Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Page 49
DV Helgarblað föstudagur 6. júlí 2007 49
BaBúska í stað túrBana
túrban á hausnum voru heitir en eru það svo sannar-
lega ekki lengur. Hvað getum við þá haft á hausnum í
staðinn? Þannig er að það má sjá á sýningunum að
babúsku klútar og útlit sé það allra heitasta. Ófáir af
hinum stóru tískuhönnuðum heims eru undir áhrifum
og finnst babúsku klútar um hausinn það flottasta.
Vinsæll í róm
Á mánudaginn var fékk Valentino svokölluð Via
Condott verðlaun sem eru ætluð þeim sem eru ekki
frá róm en elska róm og eru elskaðir af öllum í róm.
Þetta var í 19 skiptið sem þessi heiðursverðlaun hafa
verið afhent en þeir sem hafa fengið þau eru meðal
annars giorgio de Chirico, , juan Carlos King of spa-
in, and His Holiness john Paul II.
Persónan
lela rose er frá texas
en dreif sig til New
York eftir mennta-
skólann til þess að
læra fatahönnun í
Parsons school of
design. lela rose
útskrifaðist árið 1993
og var aðstoðar-
hönnuður hjá
richard tyler næstu
þrjú árin. Þessi
reynsla gaf henni
hugrekki og reynslu
til þess að gera sína
eigin línu undir
nafninu lela rose.
línan hennar er
mjög vinsæl meðal
trendsettera í
Hollywood og má
þar nefna Chloë
sevigny, Mischa
Barton og selma
Blair. Hún selur nú
merkið sitt í meira en
60 búðum um allan
heim en þeir sem
eru forvitnir ættu að
kíkja inn á: http://
www.lelarose.com/.
Heitustu
Hollywood-
píurnar elska
lela rose
VaHá, Hressandi sumar-
koktell Hjá moscHino
Það var mikið um litadýrðir hjá Moschino fyrir s/V 2008 fyrir karlpeningin. Það voru neonlitir og lakkskór sem
ættu að kæta flesta. Það var mikið um gula tóna sem og rauða og appelsínugula. Einkunarorðin voru að taka
vel á móti sumrinu og sólinni, sandi og sjó. Húmorinn var í forgrunni hjá rosella jardini en það var prentað á
boli textar eins og; Ég elska mömmu og hávaxinn, dökkhærður og myndarlegur. Það var ekki búið þar heldur
mátti mikið sjá af röndum sem og doppum.
jarþrúður
Nafn? jarþrúður Karlsdóttir
Aldur? 27 ára.
Starf? Blaðamaður, hljóðmaður og allt
mögulegt og ómögulegt annað.
Stíllinn þinn? Ég er laumu gothari
sem er mjög hrifin af bleiku...
Hvað er möst að eiga? Píanó og
ólesna bók. Þá er maður nokkuð
góður. já og dVd tæki sem spilar allt.
Hvað keyptir þú þér síðast?
fjaðrahatt og skeljahálsmen.
Hverju færð þú ekki nóg af?
Bröndurunum sem 6 ára sonur minn
segir, kossum og þegar fólk gerir aaa.
Hvert fórstu síðast í ferðalag? Ég fór
i sumarbústað í Hvalfirði ad leika mér.
Hvað langar þig í akkurat núna?
frið, ró og endalausan tíma.
Perlur hér heima? smábátahöfnin í
reykjavík er eiginlega uppáhalds
staðurinn minn á landinu. annars er
fólkið mitt mestu perlurnar.
Hvenær fórstu að sofa í nótt?
Einhverníman eftir miðnætti að
vanda.
Hvenær hefur þú það best? Bæði
nývöknuð enn med fangið fullt af
möguleikum og seint á kvöldin eftir
góðan dag.
Afrek vikunnar? Of mikið leyndó til
ad deila en mjög stórt.