Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 8
föstudagur 6. júlí 20078 Fréttir DV
Forða Grænlend-
ingum frá óreglu
Útlendingar sem flytja til
Danmerkur eiga rétt á aðstoð
við að finna sér húsnæði og skrá
sig í málanám. Þessi þjónusta
stendur ekki Grænlendingum
sem flytja til landsins til boða
þar sem þeir eru danskir rík-
isborgarar. Þetta veldur því að
fyrstu kynni margra Grænlend-
inga af danska kerfinu eiga sér
ekki stað fyrr en þeir leita sér
aðstoðar vegna vímuefna- eða
áfengisvanda samkvæmt frétt
Politiken. Bæjaryfirvöld í Óð-
insvéum hyggjast snúa þessari
þróun við og ætla að efla þjón-
ustu við þá Grænlendinga sem
þangað flytja og úthluta þeim
sérstökum leiðbeinanda.
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Glæpatíðni
veldur áhyggjum
Rúmlega nítján þúsund
manns voru myrtir í S-Afríku
á síðasta ári sem er fjölgun frá
árinu á undan. Einnig er vöxtur
í ránum úr bílum og íbúðarhús-
næði og bankaránum fjölgaði
um rúm fimmtíu prósent milli
ára. Þessar tölur valda ráða-
mönnum töluverðum áhyggj-
um enda er landið undir smásjá
Alþjóðaknattspyrnusambands-
ins þar sem heimsmeistaramót-
ið verður haldið í S-Afríku árið
2010. Ráðherra öryggismála
sagði fjölda alvarlegra glæpa
vera óásættanlegan og valda
miklum vonbrigðum.
Fátækrahverfin í Ríó í Brasilíu njóta sívaxandi vinsælda meðal ferðamanna. Hverfin
hafa löngum frekar vakið ótta í huga fólks og ekki að ástæðulausu. Til eru fátækrahverfi
sem að mestu eru laus við ofbeldi og baráttu eiturlyfjagengja. Þangað sækir fólk í meira
mæli og þá sérstaklega frá Evrópu og Bandaríkjunum.
VELJA FÁTÆKRAHVERFIN
Á sama tíma og yfirvöld í Brasilíu
bretta upp ermar og ráðast inn í fá-
tækrahverfin með það fyrir augum
að hreinsa til, innleiða úrbætur og
uppræta glæpagengin, leita erlend-
ir ferðamenn í æ ríkari mæli inn í
hverfin með það fyrir augum að upp-
lifa hina „raunverulegu Brasilíu“.
Reyndar er ekki um að ræða alræmd-
ustu hverfin heldur hafa ferðamenn
sótt í slömmin í hlíðunum fyrir ofan
Ipanemaströndina. Hvað sem því
líður er um að ræða staði sem mið-
aldra Brasilíumenn sækja ekki heim.
Sívaxandi fjöldi ferðamanna í Ríó
sniðgengur ströndina og hin íburð-
armiklu og dýru hótel og kýs að gista
í fátækrahverfunum. Gabe Ponce de
Leon kom til Ríó frá Brooklyn, í New
York, árið 2001. Eftir að hafa kynnst
Rochina-hverfinu sneri hann baki
við glanslífinu. „ Rochina er eins og
óvinnandi virki, séð utan frá. Inni í
hverfinu er það eins og hallargarður,
börn að leik á götunum og þú þekkir
alla nágrannana. Engar löggur, engir
lögfræðingar, ekkert skrifræði og eng-
in auglýsingamennska. Þarna tíðkast
gamaldags mannleg hlýja, fólk hjálp-
ar hvert öðru,“ segir de Leon.
Fjöldi útlendinga eykst
Það eru engar áreiðanlegar tölur
fyrirliggjandi um hve margir útlend-
ingar búa í fátækrahverfum Ríó, en
fjöldinn hefur aukist gríðarlega hin
síðari ár. Í flestum tilfellum er um
að ræða Evrópubúa og Bandaríkja-
menn. Í sumum hverfum hafa gisti-
heimili skotið upp kollinum, sem
jafnvel auglýsa á internetinu og er
boðið upp á akstur frá flugvelli, inni-
falinn morgunverð, rúmfatnað og
símaþjónustu. Marcelo Mendonca,
sem leigir út herbergi í húsi sínu seg-
ir að þetta sé gott fyrir efnahag hverf-
isins. „Fátækrahverfin eru í hugum
margra ímynd eiturlyfja og ofbeld-
is, en gestir upplifa annan veruleika.
Þeir njóta þess að rölta í bakaríið og
barinn á horninu,“ segir Mendonca.
Samba og kjötkveðjuhátíðir
Til margra ára skipuðu fátækra-
hverfin í Ríó rómantískan sess í huga
Brasilíumanna. Í hverfunum, sem
eru um sexhundruð talsins, liggja
rætur samba og kjötkveðjuhátíða
sem á hverju ári voru sóttar af þús-
undum Brasilíumanna úr efri stétt-
unum. Allt er breytingum háð, og
upp úr 1980 urðu hverfin vettvang-
ur vopnaðrar baráttu milli glæpa-
gengja í ört vaxandi kókaínverslun.
Þau hverfi sem alræmdust eru fyrir
ofbeldi eru flest í norðurhluta Ríó.
Þar, handan styttunnar af Jesú, sem
gnæfir yfir borgina, eru ruddaleg,
skítug hverfi sem státa af mannfalli
sem fólk tengir frekar stríðssvæð-
um. Þar ráða eiturlyfjabarónar ríkj-
um og útdeila refsingum að eigin
geðþótta og fólk sem þar býr hefur
tileinkað sér æðruleysi þrátt fyrir of-
beldi og kúlnaregn.
Óþarfur ótti
Bob Nadkarni er breskur mál-
ari og flutti í Tavares Bastos fá-
tækrahverfið á áttunda áratug síð-
ustu aldar og hefur búið þar síðan.
Hann kynntist hverfinu fyrir tilvilj-
un og varð svo heillaður að ekki
ekki varð aftur snúið. Hann leigir út
herbergi til ferðamanna og stend-
ur fyrir mánaðarlegu djasskvöldi,
sem nýtur mikilla vinsælda meðal
bæði útlendinga og Brasilíumanna.
Hann segir Brasilíumenn óþarflega
hrædda við fátækrahverfin. „Þeir
monta sig af hræðslunni og metast
jafnvel um hver sé hræddari. En ég
gæti ekki búið annarsstaðar,“ seg-
ir þessi sextíu og fjögurra ára gamli
málari.
Ofbeldi Mörg fátækrahverfi í
ríó lúta lögum eiturlyfjagengja.
Börn að leik Á
götum rochina eru
börn að leik.
Rochina Einkennist
ekki af ofbeldi.
KOlBeinn þORSteinSSOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is