Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 19
DV Umræða föstudagur 6. júlí 2007 19 Ferðamenn njóta lífsins Veðurblíðan hefur leikið við landsmenn að undanförnu þó veðurfræðingar hafi verið duglegir að spá því að heldur fari að þykkna upp og kólna. Þessir ferðalangar nutu sólarinnar á dögunum og lögðust í sólinni við sjávarsíðuna í reykjavík. DV mynd Stefán Dómstóll götunnar mynDin HVAÐ FINNST ÞÉR UM LÆGRA LÁNAHLUTFALL ÍBÚÐALÁNASJÓÐS? P lús eð a m ínu s Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð- herra fær mínusinn fyrir að kúvenda í afstöðu sinni til lækkunar lánshlutfalls hjá Íbúðalána- sjóði. Hún boðar aðgerðir til að koma til móts við skerðingu þar sem þörf krefur en þær verða ekki að veruleika strax. spurningin „Blómin gleðja og fegra og hljóta að koma í veg fyrir rangar ákvarðanir eins og hraðakstur,“ segir Óskar Bergsson. framkvæmdaráð reykjavíkur hefur samþykkt tilraunaverkefni í því að aðstoða íbúa við það að koma upp blómakössum við íbúðagötur. Blómakassarnir hafa að minnsta kosti þrennan tilgang. í fyrsta lagi að vera hraðahindrun inni í hverfum þar sem er 30 kílómetra hámarkshraði, í öðru lagi að fegra umhverfið og í þriðja lagi að virkja íbúana í fegrun og auknu öryggi í sínu hverfi. Draga blóm úr hraða? Alveg er það grínlaust að vera borinn sökum, og það sökum sem maður vinnur til gegn eigin vlija. Þannig er komið fyr- ir hinum geðþekka Skagamanni og sparkmanni Bjarna Guðjónssyni Þórðarsonar. Vissulega skoraði hann Bjarni mark sem hann átti kannski ekki að gera. Þeir sem deila hvað harðast á Bjarna eru uppfullir af ósanngirni. Hinkrið við áður en þér dæmið. Auðvitað ætlaði Bjarni ekki að skora markið en hann ætlaði það samt. Þannig er það og það verður skýrt betur hér að neðan. Þannig er það. Skagamaður lá á vellinum. Hann fann til og til að hægt væri að kyssa á báttið spörkuðu Kefl- víkingarnir boltanum útaf. Eftir að Skagamaðurinn var staðinn á fætur, tóku þeir gulu innkast. Boltinn var sendur á Bjarna. Þá gerðist nokkuð sem Guðjón faðir Bjarna skýrir þannig að það var sótt að syninum, sem var með boltann. Bjarni lék á einn Keflvík- inginn, eins og hann á svo gott með að gera, og þegar hann var kominn framhjá þeim frá Suðurnesjum leit hann upp, sá að markmaðurinn var ekki í markinu. Gullið tækifæri blasti við Bjarna, tækifæri sem alla fótbolta- menn dreymir um. BANG! Um leið og Bjarni hafði sparkað og hann sá boltann fara af ristinni í háum boga og stefna á varnarlaust markið kom önnur hugsun og ný í koll Bjarna; hvað er ég að gera, hugsaði hann. Þetta er ekki drengilegt. Það tók boltann aðeins örfáar sekúnd- ur að fara af fæti Bjarni í netið. Sparkið var ekki hægt að taka til baka, þannig er með alla fortíð. Hún verður ekki tekin til baka. Ef það væri hægt þá væri allt öðru vísi en það er. Þannig er það. Bjarni, Guðjón pabbi hans, Þórður bróðir, allir aðrir Skagamenn og allir Keflvík- ingar horfðu á boltann kljúfa loftið af hraða og af öryggi. Tilfinningin var ámóta því að horfa á flugvél hrapa. Skelfingaratburður og ekkert hægt að gera. Ekkert til að afstýra gerðum hlut. Þegar búið er að innræta fótboltamönn- um frá blautu barnsbeini að þeir eigi að skora mörk, um það snýst jú leikurinn, verðum við að skilja að markagræðgin er ekki bara til staðar stundum, hún er það alltaf hjá þeim sem vilja sigra. Þannig var að sigur- viljinn dró Bjarna til að skora mark sem hann ætlaði ekki að skora en ætlaði samt svo sannarlega að skora. Það vill til að fótbolti er bara leikur. Bjarni markaskorari DagFari - og sigurviljinn Ég hef ekki mikla skoðun á þessu máli. Ég á enga íbúð og bý hjá foreldrum mínum, þar af leiðandi tengist þetta mér ekki sterkum böndum. Ég er bara á framhaldsskólaaldri. Þorsteinn Vilhjálmsson,19 ára, nemi. Ég er ekki alveg búinn að mynda mér skoðun um þetta. Við fyrstu sýn virðist þetta vera gott fyrir mig sem á ekki íbúð, en ef ég ætti ein slíka þá myndi ég eflaust mótmæla þessu. En ef þetta slær á verðbólgu þá gæti þetta orðið hið besta mál. Skapti Þóroddson, 25 ára, tæknimaður. Mér finnst það hið besta mál að félagsmálaráðherra hafi lækkað lánahlutfall íbúðalánasjóðs. Ég get ekki beinlínis sagt að ég sé aðdáandi verðbólgunnar og ef þetta slær á hana þá er ég sáttur við þetta. Stefnir gunnarsson, 21 árs, tónlistarmaður. Fórna bæjargarðinum fyrir blokkir Hrafnhildur Anna skrifar: Það var svartur dagur í sögu Selfoss á miðvikudaginn. Meiri- hluti V, S og B lista í bæjarstjórn Árborgar samþykkti þá deiliskipu- lag af miðbæ Selfoss sem er stór- slys. Það er hreint ótrúlegt hvern- ig þessir sömu bæjarfulltrúar og var hafnað í síðust bæjarstjórn- arkosningum ætla að ná að eyði- leggja fyrir okkur Selfyssingum miðbæinn. Það er ekki á hverjum degi sem bæjarfélög fá tækifæri til þess að byggja upp nýjan miðbæ og maður skildi halda að til þess væri vandað ef tækifæri gæfist en það er ekki að sjá á þessum tillög- um. Byggingamagnið er allt of mik- ið og svo er verið að reyna að villa um fyrir manni svo enginn skil- ur neitt í neinu og fáir geta áttað sig á því hvernig málið er í raun. Tillögurnar eru afgreiddar í hver í sínu lagi, svæðinu er skipt upp og byggingamagn flutt til eins og skákmenn á taflborði. Það sem er í raun og veru að gerast er að meirihluti V, S og B lista er að eyðileggja bæjargarðinn okkar! Ég var ánægð með það sem fram kom hjá Eyþóri Arnalds, oddvita sjálfstæðismanna í Ár- borg, á þessum annars sorglega bæjarstjórnarfundi. Central Park í New York er manngerður garður sem er í miklum metum hjá borg- arbúunum og gestum borgarinn- ar. Aldrei hefur yfirvöldum í New York dottið það til hugar að fórna Miðgarði fyrir blokkir þó að pláss- leysi og fjárhagsvandræði borgar- innar hafi verið margfalt meiri en Árborgar. lesenDur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.