það er í dag,“ segir Vernharð sem
krefst breytinga.
Tilmælum fylgir ekki fé
„Við erum í stanslausri endur-
skoðun,“ segir Björg Bára Halldórs-
dóttir framkvæmdastjóri heilsu-
gæslustöðvarinnar á Ólafsvík. Hún
segir sjúkraflutningamenn aldrei
senda eina á vettvang heldur eru
læknar og hjúkrunarfræðingar send-
ir með þeim til aðstoðar. Aðspurð
segir hún alltaf þörf á öðrum manni
og segir það á stefnuskránni.
„Tilmælum fylgir ekki fé,“ seg-
ir Björg Bára um tilmæli landlækn-
is. Hún segir að stjórn heilsugæslu-
stöðvarinnar þurfi að ráðstafa fénu
á skynsaman hátt. Taka verður fé frá
öðrum til þess að búa til stöðu fyr-
ir sjúkraflutningamenn. Sjálf segir
hún að það sé hægt að laga allt og vill
komast að niðurstöðu í málinu.
Þá var fundað um málið í bæj-
arstjórn Snæfellsbæjar í október á
síðasta ári. Þar kynntu Kristján og
Vernharð aðstæður sjúkraflutninga-
manna. Enginn bókun lá fyrir í fund-
argerð.
vaLur GrETTiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Kristján Guðmundsson sjúkraflutn-
ingsmaður gagnrýnir manneklu á
sjúkraflutningamönnum í snæfellsbæ og
segir hana spurningu um líf og dauða.
stefna fólki í hættu
„Menn hafa lent í skelfilegum
aðstæðum vegna manneklu.“náttúruvernd
í kirkjum
Fundi allra biskupa lútersku
þjóðkirknanna á Norðurlöndum
lauk í gær með messu í Hall-
grímskirkju. Slíkir fundir eru
haldnir á þriggja ára fresti og
var síðast haldinn á Íslandi fyrir
15 árum. Steinunn Arnþrúð-
ur Björnsdóttir, verkefnastjóri
samkirkju- og upplýsingamála,
segir að náttúruvernd sé ofarlega
á baugi í kirkjustarfi á Norður-
löndunum. „Náttúran er sköpun
Guðs og lögð er áhersla á ábyrgð
mannsins á henni.“
Í ár tóku 39 biskupar þátt í
fundinum, þar af allir þrír bisk-
upar Íslands.
Dópaður
við stýri bíls
Erilsamt var hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu í
fyrri nótt. Einn ökumaður var
handtekinn grunaður um að
aka undir áhrifum eiturlyfja
upp úr miðnætti aðfaranótt
fimmtudags í Hafnafirði. Tvö
fíkniefnamál komu einnig
upp en ekki var lagt hald á
mikið magn af fíkniefnum.
Tveir ökumenn voru teknir
fyrir of hraðan akstur í mið-
borg Reykjavíkur, annar um
eitt leytið og hinn um fjögur
leytið.
smíða kofa
og kassabíla
Í góðviðrinu undanfarið hafa
krakkar víða um land keppst við
smíði kofa og kassabíla.
Öllum krökkum, 15 ára og
yngri, býðst nú að taka þátt í
sumarleik BYKO og veitir fyrir-
tækið tveimur heppnum meist-
arasmiðum fjölskylduferð í Tívol-
íið í Kaupmannahöfn.
Jón Haukur Baldvinsson,
markaðsstjóri BYKO, segir mark-
miðið að hvetja unga krakka til
að leika sér úti í sumar. „Leikur-
inn hefur fengið ótrúlega góðar
viðtökur um land allt, meðal
bæði barna og foreldra. Smíða-
pakkarnir og leiðbeiningarnar
hafa hreinlega runnið út und-
anfarið, eins og heitar lummur,“
segir Jón Haukur.
Misstu af
ofsaakstri
Lögreglan á Suðurnesjum
fékk tilkynningu í fyrrakvöld um
að nokkrir bifhjólamenn æku um
á ofsahraða á Reykjanesbraut-
inni. Lögreglan brást snögglega
við og keyrði á vettvang. Þegar
þangað var komið voru hjólin
ekki sjáanlega eða þeir voru bún-
ir að hægja ferðina undir lögleg
mörk.
Lögreglumenn gripu þó ekki
alveg í tómt því þeir stöðvuðu
bifreið sem sem mældist á 120
kílómetra hraða. Ökumaðurinn
má búast við talsverðri sekt fyrir
að flýta sér svo mikið.
Hæstiréttur Íslands Eggert ísólfsson,
faðir söru lindar, segir það
óskiljanlegt hvernig
Hæstiréttur vann að
máli dóttur
sinnar.
Mannréttindadómstóll Evrópu fellir áfellisdóm yfir málsmeðferð Hæstaréttar:
Hæstiréttur braut á fjölfatlaðri stúlku
Eggert Ísólfsson, faðir Söru Lind-
ar, fagnar niðurstöðu Mannrétt-
indadómstóls Evrópu sem í gær úr-
skurðaði um að Hæstiréttur Íslands
hafi brotið á fjölfatlaðri dóttir hans
við málsmeðferð. Heimir Örn Her-
bertsson, hæstaréttarlögmaður, seg-
ist ætla að láta á það reyna hvort ís-
lenska ríkið muni rétta hlut Söru
Lindar sem áður voru dæmdar bæt-
ur fyrir héraðsdómi.
„Ég fagna þessari niðurstöðu,“
segir Eggert. „Hún hlýtur að rýra álit
okkar á Hæstarétti. Þetta er áfellis-
dómur á hann.“ Hann segir gleði ríkja
hjá fjölskyldumeðlimum í dag. „Þetta
var það sem við lögðum upp með. Ég
er þó ekki ánægður með það sem á
undan var gengið. Það er óskiljanlegt
hvernig Hæstiréttur vann að málinu.
Nú hefur Mannréttindadómstóllinn
staðfest að það var brotið á dóttur
minni.“
Sara Lind, 9 ára, fæddist á Land-
spítalanum og var hún tekin með
bráðakeisaraskurði. Hún reynd-
ist með ígerð í lunga og þurfti á súr-
efnisgjöf að halda. Einnig voru sett-
ir upp æðaleggir til að fylgjast með
lífsmörkum. Nokkrum vikum síðar
kom í ljós að Sara Lind hafði orðið
fyrir miklum heilaskemmdum og var
metin með 100 prósent örorku.
Árið 2002 dæmdi héraðsdóm-
ur henni tæpar 29 milljónir króna í
skaða- og miskabætur þar sem talið
var sannað að lega æðaleggs hefði
valdið heilaskemmdunum. Tveimur
árum síðar hnekkti Hæstiréttur þess-
um dómi og sýknaði ríkið af bóta-
kröfunni.
Heimir Örn, lögmaður fjölskyld-
unnar, segist ætla að láta á það reyna
hvort ríkið hyggist rétta hlut Söru
Lindar til fulls. „Það væri það eina
rétta.“ Heimir segir að við málsmeð-
ferð hafi Hæstiréttur stuðst við álit
læknaráðs sem var að miklu leyti
skipað starfsmönnum á Landspítal-
anum. Þannig hafi læknarnir í raun
gefið álit á eigin vinnu-
stað.
Mannréttindadóm-
stóllinn dæmdi Söru
Lind 6,5 miljónir
króna í bætur. „Þeg-
ar þessi fjárhæð er
metin verður að
taka tillit til þess
að Mannrétt-
indadómstóll-
inn er ekki að
taka afstöðu til
þess hvort niðurstaða Hæstaréttar sé
efnislega rétt eða röng,“ segir Heim-
ir. „Þetta snýst um að málsmeðferð
Hæstaréttar í þessu máli uppfyllti
ekki þær kröfur sem leiða af mann-
réttindasáttmálanum.“
erla@dv.is