Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Blaðsíða 54
Resistance Fall of Man var einn af fyrstu
leikjunum sem kom út á Playstation 3.
Leikurinn gerist árið 1951, en í öðru-
vísi heimi en við þekkjum í dag. Seinni
heimstyrjöldin gerðist ekki og nasistar
þekkjast ekki. Eftir fyrri heimstyrjöld-
ina hófst blómlegt tímabil heimsbyggð-
arinnar, þar sem allt blómstraði. Svo
kemur Chimeran, bannvænn vírust sem
breytir fólki í einhverskonar skepnur.
Skepnurnar byggja svo upp her sem hef-
ur tekið yfir alla Evrópu. Sagan í leiknum
er í raun nokkuð sannfærandi og flott.
Leikmenn fara í hlutverk Nathan Hale,
Bandaríkjamanns sem reynir að aðstoða
Breta í báráttunni. Þegar Nathan smit-
ast af Chimerunni, breytist hann ekki í
skepnu heldur tvíeflist, eða með öðrum
orðum þá byrjar rokkið. Maður hendist
áfram á svakalegum vígvöllum, rústum
til dæmis Manchester, York og Grims-
by. Grár fyrir járnum berst maður ásamt
breskum hermönnum gegn einhverjum
svakalegustu ógeðum sem ég hef séð og
allskyns vélum í þokkabót. Upplifun-
in, þegar maður stekkur í skjól, aðeins
til þess að ná andanum, með hundr-
uð byssukúlna svífandi framhjá manni,
öskur Chimerunnar úr annarri áttinni,
og bresk neyðaróp komandi úr hinni.
Þetta er ótrúlegt. Eins og þaulæfður ball-
etdans, uppfullur af hrottaskap og of-
beldi. Heiftin þegar félagar manns falla,
áræðnin í að sækja lengra inn vígvöllinn,
óttinn þegar byssan verður skotfæra-
laus, reiðin þegar leikmaðurinn deyr og
gleðin þegar bardaginn er unninn. Allt
verður þetta að dísætum molotov-kok-
teil með ísmolum og lime. Það er ekki að
ástæðulausu sem Resistance Fall of Man
var einn af fyrstu leikjunum til þess að
koma út á PS3, því hann sýnir svo ekki
verður um villst að maskínan er massíf.
Dóri DNA
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 6. júlí 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
scarface - Nintendo Wii
transformers the game -PC/Ps2/Ps3/
PsP/XBOX360/gBa/Wii
Parappa the rapper - PsP
fantastic four: rise of the silver... - Wii
the darkness - Xbox360
Kíktu á þessa
leiKjatölvur
Hlutverkaleikurinn Loki kemur út á PC í ágúst. Um er að ræða RPG-leik með dæmi-
gerðu sniði, en þessi gerist meðal annars í heimi norrænnar goðafræði:
Aftur á leik-
völlinn
EA vonast til að endurvekja æsku-
minnningar fólks með nýja Play-
ground leiknum fyrir Nintendo Wii
og DS. Í leiknum keppir þú við aðra
skólafélaga um að verða leikvalla-
meistarinn. Það er kept í pílu, á
klessubílum, stangarbolta og
brennibolta, svo fátt eitt sé nefnt.
Markmið leiksins er að vinna sig upp
stigann og enda á toppnum en
límmiðar er það sem þú átt að safna.
En ekki hvað? Hægt er að spila
einliðaleik, hraðan leik og multiplay-
er í þessum spennandi leik frá EA,
sem mun vafalaust ylja fólki um
hjartarætur og vekja upp ljúfar
minningar úr barnæsku. Leikurinn er
sagður eiga að hæfa fólki á öllum
aldri þó hann muni líklega höfða
sterkar til yngri kynslóða.
AtAri tApAr
tölvuleikjafyrirtækið atari, sem var afar
atkvæðamikið á fyrrihluta tíunda
áratugarins hefur
tilkynnt að tap þess á
árinu 2006 nemi 71,3
milljónum dala.
fyrirtækið hefur gefið
frá sér leikina the
Neverwinter Nights 2,
driver og Enter the
Matrix undanfarin ár, en þeir hafa allir
náð miklum vinsældum. fyrirtækið mun
á næstu dögum segja upp 20 prósent af
starfsfólki sínu og draga verulega úr
markaðshlutdeild til þess að koma sér
aftur á strik.
semur fyrir
moH
Bandaríska tónskáldinu Michael
Giacchino hefur verið falið að semja
tónlistina fyrir nýja útgáfu Medal of
Honor; Airborne. Giacchino hefur
meðal annars samið tónlist fyrir
bandarísku spennuþáttaraðirnar Lost
og Alias, auk þess sem hann samdi
tónlist fyrir The Incredibles. Airbone
er tólfti Medal of Honor leikurinn en
sá fyrsti var gefinn út 1999. Nýji
leikurinn beinir sjónum sínum að
hlutverki fallhlífarhermanna í síðari
heimsstyrjöldinni, en þeim var oftar
en ekki varpað beina leið inn á
yfirráðasvæði óvinanna. . Medal of
Honor: Airborne verður gefinn út í
Evrópu þann 24.ágúst á Xbox 360, PC
auk þess sem PlayStation 3 útgáfa
kemur í nóvember.
Góðir RPG-leikir eru vandfundnir í
dag. Flestir aðdáendur góðra RPG-
leikja bíða enn spenntir eftir Diablo
3, sem aldrei virðist ætla að koma og
neyðast því til þess að sætta sig við
World of Warcraft þangað til. Í ágúst
sendir leikjaframleiðandinn Cyanide
frá sér tölvuleikinn Loki, sem heitir
eftir bragðarefnum fræga úr norrænni
goðafræði. Leikurinn spilast eins og
flestir aðrir hlutverkaleikir. Menn
þurfa að kafa djúpt í ókannaða heima,
berjast við alls kyns vættir, finna fjár-
sjóði og í kjölfarið bætir stríðsmað-
urinn sig á hinum ýmsu sviðum.
Söguþráður leiksins er stórbrotinn.
Egypski guðinn Seth leikur lausum
hala og hinir guðirnir þurfa að koma
honum í fjötra. Persóna manns er því
sendiboði guðanna og þarf maður
að ganga í gegnum fjóra heima; nor-
ræna goðafræði, fornan heim Asteka,
Egyptland hið forna og loks Grikk-
land með tilheyrandi guðum og eld-
ingum. Leikmenn geta ráðið í hvaða
röð þeir takast á við heimana, en til
þess að klára leikinn þarf maður að
sigra þá alla. Þá geta leikmenn valið á
milli fjögurra bardagamanna til þess
að stjórna, en það er einn úr hverjum
heimi fyrir sig. Vopn og verjur í leikn-
um eru eins og í öðrum betri RPG-
leikjum. Menn geta um það bil gefið
hetjunni sinni hvaða vopn, skjöld eða
brynju sem er og breytist útlit henn-
ar og hæfni eftir því. Því lengra sem
leikmenn komast í leiknum, því betri
hæfileika geta þeir valið handa hetju
sinni. En sem dæmi má nefna að nor-
ræn hetja getur valið úr kröftum Þórs,
Óðins eða Týs og svo koll af kolli. Í
leiknum rekst maður svo á kaupmenn
í bæjum, ýmis aukaverkefni og margt
annað sem þekkist úr öðrum hlut-
verkaleikjum. Þá verður einnig hægt
að spila leikinn á netinu, en að sögn
aðstandenda Cyanide, hefur mikið
verið lagt í net-hlið leiksins. Til dæmis
er hægt að slást í hóp með fleiri hetj-
um og klára leikinn með þeim, en svo
er einnig hægt að ráfa um einhvern af
heimunum fjórum í von um að hitta
þar aðra leikmenn, svo dæmi sé tek-
ið. Loki kemur út í ágúst eins og áður
hefur verið sagt og verður í fyrstu að-
eins fáanlegur á PC-tölvur.
Resistance:
Fall of Man
Skotleikur
PS3
tölvuleiKur
H H H H H
Dísætur molotov-kokteill með ís og lime
BrAGÐArefurinn loki
Fenrisúlfurinn fjöturinn
gleipnir dugar manni
væntanlega skammt í leiknum,
hvað þá drómi eða læðingur.
Fuglinn Fönix leikmenn þurfa að
berjast við þekktar vættir.
Þrumuguðinn Þór Með hamarinn
Mjölni og megingjarðirnar að vopni.
Loki leikmenn flakka á milli fjögurra
heima og þurfa á endanum að berjast
við egypska guðinn seth.