Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Síða 17
DV Fréttir föstudagur 6. júlí 2007 17
Leikar í móðu mengunar
bendir hann á að Aþena, Los Ang-
eles og Mexíkóborg séu ekki fyrst og
fremst þekktar fyrir hreint loft. Þrátt
fyrir þá staðreynd að margir íþrótta-
menn sem þátt tóku á Ólympíuleik-
unum í Aþenu árið 2004, hafi glímt
við öndunarerfiðleika, hefur um-
ræða þar að lútandi farið lágt.
Hvað sem öllu öðru líður eru yf-
irvöld í Peking staðföst í trúnni á
græna leika. Yfirvöldin hafa ákveðið
að verja tveimur og hálfum milljarði
evra í viðleitni sinni til að bæta and-
rúmsloft borgarinnar áður en Ól-
ympíuleikarnir hefjast. Sérfræðing-
ar deila ekki þessari bjartsýni með
borgaryfirvöldum. Þeir telja að þótt
yfirvöld banni alla umferð á götum
borgarinnar, stöðvi starfsemi allra
verksmiðja og slökkvi á allri loftræst-
ingu meðan á leikunum stendur,
myni þær aðgerðir hrökkva skammt.
Allt að sjötíu prósent rykmengun-
ar í borginni á uppruna utan henn-
ar, í nærliggjandi iðnaðarhéruðum.
Þrjátíu prósent gasmengunarinnar
í borginni berst frá öðrum iðnaðar-
borgum úr Hebei-héraði.
Ábyrgðin liggur annars staðar
Hin öra iðnaðaruppbygging í
Kína hefur haft mjög alvarlegar af-
leiðingar. Sú staðreynd að kol hafa
verið helsti orkugjafinn í sífellt viða-
meiri og orkufrekari iðnaði hefur or-
sakað gífurlega loftmengun og með
aukinni velmegun hefur almenn
bílaeign aukist. Teppur einkenna
bílaumferð í stærstu borgunum og
auka enn frekar á loftmengunina.
Kína stendur frammi fyrir auknum
alþjóðlegum þrýstingi að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda. Yf-
irvöld þar í landi eru reiðubúin að
axla sína ábyrgð og gera ráðstafan-
ir til að draga úr mengun. Kínversk
yfirvöld eru þó ekki sátt við að Kína
verði dregið til ábyrgðar þegar horft
sé til framtíðar. Þau telja að hlýnun
jarðar sé fyrst og fremst á ábyrgð
helstu iðnaðarríkja heims og því sé
það á ábyrgð sömu ríkja að leysa það
vandamál. Ekki sé réttlátt að horfa
til ríkja sem komu seint til sögunn-
ar, eins og Kína og Indlands.
Auk loftmengunar glíma Kín-
verjar við vatnsmengun. Flestar ár
landsins eru mengaðar upp að ein-
hverju marki og um helmingur þjóð-
arinnar hefur ekki aðgang að hreinu
drykkjarvatni. Talið er að níutíu pró-
sent grunnvatns og sjötíu og fimm
prósent áa og vatna séu menguð.
Vatnsskortur hrjáir um helming kín-
verskra borga og hefur áhrif á eitt-
hundrað og sextíu milljónir. Talið
er að sjöhundruð milljónir drekki
mengað vatn á degi hverjum og hef-
ur ótímabærum dauðsföllum fjölg-
að verulega af þeim sökum.
Kína
n Höfuðborg: Peking
n stærsta borg: sjanghæ
n tungumál: Kínverska
n ríkisstjórn: sósíalískt lýðveldi
n forseti: Hu jintao
n forsætisráðherra: Wen jiabao
n í búafjöldi (áætlað): 1.321.851.888
Á reiðhjóli í Pekíng
Þeir sem eiga bifreið hafa lagt reiðhjólinu sínu.
Forboðna borgin
loftmengun í Peking er yfir hættumörkum.
UmFerðartePPa í Peking
umferðahnútar einkenna bílaumferð í stærstu borgunum.