Kjarninn - 29.08.2013, Blaðsíða 35
Rafmagnað
ævintýri Tesla
Bílar
Magnús Halldórsson
magnush@kjarninn.is F
yrsta útgáfan af Tesla Model S rafmagnsbílnum,
sem vakið hefur mikla athygli alþjóðlega að
undanförnu, kom til landsins um síðustu helgi.
Tólf bílar hafa þegar verið seldir hér á landi, en
verðmiðinn er frá 12 milljónum króna. Það er
Even hf. sem flytur bílana inn.
Tesla-fyrirtækið var stofnað árið 2003 og unnu þá verk-
fræðingar að því að búa til rafmagnsbíl sem hefði alla eigin-
leika venjulegs bíls sem gengi fyrir olíu, og helst gott betur.
Tæpum fimm árum síðar kom Tesla Roadster á markað og
strax í kynningum var honum vel tekið. Þrátt fyrir við-
sjárverða tíma á mörkuðum þegar bíllinn var kynntur, og
ekki síst í bíla iðnaðinum í Bandaríkjunum, byggðist upp
mikill spenna meðal fjárfesta. Var þarna loksins kominn
trú verðugur rafmagns bíll fyrir venjulegt fólk? Viðbrögð
fagtímarita í bílaiðnaði voru nær öll á eina leið; já. Tesla
gæti verið bíllinn sem breytir bílaiðnaðinum varanlega.
Hefur styrkst verulega
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að fyrsti bíllinn
kom fram. Mikil eftirspurn hefur verið eftir bílnum um
allan heim en Elon Musk, forstjóri, stjórnarformaður og
stofnandi Tesla, hefur lagt á það áherslu í viðtölum að
fyrirtækið þurfi ekki að flýta sér. Bílarnir séu það góðir að
enginn þurfi að óttast að þetta sé rafmagnsbíll sem ekki geti
keppt við aðra bíla. Undanfarin misseri hefur Tesla styrkt
stöðu sína verulega á bílamarkaði, ekki síst vegna góðra
dóma í fag tímaritum og á bílasýningum. Þannig var Tesla
Model S kjörinn bíll ársins fyrr á þessu ári hjá Motor Trend
og í Consumer Report var talað um bílinn sem einfaldlega
þann besta sem völ væri á.
Allt hefur þetta ýtt undir væntingar um að Tesla-bílarnir
muni hafa mikil áhrif og ýta við risunum í bílaiðnaði þegar
kemur að því að framleiða rafmagnsbíla. Enginn er enn
kominn fram með eins spennandi rafmagnsbíl á markað
og ljóst er að Tesla er með þó nokkuð forskot. Tesla Motors
hefur þegar gert samninga um vélbúnað og rafhlöðutækni
við stóra bílaframleiðendur, meðal annars Mercedes-Benz
og Toyota, sem bæði eru meðal hluthafa í Tesla.