Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 14
Myndarlegur tæpleg átján marka strákur fæddist heima hjá sér á Dagg- arvöllum í Hafnarfirði klukkan ellefu á miðvikdagsmorgun. „Ég myndi velja þessa leið hiklaust aftur,“ segir Jórunn Sigurðardóttir sem fæddi son sinn heima í vikunni. „Ég hafði aldrei spáð í að heimaf- æðing myndi henta mér. Það var eiginlega þannig að ég átti stelp- una mína í Hreiðrinu og ég vil taka það skýrt fram að mér leið mjög vel þar og það var sú reynsla sem varð til þess að ég ákvað að eiga heima,“ segir Jórunn. Í Hreiðrinu notaði Jór- unn bað til verkjastillingar og fannst henni sú reynsla svo góð að hún gati ekki hugsað sér að hafa kannski ekki aðgang að baði ef margar væru að eiga á sama tíma. „Nú er Hreiðrið opið öllum þannig að fyrstur kem- ur, fyrstur fær. Þannig að aðgangur- inn að vatninu er ekki öruggur og ég gat hreinlega ekki hugsað mér það,“ segir Jórunn. Þetta varð til þess að Jórunn fór að hugsa um heimafæð- ingu og hvort það væri kostur fyrir hana. Jórunn var kominn langt á leið þegar hún hringdi í Áslaugu Hauks- dóttur ljósmóður sem einbeitir sér að heimafæðingum. „Mér leist svo rosalega vel á Áslaugu og maðurinn minn tók vel í þetta þannig að við ákváðum að kýla á það. Ef ég segi al- veg eins og er, þá hafði ég alltaf vit- að af heimafæðingum en hélt að það væru svona pínu skrítnar konur sem veldu þá leið en ég mæli hiklaust með þessu.“ Vildi engan vekja í upphafi Jórunn fékk fyrstu verkina klukk- an fimm á þriðjudagsnótt og þá var nokkuð langt á milli. Hún hafði feng- ið platverki á sunnudeginum sem duttu svo niður þannig að hún vildi ekki vekja neinn til þess að byrja með. Klukkan átta um morguninn hringdi hún í Áslaugu ljósmóður og sagði henni að verkirnir væru orðn- ir reglulegir en samt væru níu mín- útur á milli en hún vildi gera henni viðvart. „Áslaug ætlaði að fá sér að borða og koma svo til mín til þess að meta stöðuna. Það var ekkert stress og maðurinn minn skrapp í vinn- una til að ganga frá nokkrum hlutum enda vorum við viss um að tíminn væri nægur þar sem ég var fimmt- án tíma að fæða stelpuna okkar,“ segir Jórunn. Um hálftíma síðar fór allt að ganga betur og Jórunn gekk um gólf og velti fyrir sér hvað hún ætti að gera. „Ég hringdi í manninn minn, það var á tali en hann kom svo skömmu seinna. Ég hringdi líka í Ás- laugu sem kom alveg í loftköstum,“ segir Jórunn. Léttir að fara í vatnið Vatn var komið í laugina klukkan hálf tíu en þá voru verkirnir orðnir mjög harðir svo hún segir það hafa verið rosalega gott að komast ofan í vatnið. Það var ekki fyrirfram ákveð- ið að hún myndi eiga í vatninu en Jórunn segir það hafa komið eins og eðlilegt framhald, hana hafi ekki langað að fara upp úr. „Ég var á fjór- um fótum og þreifaði eftir kollinum, svo rétt seinna var mér sagt að taka hann og hann kom einhvernveginn syndandi til mín í gengum lappirnar og ég tók hann upp. Ég er svo glöð að hafa tekið þessa ákvörðun,“ segir Jór- unn og bætir við að börnin reyni ekki að anda fyrr en þau komi úr vatninu. Hún fæddi fylgjuna líka í vatn- föstudagur 6. júlí 200714 Helgarblað DV Sagði fáum frá heimafæðingunni vegna fordóma Hjördís rut sigurjónsdóttir blaðamaður skrifar: hrs@dv.is jórunn sigurðardóttir og Valgarður ragnarsson ákváðu að eiga son sinn heima til að tryggja henni aðgang að vatni í fæðingunni. Valgarður samþykkti ráða- haginn um leið og honum var sagt að sú leið væri örugg, en þau sögðu fáum frá þar sem Jórunn hafi orðið vör við fordóma. María Valgarðsdóttir, María með litla bróður og Valgarður ragnarsson föðurmóðir drengsins var óvænt viðstödd fæðinguna og var himinlifandi. Hún hafði ekki áður verið viðstödd fæðingu nema sinna eigin barna. jórunn með soninn nýfæddan drengurinn er sólarhringsgamall í örmum móður sinnar. dV Mynd KarL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.