Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 52
föstudagur 6. júlí 200752 Helgarblað DV
MEÐ STÆRSTU TÓNLEIKUM SÖGUNNAR
Um helgina fara fram sólarhringslangir tónleikar í átta borg-
um víðsvegar um heiminn. Tilgangur tónleikanna er að vekja
athygli á gróðurhúsaáhrifunum og slæmum afleiðingum
þeirra. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Skjá einum
frá morgni laugardags fram á sunnudagsmorgun.
Um helgina fara fram einir stærstu tónleikar sem
fram hafa farið á jörðinni. Tónleikarnir sem um
ræðir heita Live Earth og fara þeir fram í átta stórum
borgum víðsvegar um heiminn. Tilgangur tónleik-
anna er að vekja athygli á og sameina íbúa heimsins
vegna gróðurhúsaáhrifanna sem nú þegar eru farin
að valda miklum vandamálum víða um heim. Tón-
leikarnir eru haldnir í New York, London, Jóhann-
esarborg, Rio De Janeiro, Sjanghæ, Tokíó, Syndney
og Hamburg.
Ísland kom til greina
Talið er að allt að tveir milljarðar manna muni
koma saman til að sjá tónleikana sem verða sýndir í
beinni útsendingu á Skjá Einum. Fjörið hefst klukk-
an sjö á laugardagsmorgun og verður sýnt stanslaust
frá tónleikunum í 24 klukkustundir eða til klukkan
sjö á sunnudagsmorgun. Margar stórar hljómsveit-
ir munu koma fram á tónleikunum og meðal þeirra
eru Smashing Pumpkins, Red Hot Chili Peppers,
Madonna, Foo Fighters, Snoop Dogg og Rihanna,
auk fjölda annarra gesta.
Það var fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna Al
Gore sem tilkynnti það á blaðamannafundi þann
15. febrúar síðastliðinn að af tónleikunum yrði. Um
tíma stóð til að Ísland fengi að vera meðal þeirra
þjóða sem héldu tónleikana en ekkert varð þó úr
þeim fyrirætlunum. Innblásturinn af tónleikunum
var meðal annars fenginn af hinum vinsælu Live 8
tónleikum sem haldnir hafa verið í gegnum tíðina,
nú síðast árið 2005.
Allir geta tekið þátt
Meðan á tónleikunum stendur verður fólk beð-
ið um að leggja hönd á plóginn og aðstoða á marg-
víslegan hátt. Meðal þess sem fólk getur gert til að
leggja málstaðnum lið er að krefjast þess að landið
sem það býr í minnki útblástur gróðurhúsaloftteg-
unda um allt að helming fyrir komandi kynslóðir.
Einnig er hægt að krefjast aukinnar notkunar end-
urnýtanlegra orkugjafa og gróðursetja tré. Aðstand-
endur tónleikanna hvetja fólk til að leggja hönd á
plóginn og sameinast í baráttunni gegn gróðurhúsa-
lofttegundunum, því margt smátt gerir eitt stórt.
Eins og áður segir verða tónleikarnir haldnir í
átta borgum um allan heim. Skipuleggjendur tón-
leikanna hafa gefið það út að til að útstreymi gróður-
húsalofttegunda verði í lágmarki verði sparneytnir
orkugjafar notaðir á tónleikunum. Segja má að
Bob Geldof sé faðir þessarar stefnu en hann skipu-
lagði Live Aid tónleikana árið 1985 sem síðan voru
endurteknir árið 2005 undir nafninu Live 8. Kevin
Wall sem aðstoðaði Geldof við seinni viðburðinn er
skipuleggjandi Live Earth tónleikanna.
Helstu hljómsveitir og tónlistarmenn sem taka þátt:
Copaca-
bana
Það má
búast við
því að
bekkurinn
verði þétt
setinn á
Copaca-
bana
ströndinni í
Brasilíu um
helgina.
Rihanna
Hin unga
rihanna
mun stíga
á stokk
um
helgina í
japan.
Foo Fighters
Verða meðal
gesta á
Wembley
vellinum í
london.
Sting
gamli refurinn
úr the Police
verður í
fantaformi um
helgina ásamt
hljómsveit
sinni.
Pussycat Dolls
Munu leggja
baráttunni lið
og verða á
Wembley um
helgina.
James
Hedfield og
félagar í
Metallica
Munu líklega
taka vel á því
um helgina.
England,
Wembley:
Black Eyed Peas
Bloc Party
damien rice
david gray
duran duran
foo fighters
Keane
Madonna
Metallica
Pussycat dolls
razorlight
red Hot Chili Peppers
snow Patrol
Brasilía,
Copacabana ströndinni:
lenny Kravitz
Pharrell Williams
Macy gray
Xuxa
O rappa
Marcelo d2
jorge Ben jor
jota Quest
Vanessa da Mata
MV Bill
Bandaríkin,
New York Giants vellinum:
akon
alicia Keys
Bon jovi
dave Matthews Band
fall Out Boy
john Mayer
Kanye West
Keith urban
Kelly Clarkson
ludacris
roger Waters
smashing Pumpkins
the Police