Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 19
DV Fréttir föstudagur 27. júlí 2007 19
Sýrlenskir hermenn
Egyptar og Sýrlendingar náðu árangri í fyrstu en töpuðu að lokum.
InnráSIn í Líbanon
Herskáir Palestínumenn í PlO fluttu starfsemi sína frá jórdaníu til
líbanon árið 1970 þegar Hussein jórdaníukonungur rak þá úr landi.
Eftir þetta notuðu þeir líbanskt landsvæði til æfinga og sem stökkpall
fyrir árásir á ísrael.
ísraelsher réðist á flóttamannabúðir og staði þar sem PlO var talið
hafa starfsemi í suður-líbanon og Beirút í júní 1982. upphaflega
sögðust ísraelskir ráðamenn ætla hernum að hreinsa fjörutíu
kílómetra breitt svæði af PlO-mönnum til að koma í veg fyrir árásir
þeirra á ísrael. Herinn lét hins vegar ekki staðar numið heldur sótti
lengra inn í ísrael þar til herinn var kominn að Beirút, höfuðborg
landsins. Þá höfðu ísraelar barist við herskáa Palestínumenn og
sýrlenska herinn en sýrlendingar hafa löngum haft mikil áhrif í
líbanon. Bardögum lauk eftir tíu vikur með komu erlendra friðar-
gæsluliða. PlO varð hins vegar að flytja sig um set og voru höfuð
Hermenn í bardaga
Ísraelar voru fordæmdir fyrir aðgerðir sínar í Líbanon.
stöðvarnar fluttar til túnis. ariel sharon, síðar forsætisráðherra ísraels,
var varnarmálaráðherra. Hann hefur löngum verið sakaður um að
hafa borið ábyrgð á fjöldamorðum í flóttamannabúðum Palestínu-
manna eftir að innrásinni lauk.
1987–1993 og 2000
UppreISn paLeStínUmanna
Palestínumenn risu upp gegn ísraelum í desember 1987. íbúar í
jabala á gaza réðust gegn ísraelskum hermönnum eftir að fjórir
palestínskir verkamenn létust þegar ísraelskur vörubíll keyrði á tvo
bíla fulla af verkamönnum. Óeirðirnar breiddust út og náðu fljótt til
byggða Palestínumanna um allt hernumda svæðið. Átökin stóðu yfir
fram til ársins 1993 þó nokkuð hafi dregið úr þeim síðari árin. tæplega
1.200 Palestínumenn og 160 ísraelar létust í átökunum. Þar að auki
féllu um þúsund Palestínumenn fyrir hendi landa sinna sem grunuðu
þá um að vinna með ísraelum.
seinni uppreisn Palestínumanna hófst í september 2000. spennan var
að magnast í samskiptum ísraela og Palestínumanna þegar ariel
sharon, sem þá var utan stjórnar, heimsótti Musterishæð degi eftir að
ísraelskur hermaður var myrtur. Nokkur átök brutust út. Næsta dag
brutust út óeirðir og ísraelskir hermenn skutu fimm Palestínumenn til
bana. Eftir þetta stigmögnuðust átökin. Palestínumenn gerðu margar
mannskæðar árásir á óbreytta borgara og ísraelsher svaraði af hörku.
Herskáir palestínumenn
Fjöldi óbreyttra ísraelskra og
palestrínskra borgara hefur
látið lífið.
Óslóarsamkomulagið Yitzhak rabin og Yasser
arafat undirrituðu samkomulagið fyrir hönd ísraela
og Palestínumanna.