Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 56
föstudagur 27. júlí 200756 Helgarblað DV
TónlisT
Hljómsveitin lada sport ætlar að kynna
nýútkomna plötu sína, time and time again,
í verslun skífunnar á laugavegi á laugardag-
inn. „Þetta eru ekki útgáfutónleikarnir okkar,
þeir verða ekki fyrr en í september býst ég
við þar sem við erum allir að fara eitthvað til
útlanda að leika okkur í ágúst. tónleikarnir á
laugardaginn eru bara rokkveisla sem byrjar
á slaginu fjögur,“ segir Haraldur leví
gunnarsson, trommuleikari hljómsveitarinn-
ar. „Platan kom út níuna júlí og hefur fengið
ágætis dóma og mjög góðar viðtökur frá
hlustendum og útvarpsstöðvum. lagið
okkar the World Is a Place for Kids going far
var í toppsætinu á reykjavík fM í þrjár vikur.“
alls eru fjórir meðlimir í bandinu en auk
Haralds eru það þeir friðrik sigurbjörn
friðriksson, sem spilar á bassa, jón Þór
Ólafsson, sem spilar á gítar og syngur, og
stefnir gunnarsson sem einnig spilar á gítar
og syngur. Þeir fengu þó marga góða gesti
til að leggja sér lið á plötunni. „ívar schram úr
Original Melody rappar eitt lag á plötunni
sem er geggjað og svo eru nokkrir
gestahljóðfæraleikarar.“ lada sport hefur
verið starfandi frá árinu 2002 en time and
time again er fyrsta breiðskífa sveitarinnar
til þessa. „Við gáfum út eina heimatilbúna
EP-plötu í tvö hundruð eintökum árið 2004.
Nú er planið svo bara að halda tónleikana á
laugardag og svo verðum við á sunnudag-
inn í Hljómalind ásamt Bob og Coral. svo
ætlum við að reyna að fara með plötuna út
en við eigum bara engan pening eins og er,“
segir Haraldur að lokum og hvetur sem
flesta til að mæta á laugardaginn.
Kurr í
Q-tímaritinu
í nýjasta tölublaði tónlistartímaritsins Q
magazine eru fyrstu breiðskífu íslensku
sveitarinnar amiinu, sem nefnist Kurr,
gefnar þrjár stjörnur af fimm sem
verður að teljast nokkuð fínt fyrir
frumraun. Þar er minnst á að stelpurnar
hafi túrað með sigur rós en þær séu þó
ekki jafn rólegar og sigur rós heldur
megi maður búist við því að þær taki
allt í einu upp sög sem þær byrji að
spila á eða strjúki létt yfir vínglös til að
mynda hljóm. í umsögninni er
sérstaklega mælt með því að hala niður
laginu Hilli. Kurr hefur alla jafna fengið
góða dóma og gefur til að mynda
tímaritið Crud plötunni fimm stjörnur.
Tónlistarakademía DV segir:
Hlustaðu á þessar
Kurr með amiinu
single drop með single drop
sound Of silver með lCd soundsystem
War stories með uNKlE
Cubism með Pet shop Boys
Þrennan
hrynur
destiny‘s Child er nú orðið sannkallað
hrakfallatríó en nú hafa allir meðlimir
sveitarinnar lent í einhverju klaufalegu
á tónleikum. fyrst rann Michelle
Williams út af sviðinu meðan hún
marseraði við lagið soldier árið 2005.
síðan hrundi Kelly rowland niður
sökum ofþreytu á sviði fyrr í mánuðin-
um og í fyrradag hrundi svo sjálf
drottningin, Beyoncé. Hún arkaði niður
stiga í síðkjól á sviðinu en hrundi svo
og rúllaði niður restina af honum.
Beyoncé óskaði þó eftir því að enginn
setti myndir inn á vefinn en það fór
ekki betur en svo að myndbandi af
hruninu var skellt á Youtube strax að
tónleikum loknum.
Klikkaður hraði
Metallica vinnur nú hörðum höndum við
gerð nýrrar plötu og að minnsta kosti
einn aðili utan bandsins hefur heyrt það
sem koma skal en það var Matt sorum,
trommuleikari í Velvet revolver, og lýsir
hann sinni upplifun á lögunum á
þennan veg:
„las er góður
vinur minn og
leyfði mér að
heyra demó.
Það eina sem
ég hafði að
segja var bara
masterið
þennan skít og gefið þetta út. Þetta var
algjör klikkun, átta mínútna löng og
skuggalega hröð lög. Ég sagði við las að
þótt maður ætti ekkert að hægja á sér
við að eldast þyrfti maður samt ekki að
spila hraðar.“ Metallica hyggst einnig
spila allt beint inn á plötuna en ekki
notast við tölvutækni og samplera til að
auðvelda sér upptökur.
Rokkveisla í Skífunni
Tilkynnt var í gær hvaða hljómsveitir munu
koma til með að spila á stórtónleikum sem fram
fara á Miklatúni á menningarnótt, 18. ágúst.
Tónleikarnir verða tvískiptir og hefjast þeir fyrri
klukkan 16 og standa yfir til 18. Eftir það verð-
ur gert tveggja tíma hlé svo fólk geti farið heim
að borða og klætt sig í hlýrri föt. Tónleikarnir
hefjast síðan að nýju klukkan 20 og standa yfir
til 22.30. Þær hljómsveitir sem koma fram fyr-
ir hlé eru Ljótu hálfvitarnir sem sigruðu í Sjó-
mannalagakeppni Rásar 2 fyrr á árinu með lag-
inu Sonur hafsins, sem mikið hefur verið spilað
upp á síðkastið, Ampop, Pétur Ben. Mínus kem-
ur fram í nýrri mynd en í dag eru Mínus-liðar
orðnir fjórir og verður þetta í fyrsta skipti sem
sveitin spilar fyrir slíkan fjölda í breyttri mynd.
Að lokum spilar hljómsveitin Vonbrigði sem út-
varpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson á Rás
2 lýsir sem stærsta óuppgvötvaða leyndarmáli
landsins í dag.
Tónleikarnir hefjast svo aftur klukkan átta og
eru þær ekki síðri hljómsveitirnar sem þá munu
stíga á svið: Sprengjuhöllin, sem á vinsælasta
lag ársins hingað til, færeyska söngkonan Eivör
Pálsdóttir ásamt hljómsveit en sérstakur Fær-
eyjavinkill verður tekinn á menningarnótt í ár
og mikið um gesti frá Þórshöfn, Á móti sól með
rokkstjörnu þjóðarinnar Magna í fararbroddi,
Megas og hljómsveit hans sem hann kallar
Senuþjófana og að lokum er það svo ein ástsæl-
asta hljómsveit þjóðarinnar Mannakorn ásamt
Ellen sem binda enda á dagskrána. Eftir það
er nægur tími fyrir tónleikagesti að rölta niður
að höfn þar sem dagskrá menningarnætur lýk-
ur með stórglæsilegri flugeldasýningu. Að sögn
Óla Palla verða tónleikarnir byggðir upp eins og
á almennilegri tónlistarhátíð þar sem allir ættu
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og hér er
svo sannarlega um að ræða sanna fjölskyldu-
skemmtun.
Landsbankinn hefur verið stór þátttakandi í
menningarnótt frá upphafi og boðið upp á glæsi-
lega dagskrá fyrir utan höfuðstöðvar sínar í Aust-
urstræti undanfarin ár. Dagskráin hefur hins veg-
ar farið ört stækkandi og á síðasta ári var bugðið á
það ráð að skella upp aukasviði á Laugaveginum
til að koma öllum þeim glæsilegu tónlistaratrið-
um fyrir á sem þægilegastan hátt. Rás 2 stóð hins
vegar fyrir stórtónleikum á Miðbakka Reykjavík-
urhafnar árið 2003 en þangað mættu um sjötíu
þúsund manns sem gerir þá tónleika að stærstu
tónleikum Íslandssögunnar hingað til. Árin 2004
og 2005 var leikurinn síðan endurtekinn en eftir
eins árs hlé árið 2006 hefur útvarpsstöðin tekið
höndum saman við Landsbankann og Reykja-
víkurborg og standa þessir aðilar nú fyrir þess-
um stórtónleikum á Miklatúni. krista@dv.is
Hljómsveitin Lada sport ætlar að kynna nýútkomna plötu sína, Time
and Time Again, í verslun Skífunnar klukkan fjögur á laugardaginn:
Lada sport gaf út plötu í júlí.
Á menningarnótt, 18. ágúst, verða haldnir stórtónleikar á Miklatúni þar sem margar
af þekktari hljómsveitum landsins munu troða upp. Má búast við að hér séu á ferðinni
einir stærstu tónleikar Íslandssögunnar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
ELLEFU HLJÓMSVEITIR
Á MIKLATÚNIViggó Árnason, Sif Gunnarsdóttir og Ólafur Páll Gunnarsson kynntu glæsilega dagskrá menningarnætur á Kjarvalsstöðum í gær.