Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 22
föstudagur 6. júlí 200722 Menning DV
Afmæli Sum-
artónleika
Í tilefni af 20 ára afmæli
Sumartónleika við Mývatn
verður boðið til þriggja daga
hátíðardagskrár um helgina.
Á meðal viðburða er söng-
ur Benedikts Kristjánssonar
tenórs við píanóleik Sólveigar
Önnu Jónsdóttur. Benedikt er
jafnaldri Sumartónleikanna og
tók þátt í upphafstónleikunum
1987, þá reyndar í móðurkviði.
Á sunnudaginn verður í fyrsta
sinn almenn guðsþjónusta í
Bænhúsinu á Rönd við Sand-
vatn. Kirkjukórar frá Mývatns-
sveit syngja. Allir eru hjart-
anlega velkomnir á hátíðina.
Tónleikar verða svo um hverja
helgi fram að verslunarmanna-
helgi.
Tríó Björns á Jómfrúnni
Tríó gítarleikarans Björns Thoroddsen kemur fram á sjöttu tónleikum
sumartónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu á
morgun. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt en þeir hefjast kl. 15. Leikið
verður utandyra á Jómfrúartorginu ef veður leyfir, en annars inni á
Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis.
Fyrir þrjátíu árum samdi Jó-
hann Helgason lagið Söknuð við
texta Vilhjálms Vilhjálmssonar. Vil-
hjálmur söng lagið í kjölfarið inn
á plötu og síðan þá hefur það fest
sig í sessi sem eitt dáðasta dægur-
lag Íslands. Nú hefur Jóhann höfð-
að höfundarréttarmál í Bretlandi
gegn norska lagahöfundinum Rolf
Løvland, höfundi lagsins You raise
me up, en kaflar í laginu eru sláandi
líkir Söknuði.
Vinsælt lag
„Þegar ég samdi Söknuð hvarf-
laði ekki að mér að lagið yrði svona
vinsælt,“ segir Jóhann. „Stundum
hefur maður hugboð um að lag
verði vinsælt, en ef lagahöfundar
vissu hvað það er sem veldur hylli
almennings, þá væru allir að semja
svoleiðis lög. Það er eitthvað ein-
stakt í þessu lagi sem veldur því að
það hefur náð svo mikilli hylli - ein-
hver óútskýranlegur styrkur.“
Mikil líkindi
Jóhann heyrði lagið fyrst þeg-
ar Óttar Felix Hauksson, útgefandi
spilaði það fyrir hann árið 2004
og hvatti hann til að gera eitthvað
í málinu. Í kjölfarið fékk Jóhann
STEF til að skrifa lögin upp og gera
á þeim samanburð. Samkvæmt
samanburðinum, sem undirritað-
ur er af Erni Óskarssyni og Ríkharði
Erni Pálssyni, má segja að skylt tón-
efni Söknuðar taki yfir ríflega 97% af
heildartíma You raise me up. Einn-
ig segir að með lögunum sé „mik-
ill lagrænn skyldleiki“ og tilteknar
hendingar séu „nákvæmlega eins.“
Góð aðstoð
Jóhann segir STEF ekki hafa get-
að gert mikið meira í málinu, en ís-
lenskur lögfræðingur var með það
til athugunar án þess þó að úr yrði
málsókn. Jóhann var síðan önnum
kafinn í vinnu og gat því lítið beitt
sér í málinu, en í vor tóku hjólin
að snúast á nýjan leik. „Þegar Josh
Groban kom hingað í vor sendi ég
fjölmiðlum tóndæmi og eftir að
Kastljós tók málið upp hafði kunn-
ingi minn samband við mig og bauð
mér aðstoð sína við málshöfðun
í Bretlandi, en hann er kunnugur
málum af þessu tagi og það er með
ólíkindum hvað hann hefur unnið
þetta vel.“
Prinsippmál
Ástæðuna fyrir málshöfðun í
Bretlandi, fremur en annarsstaðar,
segir Jóhann vera þá að þar er höf-
undarrétturinn mjög sterkur. „Það
er ekki eins og maður sé að eltast
við einhvern „jackpot“, - fyrir mér
er þetta fyrst og fremst prinsipp-
mál. Það jafngilti bara veiðileyfi á
íslenska tónlist ef við íslenskir höf-
undar værum þeir aular að láta
svona yfir okkur ganga án þess að
gera neitt í því. Það gildir það sama
um tónlist og önnur hugverk og
það að virt lögfræðistofa í Bretlandi
er reiðubúin til að taka málið upp,
verður vonandi til þess að menn
hugsi sig að minnsta kosti tvisvar
um áður en þeir nota vinsælt ís-
lenskt lag aftur.“
Tvöfaldur sigurvegari í
Eurovision
Rolf Løvland er höfundur beggja
norsku laganna sem unnið hafa
Eurovision söngvakeppnina; La
det swinge 1985 og Nocturne 1995.
Hann hefur starfað með tónlist-
armönnum hérlendis, til dæmis
landa sínum Joni Kjell Seljeseth, og
gæti því hæglega hafa heyrt Sökn-
uð - eitt vinsælasta dægurlag allra
tíma á Íslandi. Þess má geta að Jon
Kjell hefur verið Jóhanni mjög inn-
an handar við undirbúning máls-
ins og útbjó til dæmis tóndæmi þar
sem bæði lög eru spiluð samtímis á
sitthvorri rásinni og þar koma áber-
andi líkindi með lögunum berlega
í ljós.
Áður verið ásakaður
Hljómsveit Løvlands, Secret
Garden, flutti You raise me up fyrst
á plötu sinni Once in a red moon
árið 2001, bandaríski söngvarinn
Josh Groban söng lagið árið 2003
við gríðarlegar vinsældir og írska
drengjasveitin Westlife árið 2005.
Skömmu eftir að You raise me up
var fyrst gefið út upphófust raddir
í norskum fjölmiðlum um að það
væri líkt írska þjóðlaginu Danny
Boy - einkum þó viðlagið, en Løv-
land hefur í gegnum tíðina verið
gagnrýndur af löndum sínum fyrir
að nota verk annarra sem innblást-
ur í lögum sínum. Árið 2005 sökuðu
finnsku bræðurnir Tommi og Karri
Rinne, Norðmanninn um lagastuld
- en laglínan í viðlagi lagsins þeirra
Rakastakaa, sem tók þátt í undan-
keppni finnska sjónvarpsins fyrir
Eurovision árið 1995, er nær alveg
eins og í viðlagi You raise me up.
Þess ber þó að geta að mál Jóhanns
Vatn úr myllu
Kölska
Tónleikar með yfirskrift-
inni Vatn úr myllu Kölska verða
haldnir í Vatnasafninu í Stykk-
ishólmi annað kvöld kl. 20.30.
Þar ætla Guðlaugur Kristinn
Óttarsson og Einar Arnaldur
Melax að spila fyrir gesti á hin
ýmsu hljóðfæri. Frumflutning-
ur á nýju tónverki er á meðal
þess sem er á dagskrá kvöldsins
auk ópusa af plötunni Dense
Time sem Guðlaugur sendi frá
sér fyrir rúmu ári. Verk eldri
meistara eins og Vivaldi, Bach
og Charles Mingus munu enn-
fremur hljóma í Vatnasafninu
annað kvöld.
Ítalskur org-
elleikari á
Akureyri
Aðrir tónleikarnir í tónleika-
röðinni Sumartónleikar í Akur-
eyrarkirkju
verða haldnir
á sunnudag-
inn kl. 17.
Flytjandi að
þessu sinni
er ítalski
orgelleikar-
inn Mario
Duella og
ætlar hann meðal annars að
leika verk eftir Bach, Mendels-
sohn-Bartholdy og landa sína,
Costante Adolfo Bossi og Marco
Enrico Bossi.
Duella hefur komið fram
í flestum löndum Evrópu, í
Suður- og Norður-Ameríku og
í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.
Hann hefur leikið með Sinfón-
íuhljómsveit ítalska útvarpsins
RAI í Tórínó og komið fram með
ýmsum listamönnum og tónlist-
arhópum. Tónleikarnir standa
í klukkustund án hlés og er að-
gangur ókeypis.
Jóhann Helgason tónlistarmaður telur höfund lagsins You raise me up
hafa brotið gegn höfundarrétti sínum. Að mati íslenskra sérfræðinga er
mjög náinn skyldleiki milli laganna og skylt tónefni Söknuðar nær yfir
97% af heildartíma You raise me up.
Fyrst og fremst
prinsippmál
Menning
Jóhann Helgason samdi
söknuð árið 1977 við texta
Vilhjálms Vilhjálmssonar söngvara.