Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 28
Jóhannes Felixson, oftast nefndur Jói Fel, hefur ekið á jeppum síðustu átta árin. „Ég ek á nýjum Nissan Patrol með 35 tommu breytingu. Ég er mjög ánægður með þennan bíl. Þetta er stór og mikill bíll,“ seg- ir Jói. Hann segir það mikilvægast fyr- ir sig að vita til þess að geta komist alla leið, burtséð frá færð og veðri. Þess vegna hafi hann valið sér að keyra jeppa. „Ég vil vita að ég kom- ist alla leið þegar ég fer í sumar- bústaðinn að vetrarlagi, jafnvel þó það sé snjór og ófærð. Sama gild- ir um veiðina. Ég er mikið í veiði, bæði stangveiði og skotveiði. Á jeppanum kemst ég allra minna ferða í veiðinni.“ Betri breytingar Jói segir 35 tommu breyting- una passa sér vel. „Ég var alltaf á 38 tommu dekkjum, en af því að ég fer lítið á jökla þá skipti ég yfir í 35 tommu dekkin. Það verður líka miklu sjaldnar erfiður snjór á vegi manns í dag en áður. Niðurstað- an er sú að maður kemst meira og minna allra sinna ferða á 33 eða 35 tommu dekkjum,“ segir hann. Hann segir breytingar á jeppum vera mun betri og nákvæmari í dag en þær voru fyrir nokkrum árum. „Dekkin eru líka orðin það góð að þau eru hætt að hristast og láta illa eins og algengt var.“ Hálkan er hættan Jói segir eina ókostinn sem orð sé á gerandi við jeppa og stærri bíla séu akstureiginleikar í hálku. „Það er oft talað um það þegar maður er á stórum bílum að það sé betra að vera á negldum dekkjum. Ég finn að þegar þeir byrja að renna þá kemur meira skrið á stóru bílana.“ Hann ákvað samt að keyra á góðum heilsársdekkjum. „Það er bara svo örsjaldan sem maður lendir í hálku núorðið. Ég hef dekk- in míkróskorin í staðinn. Þá eru skornar rákir í yfirborð dekkjanna sem auka gripið til muna.“ Hummer eyddi miklu „Ég var á Hummer áður en ég keypti þennan. Hann er talsvert breiðari og það er svolítið erfitt að aka honum niður Laugaveg- inn,“ segir Jói. Hann ákvað samt að skipta því Hummerinn eyddi miklu bensíni. „Að fara til Akureyrar og heim aftur kostaði kannski svipað og farmiði til útlanda.“ Hann segir kostinn við Patrol jeppann líka vera þann að hann sé þægileg blanda af götubíl og torfærutæki. „Ef fólk á of fína jeppa þá getur það farið svo að það þori varla að nota þá,“ segir Jói Fel. Föstudagur 6. JÚLÍ 200728 Helgarblað DV Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Jeppadekk Alorka • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080 Heilsársdekk 31" kr. 12.900 (31x10.50R15) 33" kr. 15.900 (33x12.50R15) Úrval annarra stærða upp í 38". Felgustærð 15", 16" 17" og 18". Sendum frítt um land allt! Við mælum með míkróskurði P IPA R • S ÍA • 70 622 Nánar á jeppadekk.is Óskar Erlingsson, varaformaður Ferðaklúbbsins 4x4, segir að það sem helst ber að varast í sumarferðalög- um á hálendinu séu vatnsföllin. „Það er betra að snúa við en að fara út í eitt- hvað sem maður ræður ekki við. Fólk á líka að vara sig sérstaklega á því að vera einbíla, eins og kallað er. Það er betra að bíða eftir því að einhver ann- ar komi þannig að hægt sé að reiða sig á hjálp ef eitthvað fer úrskeiðis. Þetta er mesta hættan í hálendisferð- um, svona að sumarlagi. Fólk má ekki vanmeta kraftinn í jökulánum,“ segir hann. Hann bendir á að þó að vissulega geti jökulárnar verið varasamar, þá eigi það sama við um bergvatnsár. „Bergvatnsárnar geta líka verið erfið- ar í mikilli rigningartíð. Alvarlegustu slysin í gegn um tíðina hafa orðið við árnar. Þá er fólk að fara út í eitthvað sem það hefði betur sleppt.“ Varlega á vaðið Óskar segir að gamla reglan um að reyna fyrst að vaða yfir ánna með stiku með sér sé enn í fullu gildi. „Best er að hafa með sér vöðlur og stiku. Þá er hægt að vaða út í ána og kanna botninn og dýpið. Stór grjót í árfar- vegum geta farið illa með óbreytta jeppa. Þessar ár eru kraftmiklar og geta leikandi breytt sér á milli daga, þannig að það er engin trygging þó að bíll hafi farið á vaðið degi á undan,“ segir Óskar. Hann bætir því við að vissulega séu til þeir jeppar sem séu færir um að komast yfir erfiðari fljót. Hins veg- ar sé það aðeins á færi þeirra sem hafa reynslu og þekkingu að fara yfir slíkar hindranir. „Þeir sem eru reynd- ir í þessum akstri vita nokkuð vel hvað þeir geta leyft sér. Hinir sem eru minna reyndir ættu að fara að þess- um hlutum með gát.“ Lærum á bílinn Óskar segir að þegar farið er yfir erfiða og grýtta slóða þá sé aðalatriði að fara nógu hægt yfir, beita þolin- mæðinni og fylgjast vel með akstrin- um. Leó M. Jónsson, vélatæknifræð- ingur, tekur undir þetta hjá Óskari. „Ef farið er nógu varlega þá er hægt að komast ansi marga fjallvegi á lítið breyttum bílum og jafnvel á fólksbíl- um. Þar má nefna leiðina yfir Kjöl, þar sem allar ár hafa verið brúaðar,“ seg- ir Leó. Leó segi jafnframt að í þessum að- stæðum verði fólk að kunna að nota þann drifbúnað sem bíllinn hefur upp á að bjóða. „Einhverjum sést allt- af yfir að snúa driflokum þegar búið er að setja bílinn í fjórhjóladrifið. Þannig getur fólk staðið í þeirri meiningu að það sé að aka í fjórhjóladrifinu og veit svo ekki fyrr en það er komið í ógöng- ur,“ segir hann. Að lina í dekkjunum Óskar bendir á að þeir sem ferðast á breyttum jeppum ættu skilyrðislaust að útbúa sig með loftdælu. „Þannig má lina aðeins í dekkjunum þegar fólk er á ferðinni yfir grófa hálendis- vegi. Þetta er smekksatriði en það er venjulega allt í lagi að lækka þrýsting- inn í 38 tommu dekkjum úr 25 pund- um niður í svona 14. Þá verður ferða- lagið allt miklu mýkra og þægilegra.“ Það eina sem fólk þarf að varast við þetta, að mati Óskars, er að aksturs- eiginleikar bílsins breytast við þetta. „Ef menn þurfa að beygja snögglega þá svarar bíllinn seinna og beygir kannski fullmikið þegar hann tekur við sér. Fólk þarf bara að finna þetta sjálft og venjast þessu,“ segir Óskar. Hann segir ennfremur að dekk springi síður á grýttum vegum ef í þeim er lint. „Dekkin gefa þá frekar eftir en að springa. Það eru reyndar ekki allir sammála um þetta en þetta mín reynsla.“ Ekki of hratt „Aðalatriðið er að ef þú ert að keyra í óbyggðum, þá skipta stóru dekkin talsverðu máli. Þessir breyttu bílar ráða mun betur við snjóinn og ekki síður eiga þeir auðveldara með að komast upp úr árfarvegum og þvíumlíku,“ segir Leó. Hann segir að með því að taka loft úr dekkjum megi koma sér út úr margskonar ófærum. Hann varar hins vegar við því að aka á of linum dekkj- um í langan tíma. „Fólk hefur flask- að á því að keyra mikið á dekkjunum svona og jafnvel þeysast yfir snjó á lin- um dekkjum. Þá belgist dekkið mikið og hitnar, kanturinn byrjar að bráðna í sundur og dekkið eyðileggst á mjög skömmum tíma. Eftir að búið er að hleypa úr er best að aka alveg lötur- hægt og pumpa aftur í dekkið eins fljótt og kostur er. Það er dýrt spaug að eyðileggja jeppadekk sem kostar kannski sextíu þúsund krónur stykk- ið“ segir Leó. Dekkjaviðgerðir Leó og Óskar víkja báðir að dekkja- viðgerðum. „Auk loftdælunnar, þá ættu allir þeir sem aka á breyttum jeppa með stórum dekkjum að læra að nota sérstaka tappa til þess að gera við dekk sem springur,“ segir Leó. Á mörgum breyttum jeppum hefur varadekkið hreinlega verið fjarlægt og þá verður fólk að reiða sig alfarið á að geta gert við dekkin á staðnum. Óskar segir þó að ekki skaði að hafa með sér varadekk, jafnvel þó að það sé minna en hin dekkin. „Það er reyndar alltaf gott að hafa varadekk ef maður getur þó að bílliinn sé breyttur. Það er hægt að setja minna dekk á framöxulinn og keyra frekar í afturdrifinu. Það forðar manni frá því að ofhita mismunadrif- ið að aftan,“ segr Óskar. Góður undirbúningur Vel undirbúnir ferðalangar eru alltaf betur í sveit settir en hinir. „Allir sem ferðast í óbyggðum ættu að hafa með sér kort og helst að hafa með sér GPS-tæki,“ segir Óskar. Hann segir að núorðið sé auðvelt að hlaða flestum hálendisleiðum inn á GPS-tækið, og það sé hjálp fyrir marga sem ekki eru öruggir með að rata á fjöllum. „Ef maður er með gott kort og veit hvað fjöllin heita þá getur maður allt- af staðsett sig, svona þegar skyggni leyfir. Þegar farið er út í óbyggðir þá þarf að hugsa ferðalagið aðeins öðruvísi en þegar ferðast er í vernd- uðu umhverfi. Það getur orðið löng biðin ef maður þarf að bíða í hálf- an eða heilan dag eftir næsta ferða- langi,“ segir hann. „Þetta er bara náttúran og þarna er engin vegagerð sem tekur ábyrgð á yfirborðinu. Fólk þarf að vera meðvitað um það.“ Til vara eigi svo fólk ávallt að gefa upp ferðaáætlun með tímasetning- um. Þá geti fólk byrjað að grennslast fyir ef að áætlunin fer úr skorðum. Að lokum ætti fólk aldrei að ferðast eitt. sigtryggur@dv.is Jökulárnar eru hættulegastar VArAformAður 4x4 Óskar Erlingsson segir að fólk eigi alltaf að hafa varann á sér þegar farið er yfir jökulár. Hann leggur áherslu á að fólk fari ekki einbíla í hálendisferðir, eins og sagt er. Ég VIl kOMast alla leIÐ Jói fEL Jói notar jeppann mikið bæði í stangveiði á sumrin og í skotveiðina á haustin og veturna. Hann segir það mikilvægast að vita að hann komist á leiðarenda, burtséð frá veðri og færð. DV mynD GúnDi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.