Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2007, Síða 62
föstudagur 6. júlí 200762 Síðast en ekki síst DV
Dagbókin mín
Baltasar
Kormákur
Vá hvað ég er frægur. Ekki sko bara á Íslandi heldur úti um allan heim. Það fyrsta sem
ég hugsaði þegar ég opnaði
augun í morgun var: Vá hvað ég
er frægur. Það hafa alltaf allir
haldið að ég sé eitthvað merki-
legur með mig og sé bara frægur
á Íslandi, en það er algjör mis-
skilningur. Ég er frægur um all-
an heim. Eða verð það alla vega
bráðum.Ég fæ þvílíka umfjöllun
í Variety kvikmyndablaðinu að
það hálfa væri alveg nóg. Og þó.
Það væri auðvitað ekkert nóg.
Segi bara svona. Meina ekkert
með því.
Þegar ég vaknaði í morg-un sá ég allt fræga fólkið sem er búið að vera með mér hérna í Tékkósló-
vakíu síðustu dagana. Meina
sko Tékklandi. Ég er í frægum
heilsubæ, umkringdur rúss-
nesku mafíunni og heimsfrægu
fólki. Rení alveg missti sig þegar
hún sá mig og sagði: A little trip
to heaven! Ég þóttist ekkert fatta
að hún fattaði hver ég væri og
spurði hana hvort það væri ferð
núna á kaffihúsið Heaven. Hún
hafði þvílíkt góðan húmor fyrir
mér. Ég veit alveg að hún heitir
Renee Zellweger en eins og ég
sagði henni er ég svo mikill Ís-
lendingur í mér þótt ég sé með
spánskt blóð í æðum, að ég tala
og skrifa allt upp á íslenskan
máta. Enda væri ég ekki leikari
og kvikmyndaframleiðandi á
Íslandi ef ég vandaði ekki málfar
mitt. Henni finnst það í góðu
lagi. Sjálf er hún eitthver kok-
teill. Held ég. Út af eftirnafn-
inu sko.Ég er alveg harður á að
kalla alla íslenskum nöfnum.
Pési vinur minn sem er með
mér hérna er til dæmis alveg
sáttur við að ég kalli Hæ Pési!
þegar við hittumst. Hann er al-
veg ósnobbaður hann Peter Bart
þótt hann sé bæði ritstjóri Vari-
ety og forseti dómnefndarinnar
hérna á Alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni.
Nýjasta besta vinkona mín hún Irmelin er alveg meiriháttar. Henni fannst merki-
legt að hitta svona pródjúser frá
Íslandi. Sjálf var hún að kynna
mynd sem sonur hennar er bara
með-pródjúser að. The 11th
hour. Hann heitir Leonardo eitt-
hvað. Mamma hans heitir fullu
nafni Irmelin DiCaprio. Rosa
fín. Það misstu sig allir hérna
þegar ég bauð þeim að koma til
Íslands á hestbak. Sagði þeim
frá hestunum mínum og sund-
lauginni og það ætla allir að
koma. Vona samt kannski að
það komi ekki alveg allir sem ég
sagði þetta við. Var eitthvað svo
glaður eftir að ég frétti þetta um
Variety að ég sagði þetta yfir allt
bíóið. Það er eiginlega vonlaust
að fá tólfhundruð gesti í einu á
hestbak. Eiginlega alveg útilok-
að. Eða hvað? Maður sem getur
búið til bíómyndir eins og ég
getur allt.
Kæra dagbók
Ég
og hitt
fræga fólkið
Sandkassinn
Mikið var að við Reykvíkingar
fengjum almennilegt sumarveð-
ur. Dag eftir dag hefur sólin skin-
ið á menn og dýr í höfuðborginni
og hitastig
jafnan
mælst í
tveggja
stiga tölu.
Átján,
nítján og
allt upp
í tuttugu stig í forsælunni, sem
svo er kölluð. Það er liðin tíð að
við hér fyrir sunnan þurfum að
horfa tárvotum öfundaraugum
á veðurfregnir frá Norður- og
Austurlandi. Góða veðrið er hjá
okkur. Nú er sumar, gleðjist gum-
ar. Húrra!
En það Eru Ekki allir glaðir í sól-
inni og sumarylnum. Innivinn-
andi fólk, eins og blaðamenn,
horfir þessum sömu tárvotu
öfundaraugum út um glugga á
glaðvært fólk sem sleikir sólina
og rjómaís og berháttar sig á
torgum. Það er nefnilega fátt öm-
urlegra en að þurfa að hírast inni
og skrifa um blíðuna, án þess að
geta notið hennar sjálfur. Nema
kannski það að hafa asnast til
að taka sumarfríið sitt snemma í
júní. Eins og fífl.
Í fyrra hélt Bubbi Morthens
risaafmælistónleika í Laugar-
dalshöll þann sjötta júní, undir
yfirskriftinni 060606. Það þótti
töff. Á einhvern djöfullegan hátt
(samanber 666 og það allt). Í ár
þykir það töff að
gifta sig þann
sjöunda júlí,
undir yfirskrift-
inni 070707.
Daginn ber upp
á laugardag, en
laugardagur er
einmitt til lukku
- eins og allir
vita og því vinsælastur vikudag-
anna þegar kemur að brúðkaup-
um. Þeir sem gifta sig til fjár gera
það hinsvegar væntanlega á
föstudegi - enda er föstudagur til
fjár. 080808 er einmitt föstudag-
ur - þannig að þeir sem hyggjast
giftast til fjár næsta sumar ættu
að taka daginn frá í tíma.
EinhvErjir virðast þó vera
hættir við og prestar tala um að
afbókanir þennan dag hafi verið
þónokkrar. Þó vissulega séu enn
mjög margir að gifta sig á laug-
ardaginn. Þetta mun vera vegna
þess að framboð á veislusölum er
ekki nægilegt til að anna þessari
skyndilegu og miklu eftirspurn.
Þá kemur sér vel hvað veðrið er
gott, því fátt er skemmtilegra en
góð veisla undir berum himni.
sjö þykir lÍka hEilög tala og
sumir segja að hún boði mikla
lukku. Hún kemur ansi oft við
sögu í Biblíunni og virðist hafa
yfir sér einhvern dularfullan blæ.
Í teningaspili rembast menn við
að ná happatölunni sjö, dverg-
arnir hennar Mjallhvítar voru sjö,
vikudagarnir eru jú sjö og svona
mætti lengi telja. Ég ætla ekki að
ganga í hjónaband á morgun.
Hinsvegar ætla ég að horfa á kvik-
myndina Seven, hlusta á Seven
and the Ragged Tiger með Duran
Duran, lesa Lögmálin sjö um vel-
gengni og keppa í sjöþraut við sjö
vini mína. Allt þetta ætla ég svo
að reyna að gera sjö sinnum.
Guðmundur Pálsson
lætur ljós sitt skína
séð með augum
Saga stóð nýlega uppi sem sig-
urvegari í alþjóðlegri danshöfunda-
keppni í Búdapest og undanfarið hef-
ur hún verið á ferð um heiminn að
sýna dansverk sín og annarra sam-
starfsmanna og samnemenda frá
Arnhem.
„Ég er nýkomin frá Hollandi þar
sem ég var að semja með svissnesk-
um dansara, dúettverk sem við ætl-
um að sýna í Sviss seinna í sumar. Þar
áður var ég að dansa með Pars Pro
Toto Kompaníinu, við fórum meðal
annars til Stuttgart og dönsuðum þar
verk eftir Láru Stefánsdóttur. Næst fer
ég til Ísrael og dansa í Tel Aviv með
tveimur skólasystrum mínum sem
útskrifuðust með mér úr skólanum í
Arnhem.“
Saga var ekki há í loftinu þegar
hún byrjaði í ballettnámi en fór ekki
að stunda dansnám af alvöru fyrr en
hún var orðin átján ára.
„Á unglingsárunum þótti ballett-
inn kannski ekki nógu töff lengur. En
þegar ég var átján ára fór ég að læra
við nýstofnaða nútímadansdeild við
Listadansskóla Íslands og hellti mér
út í nútímadansinn. Ég hafði það auð-
vitað alltaf á bak við eyrað að verða at-
vinnudansari en gerði mér jafnframt
grein fyrir því að í dansheiminum er
hörkuslagur og mikil samkeppni. En
einhvern veginn leiðist maður alltaf
áfram, eitt leiðir af öðru og ég er enn-
þá að,“ segir Saga lítillát.
Klassískur dans og nútímadans
Saga segist hætt að læra í bili en
bendir á að það sé eins með dansinn
og aðrar listgreinar, dansnámið sé í
rauninni endalaust nám.
„Eins og er hef ég nóg að gera. Mér
finnst frábært að starfa sem „free-
lance“ dansari, eins og ég geri núna,
og taka þátt í mörgum og ólíkum verk-
efnum. Með því móti fæ ég að kynnast
svo mörgu og öðlast dýrmæta reynslu.
Ég er nýbúin að stofna danskompaní
ásamt Margréti Bjarnadóttur dansara
og við ætlum að sýna verk á Reykja-
vík Dance Festival sem verður haldið
í Reykjavík í ágúst. Við Margrét semj-
um þetta verk saman og í verkinu
erum við að fást við skrímsli.“
Saga er frjór dansahöfundum og
ég spyr hana hvort hugmyndir að nýj-
um dansi séu fljótar að kvikna. Hún
svarar því svo til að hugmyndirnar
taki sér oft góðan tíma að fæðast og
gerjast í kollinum á henni áður en
eitthvað verður úr þeim.
„Það er oft erfitt að koma sér og
verkum sínum á framfæri en ég gæti
trúað því að það eigi við um allt sem
maður tekur sér fyrir hendur. Auð-
vitað þarf maður alltaf að hafa fyrir
hlutunum og ég er alls ekki að segja
að það sé einhver tortúr að komast
áfram í dansheiminum. Maður tekur
bara því sem að höndum ber.“
Aðspurð segist Saga ekki eiga sér-
stakt uppáhaldshlutverk en segist
samt hafa getað hugsað sér að vera
ballerína á rómantíska tímabilinu í
byrjun síðustu aldar.
„Ég hefði viljað dansa deyjandi
svaninn í Svanavatninu og farið alla
leið. En tímarnir breytast og klassíski
ballettinn er ekki endilega eftirsótt-
astur í dag.“
Sloppið við meiðsli
Dansinn krefst mikilla líkamlega
átaka og margir dansarar hafa lokið
dansferlinum vegna meiðsla. Saga
segist hafa verið ótrúlega heppin
að því leytinu til.
„Ég hef verið ótrúlega lánsöm.
Það er nauðsynlegt að læra á sjálf-
an sig, þekkja sín takmörk og vita
hvernig maður á að fara með sig.
Lykilatriðið er að yfirkeyra sig ekki.
Ég æfi mig daglega, það verða
dansarar að gera til þess að við-
halda kraftinum og lönguninni til
þess að dansa. Um leið og maður
dettur úr formi verður maður lat-
ur og missir metnaðinn. Ég reyni
líka að passa mataræðið þannig að
mér líði vel og fái nóg af vítamínum
í kroppinn.“
Framtíð Sögu líkist óskrifuðu
blaði sem eflaust á eftir að fyllast af
spennandi tækifærum.
„Ég gæti vel hugsað mér að fara
aftur til Hollands og starfa þar. En
það er ýmislegt í stöðunni og hér
heima á Íslandi er ýmislegt að lifna
við í dansinum,“ segir Saga að lok-
um.
Ungir Íslendingar eru að gera það gott út um allan heim á mörg-
um og ólíkum sviðum. Saga Sigurðardóttir, nýútskrifaður dans-
höfundur frá danshöfundabraut Listaháskólans í Arnhem í Hol-
landi er frábær fulltrúi þessa hóps.
Mikil saMkEppni
Í danshEiMinuM
Áframhaldandi góðviðri
„Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eiga
margir hverjir ekki orð yfir veðurblíð-
una sem verið hefur sunnan- og vest-
anlands dag eftir dag,“ segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur. „Það
er þekkt frá Norðurlöndum að eftir
góðviðriskafla verði fólk mjög kröfu-
hart á veður. Þannig veit ég að Osló-
arbúum þykir eftir nokkur væn sumur
að undanförnu ekki vera sumardag-
ur nema þegar hitinn er búinn að ná
25 stigum með sólskini allan daginn.
Ein skúr eða bara 20 stiga hiti veldur
þannig vonbrigðum.“
Nú stefnir í dálitla vætu á land-
inu, loksins segja sumir, meðal ann-
ars bændur og stangveiðimenn. Að-
faranótt laugardagsins gæti
rignt víða um land þó í litlu
magni og yfir laugardaginn
sunnanlands. Það hlýnar
og sums staðar sést til sól-
ar fyrir norðan og austan.
Þar við sjávarsíðuna hefur
nefnilega verið ansi hreint
napurt að undanförnu. Á
höfuðborgarsvæðinu
svo og vestanlands má
gera ráð fyrir að verði úrkomulaust á
laugardag, að mestu skýjað og sæmi-
leg hlýindi. Á sunnudag er síðan að sjá
að það rofi til um mikinn hluta lands-
ins og ætti sólin að sýna sig allvíða.
Þó er gert ráð fyrir að skýjað verði
syðst og einhverjar skúrir á Suður-
og Suðausturlandi. Fremur hlýtt í
veðri og ætti hitinn að ná 20 stig-
um þar sem sólin nær að ylja. Fyrir
felli- og hjólhýsaeigendur er það
mikilvægast þó að vindur
verði hægur á landinu
báða dagana.“
Í dag Á morgun
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
+124
+117
xx
+15
4
xx
xxxx
+16
4
xx
+11
4
+11
7
+16
4
xx
xx
xx
xx
xx
+13
7
xx
xx
xx
+131
+134
-xx
Saga Sigurðardóttir frí og frjáls
og ferðast dansandi um heiminn.