Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 48
föstudagur 27. júlí 200748 Helgarblað DV
Umsjón: Sigga Ella og Ása Ottesen. Netfang: tiska@dv.is
Tíska UndirstrikUm aUgUn louis Vuitton lagði áherslu á að förðunin ætti að vega vel á móti fatnaðinum. Hann sagðist vilja förðun sem er frjálsleg, fersk og sterk. Það er semsagt postulínshúð með smávegis af ljósu jafnvel bleiku glimmerpúðri á kinnbeinin. síðan er það blautur augnlitur á augun sem gerir línurnar hvass-ar og sterkar. Blautur augnblýantur er greinilega alveg málið.
Star Wars-stjarnan
Natalie Portman bræddi mann fyrst fyrir alvöru sem smástelpan í myndinni léon og hefur svo ekkert stoppað
síðan. Hún er draumastúlka margra, enda hvað er hægt að biðja um meira, léon-stelpuna og síðan star Wars-
gelluna. Þessi blanda er stórkostleg með meiru.
HeimasíðU-
kóngUrinn
Nafn? „lydía grétarsdóttir.“
Hvað ertu að gera? „Ég er nem-
andi á 2. ári í tónlistardeild listahá-
skóla íslands að læra um nýmiðla. í
sumar er ég svo skiptinemi í Berlín
og er bara að njóta lífsins í sólinni
og reyna að læra þýskuna.“
Í Reykjavík er best að vera...?
„...vel klæddur og hress.“
Hverju mælir þú með? „að fólk
skelli sér til Berlínar í sumar!
Ódýrt, hlýtt, fallegt og yndislegt.“
Heimasíða vikunnar?
„Meltfestival.de.“
geggjaðir skór
Vá, hvað skórnir hjá Moschino
eru ótrúlega flottir. að sjálfsögðu
eru hælarnir rosalegir en hvað
um það ef þeir eru svona flottir.
Hann er einnig með lakkskó,
mjög fallega í rauðum, bláum og
svörtum en þessir eru til að gera
mann vitlausan.
Fallegar flíkur og frábær kjör
Fallegar flíkur, skór og aðrir fylgihlutir er nokkuð sem maður á aldrei nóg af. Þessa dagana eru útsölur úti um allan
bæ og því um að gera að kaupa flíkina eða hlutinn sem þig langaði svo mikið í en var áður bara aðeins of dýr.
gleðidagar
í kronkron
Núna er um að gera að drífa sig
niður á Vitastíg og gramsa eftir
gersemum í Kronkron. Það eru
ekki venjulegir dagar núna held-
ur gleðidagar sem þýðir afsláttur
af hinu og þessu. Það er 20% af-
sláttur af sumarvörum og eldri
vörur eru með allt að 50% afslátt.
Vá, já ég er að segja það satt. Ekki
nóg með að það eru yndislegir
prísar á yndislegu dóti heldur er
von á nýju vörunum. Nýju vör-
urnar eru ekki af verri endanum
og má þar nefna dýrindisfatnað
frá Marc jacobs. Ekki hanga og
bíða heldur út núna að versla.
trílógía, 12.300 kr.
trílógía, 6.900 kr.
Nakti apinn, 11.900 kr.
rokk og rósir, 1.450 kr.
Nakti apinn, 16.900 kr.
Nakti apinn, 11.900 kr.
HHH
trílógía, 13.900 kr.
Kron skóverslun, 15.990 kr.
rokk og rósir, 1.950 kr.
rokk og rósir, 3.600 kr.
rokk og rósir, 1.750 kr.