Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 20
Í gömlum útgerðarbæ á Norðaust-
urlandi er rekin umfangsmikil ferða-
þjónusta sem sífellt sækir í sig veðr-
ið. Á Húsavík eru nú þrjár útgerðir í
hvalaskoðun á Skjálfandaflóa. Þar
eru þrír veitingastaðir, hótel og nokk-
ur gistiheimili auk hvalasafns, reður-
safns og kaffihúsa.
„Þetta er dæmi um það hvað
hægt er að gera ef fólk hefur þolin-
mæði, kraft og þorir að láta vaða,“
segir Ásbjörn Björgvinsson, safn-
stjóri Hvalasafnsins á Húsavík.
Hann segir að jafnvel þótt stærri
skip hafi flust frá Húsavík, þá sæki
smábátaútgerðin í sig veðrið og fisk-
vinnslan standi nú nokkuð sterk-
um fótum. Húsvíkingar sækjast eft-
ir sem áður eftir álveri og vilja með
því skapa fjölbreyttara atvinnulíf.
Á Húsavík bjuggu 2.300 manns um
síðustu áramót.
Fjörutíu þúsund á ári
Ásókn í hvalaskoðun hefur aukist
mikið á undanförnum árum. Fyrir tíu
árum fóru nærri þrjú þúsund farþeg-
ar í hvalaskoðun frá Húsavík. „Á síð-
asta ári voru þetta hátt í 40 þúsund
farþegar hjá fyrirtækjunum þremur
á Húsavík,“ segir Stefán Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Gentle Gi-
ants hvalaskoðunar á Húsavík. Fyrir-
tæki Stefáns hefur nú verið starfrækt
í sex ár en hann hefur komið nálægt
hvalaskoðun mun lengur. „Upphaf-
ið má rekja til ársins 1982 þegar ég
fór í mína fyrstu hvalaskoðunarsigl-
ingu. Það eru orðin 25 ár síðan,“ seg-
ir hann.
Hvalaskoðunarfyrirtækið Norð-
ursigling gerir nú út fjóra báta og
hefur verið í rekstri síðan árið 1995.
Allir eru bátarnir gamlir, endur-
smíðaðir eikarbátar, sem útgerð-
armennirnir eru sammála um að
henti einkar vel til hvalaskoðunar,
ekki síst vegna þess hve hljóðlátir
þeir eru.
„Við erum síðan með einn plast-
bát frá árinu 2000. Hann er helmingi
hraðskreiðari en gömlu bátarnir og
við notum hann í Flateyjarferðir og í
sjóstangaveiðina,“ segir Stefán.
Keikur með Hvalasafnið
Hvalasafnið á Húsavík heldur
upp á tíu ára afmæli næstkomandi
fimmtudag. „Við fórum í fyrsta skipti
yfir tuttugu þúsund gesti í fyrra. Ég
hef verið að ferðast um Skandinavíu
að skoða söfn og held að ég geti alveg
staðið keikur undir þessu sem ég er
búinn að byggja upp þarna heima,“
segir Ásbjörn Björgvinsson safn-
stjóri. Safnið er hugarfóstur hans.
„Upphaflega var þetta pínulítið
safn með upplýsingum um nokkr-
ar tegundir. Núna tökum við fyrir
alla þá hvali sem sést hafa við landið
og reynum að gera þetta eins mikla
upplifun fyrir gestina og hægt er,“
segir Ásbjörn.
Safnið fór af stað sem lítil sýning
í eitt hundrað fermetra sal á Fosshó-
tel Húsavík. Þaðan færðist leikurinn
í gamla beitningarskúra við höfnina.
„Þaðan færðum við okkur í gamla
sláturhúsið þar sem við erum núna
til húsa.“
Dapurleg umfjöllun
„Sú heldur dapurlega umfjöllun
sem hefur verið upp á síðkastið um
sjávarbyggðirnar á í rauninni ekki
við um Húsavík. Smábátaútgerðin
hefur verið að styrkja sig upp á síð-
kastið jafnvel þó að stærri skipin hafi
verið að hverfa frá okkur. Ferðaþjón-
ustan hefur hins vegar blómstrað á
svæðinu og það hefur skapað okkur
gríðarlegar tekjur og búið til mikla
jákvæðni innan samfélagsins,“ segir
Ásbjörn.
Hann segist hafa byggt Hvala-
safnið upp í litlum áföngum eftir
því sem fjármagn hefur leyft. „Þetta
er gott dæmi um eitthvað annað en
sjávarútveg sem hægt er að byggja
upp án þess að leggja út í allt of mikl-
ar skuldbindingar,“ segir Ásbjörn.
Hann er rafvirki að mennt en vann
sem leiðsögumaður við hvalaskoðun
sumrin 1992 og 1993. „Ég sá strax að
þarna var mikill fjársjóður sem við
gætum gert heilmikið úr.“ Hann segir
að vituskuld hafi hann notið dyggrar
aðstoðar fjölda fólks við að byggja
upp Hvalasafnið. Náttúrufræðistofn-
un hefur til að mynda staðið þétt við
bakið á okkur þegar komið hefur að
því að setja upp beinagrindurnar.“
Ánafna reðursafni tólin
„Mér voru að bætast eistu úr
föstudagur 6. júlí 200720 Helgarblað DV
FJÖRUTÍU ÞÚSUND SKOÐA HVALI OG REÐRA
Hvalaskoðun á Húsavík þjónar nú fjörutíu
þúsund gestum á sumri. Mikil uppbygging
hefur átt sér stað í ferðaþjónustu í Þing-
eyjarsýslu undanfarin tíu ár. Ferða-
mennskan er hrein viðbót við sjávarútveg
sem nú er sterkari en áður. Á Húsavík er
að finna hvalasafn og yfirgripsmikið reð-
ursafn sem nýlega bætti við sig merkileg-
um safngripum.
Sigtryggur Ari jóHAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
„Mér voru að bætast
eistu úr fimmtugum
karlmanni í safnið. Nú á
ég bæði eistu og forhúð
og vantar bara það sem
þar er á milli.“
reðursafnið sigurður Hjartarson heldur úti reðursafni
sínu á Húsavík. safnið hefur talsvert aðdráttarafl og
þangað koma 30 til 60 gestir á hverjum degi.
Hvalaskoðunarbátar Knörrin og Bjössi sör eru
tveir af fjórum hvalaskoðunarbátum Norðursigling-
ar. Mest er notast við gamla, uppgerða eikarbáta.
gert klárt útgerð á Húsavík stendur núorðið
sterkum fótum. Þar starfa nú fiskvinnslufyrirtæk-
in Vísir og g.P.g. fiskverkun.