Kjarninn - 19.12.2013, Blaðsíða 38
02/08 kjarninn ViðTaL
m
argrét Tryggvadóttir var algjörlega óþekkt
þegar hún varð skyndilega þingmaður fyrir
Borgarahreyfinguna eftir kosningarnar 2009.
Kjörtímabilið sem hún sat á Alþingi í kjöl-
farið var líkast til eitt það sögulegasta, og án
nokkurs vafa það róstusamasta, sem liðið hefur.
Hún segir að í Borgarahreyfingunni, sem síðar klofnaði
meðal annars í Hreyfinguna, áður en brotin sameinuðust
að lokum, með öðrum og án sumra, í Dögun fyrir síðustu
kosningar, hafi reiðasta fólk á Íslandi sameinast. „Það var
ótrúlegt að taka þátt í þessu. Ég datt eiginlega inn í þetta
framboð af götunni nokkrum vikum fyrir kosningarnar 2009.
Ég tók ekki þátt í undirbúningsstarfinu, heldur skráði mig til
þátttöku á netinu og mætti síðan á einn fund. Ég þekkti heldur
engan á fundinum. Kannaðist ekki einu sinni við neinn. Mér
og öðrum sem mættum þarna var síðan rétt blað og við vorum
beðin um að skrifa í hvaða sæti við gætum hugsað okkur
að setjast. Ég var sjálfstætt starfandi og hugsaði að ég gæti
alveg tekið einhverjar þrjár vikur og lagt þessari baráttu lið.
Upphaf lega ætlaði ég að sækjast eftir öðru til fimmta sæti,
sem hefði aldrei skilað mér inn á þing. Svo leist mér ekkert vel
á þann sem talaði þar og átti að vera oddviti í mínu kjördæmi.
Þess vegna skrifaði ég fyrsta sætið eða ekkert á blaðið.“
Ein stysta leið sem farin hefur verið að þingsæti
Margrét segir að þetta hafi verið nóg til að verða oddviti í fram-
boði til Alþingis. Hún hélt reyndar að hún þyrfti að bjóða sig
fram í því kjördæmi sem hún býr í, sem er Suðvesturkjördæmi,
en svo reyndist ekki vera. Þannig endaði Margrét sem oddviti
í Suðurkjördæmi. „Kosningastjórinn setti mig í þetta fyrsta
sæti eftir að hafa talað við mig þrisvar sinnum. Ákvörðunin var
reyndar samþykkt af félagsfundi í kjördæminu, en ég mætti
ekkert á þann fund og fundarmenn höfðu því ekkert hitt mig.
Ég var á skíðum á Akureyri þegar hann fór fram.“
Í kjölfarið fylgdi snörp þriggja vikna kosningabarátta þar
sem Margrét fór út um allt í sínu nýja kjördæmi. Hún skemmti
sér vel en var um leið fullviss um að hún myndi alls ekki lenda
viðTal
Þórður Snær Júlíusson
thordur@kjarninn.is