Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 8
föstudagur 27. júlí 20078 Fréttir DV
Fimmtíu talíbanar létu lífið í aðgerðum sameinaðs herliðs Nato og Afgana:
Upplausn í Afganistan?
Uppreisnarmenn talíbana í Afg-
anistan halda uppi harðri mót-
spyrnu. Fimmtíu uppreisnarmenn
létust í tólf klukkutíma bardaga við
herlið Nato og Afgana í gær. Ráða-
menn óttast upplausnarástand.
Bardagarnir fóru fram rétt norð-
ur af þorpinu Qal‘eh-ye Gaz nálægt
því svæði sem talíbanar eiga mestan
stuðning. Áhlaup Nato-hermanna
Afgana er hluti af aðgerðinni „Ham-
ar“ sem er ætlað að binda endahnút-
inn á mótspyrnu talíbana á svæð-
inu. Í áras sinni notuðust hermenn
Nato meðal annars við herflugvélar
sem beindu aðgerð sinni að sextán
afdrepum uppreisnarmanna sem
svöruðu með sjálfvirkum vopnum og
handsprengjum.
Engir borgarar féllu í árásinni að
sögn Nato, en 160 uppreisnarmenn
hafa látið lífið síðan á sunnudag eftir
að aukinn þungi var settur í aðgerðir
sameinaðs herliðs Nato og Afgana.
Í febrúar hertóku þrjú hundruð
herskáir talíbanar þorp á svæðinu
í snöggu áhlaupi og eru núverandi
aðgerðir liður í því að brjóta mót-
spyrnuna á bak aftur. Skömmu eftir
áhlaupið féll „aðal“ leiðtogi talíbana
á svæðinu og samkvæmt fregnum
úr herbúðum Nato er búist við því
að sigur vinnist í orustunni innan
skamms.
Erfiðlega hefur gengið að ná
stöðugleika á svæðinu og hafa tals-
menn Nato og Tony Blair, nýskip-
aður sendifulltrúi friðarumleitana í
Mið-Austurlöndum, lýst yfir áhyggj-
um af ástandinu. Þeir telja afganska
lögreglu ekki hafa notið nægra æf-
inga til að halda aftur af uppreisn-
armönnum og telja möguleika á því
að upplausnarástand skapist, líkt því
sem er í Írak. vidar@dv.is
Leyniskytta Nato-hermaður skýtur á uppreisnarmenn.
Flóðbylguvið-
vörun í Indónesíu
Sterkur jarðskjálfti sem átti
upptök sín við norðausturströnd
Indónesíu leiddi til þess að
stjórnvöld gáfu út flóðbylgjuvið-
vörun.
Mikill ótti greip um sig á
svæðinu og fólk rauk út úr bygg-
ingum í borgunum Muluku og
Sulawesi. „Við fundum sterkan
titring í mínútu og fólk hljóp út
úr byggingum. Börn grétu og
mæður þeirra öskruðu en það
urðu engar skemmdir á svæð-
inu,“ sagði George Rajola, einn
íbúa á svæðinu.
Sterkur neðansjávarjarð-
skjálfti leiddi til flóðbylgju þar
sem 130 þúsund manns týndu
lífi í Indónesíu í desember árið
2004.
Sekur um
sjálfsfróun
Fangi í Flórída var dæmd-
ur til sextíu daga fangelsisvist-
ar aukalega ofan á tíu ára dóm
fyrir að stunda sjálfsfróun í klefa
sínum.
Hann var ákærður eftir að
kvenkyns fangavörður varð vitni
að athæfi mannsins þar sem
hann var í klefa sínum.
Verjandi í málinu spurði
fangavörðinn, sem var eina vitn-
ið að atvikunu, hvort hún hafi
íhugað að kalla á liðsauka til
þess að halda aftur af mannin-
um. Hún svaraði því til að hún
hefði betur gert það.
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Amman fyrir-
skipaði morð
Bachan Athwal, sjö-
tug amma og móðir sextán
barna, fyrirskipaði syni
sínum að gera út af við eig-
inkonu sína Surjit Athwal,
starfsmann á Heathrow-flug-
velli.
Ástæðan var sú að Surjijn
hélt framhjá eiginmanni
sínum og það þótti þeirri
„gráhærðu“ óviðunandi.
Surjit sást síðast á lífi í brúð-
kaupsferð sinni á Indlandi í
desember árið 1998. Amman
Bachan montaði sig síðar við
aðra fjölskyldumeðlimi að
hafa komið Surjit fyrir katt-
arnef, en var svikin af einum
þeirra sem kjaftaði frá. Sú
gamla var dæmd fyrir aðild
að morðinu ásamt Sukhdave,
eiginmanni Surjit, sem talinn
er hafa framið verknaðinn.
Dag hvern eykst flóttamannastraumur frá Írak um þúsundir manna. Neyðarástand
ríkir að sögn yfirvalda í Írak. Nágrannaþjóðirnar eru að yfirfyllast af flóttamönnum
en aðrar þjóðir heims eru tregar til að taka við fólki.
Ekk-
ert lát er á ofbeldi í Írak og um
fimmtíu þúsund manns flýja
stríðsástandið í hverjum mánuði.
Algjört neyðarástand ríkir og ná-
grannaþjóðirnar geta ekki tekið
við mikið fleirri flóttamönnum.
Evrópuþjóðir og Bandaríkin eru
treg til að taka við flóttamönnum
frá Írak.
Yfir tvær milljónir manna hafa
yfirgefið Írak síðan Bandaríkja-
menn réðust þar inn árið 2003.
Slíkt ógnarmagn fólksstreymis frá
landinu hefur leitt til þess að ná-
grannalöndin eru að yfirfyllast og
stjórnvöld í Jórdaníu og Sýrlandi
segjast einfaldlega ekki hafa burði
öllu lengur til að taka á móti fleira
fólki. Ónefndur talsmaður flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna segir að rótleysi svo margra
flóttamanna ógni stöðugleika út
fyrir landamæri Íraks, en ekki hafa
svo margir flúið sama landið síð-
an hundruð þúsunda yfirgáfu Pal-
estínu í kjölfar stofnun Ísraelsríkis
árið 1948.
Neyðarástand
„Það er skylda okkar sem horf-
um á vandamálið í víðara sam-
hengi til þessa að átta okkur á því
að hér er um að ræða neyðar-
ástand vegna mannlegrar þjáning-
ar,“ sagði Muhammad Hajj Hmud
aðalritari utanríkisráðuneytis Íraks
á ráðstefnu sem fulltrúar Banda-
ríkjanna, Bretlands og Sameinðu
þjóðanna sóttu fyrir skömmu.
Ráðamenn í Sýrlandi og Jórd-
aníu eru uggandi yfir ástandinu
og vilja sjá einhverja tryggingu fyr-
ir því að flóttamenn frá Írak muni
halda þangað aftur eftir að um
hægist. Um 1,4 milljónir flótta-
manna dvelja í Sýrlandi en um 750
þúsund eru í Jórdaníu en einnig
dvelja þúsundir í Egyptalandi og
Líbanon. Yfirvöld í Sýrlandi segja
veru flóttamanna landinu kosta
konungsríkið um einn milljarð
Bandaríkjadala árlega.
Aðbúnaður flóttamanna er
slæmur. Einungis lítill hluti barna
fær menntun og heilbrigðisþjón-
usta er af skornum skammti. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa þegar reynt
að bregðast við ástandinu með því
að auka peningaframlag sitt um
eitt hundrað tuttugu og þrjár millj-
ónir Bandaríkjadala eða um 7,4
milljarða íslenskra króna til þess
að hjálpa flóttamönnunum um
læknisaðstoð og afdrep til hvílu.
Aðeins lítill hluti fær aðgang
að Evrópu
Flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna er vongóð um
að finna tuttugu þúsund Írökum
framtíðarheimili fyrir lok ársins.
Þjóðir heims eru hins vegar treg-
ar til þess að taka við flóttamönn-
um. Stjórnvöld í Bandaríkjunum
tilkynntu nýlega að þau hygðust
bjóða sjö þúsund Írökum að dvelj-
ast í landinu, en sökum strangrar
innflytjendalöggjafar hafa einung-
is eitt hundrað þrjátíu og þrír feng-
ið dvalarleyfi á undanförnum níu
mánuðum.
Svíar eru duglegir að taka við
flóttamönnum og af tuttugu og
tvö þúsund og tvö hundruð Írök-
um sem komu til Evrópu á síðasta
ári, kom nær helmingur, eða átta
þúsund níu hundruð og fimm-
tíu til Svíþjóðar. Í Svíþjóð búa um
níu milljónir íbúa og því er hlut-
fall erlendra flóttamanna hátt í
landinu og það er stjórnvöldum
þungur fjárhagslegur baggi. Inn-
flytjendaráðherra Svíþjóðar Tobi-
as Billstroem hvatti aðrar Evrópu-
þjóðir til þess að deila ábyrgðinni
og taka á móti fleiri flóttamönnum
á ráðstefnu um innanlandsmál í
Evrópusambandinu í apríl. Hing-
að til hefur lítið breyst í þeim efn-
um og engar blikur á lofti um að
stjórnvöld í Evrópu hyggist breyta
innflytjendastefnu sinni á þessum
róstutímum.
ViðAr GuðjóNssoN
blaðamaður skrifar: vidar@dv.is
Á faraldsfæti Þúsundir taka föggur
sínar og flýja írak dag hvern.
MILLJÓNIR FLÝJA
OFBELDI Í ÍRAK
sefur utandyra ungur drengur
hvílir sig eftir erfitt ferðalag.