Kjarninn - 16.01.2014, Blaðsíða 19
03/06 Danmörk
föng, sem voru úr tré og mjög ólík kubbunum sem síðar urðu
til, þóttu vönduð og nutu mikilla vinsælda.
Árin 1939–1940 stundaði sonurinn Godtfred um nokkurra
mánaða skeið nám við Iðnaðarmannaskólann í Haslev á Sjá-
landi. Þar heyrði hann talað um nýtt undraefni: plast. Heim-
kominn sagði hann föður sínum frá þessu nýja undraefni,
sem kennararnir höfðu sagt að myndi valda byltingu. Ekkert
gerðist þó um sinn
enda heims styrjöldin
í algleymingi.
Fljótlega eftir að
stríðinu lauk keyptu
þeir feðgar, frá
Bretlandi, vél sem
hitaði plast sem
síðan var hægt að
móta. Nokkru síðar
var keypt önnur vél
sem gat mótað eða
steypt hluti. Þegar
þarna var komið
sögu var hugmyndin
um kubbana, Lego-
kubbana, að fæðast
hjá þeim feðgum.
Kubbarnir komu á markaðinn 1949 og þá fóru hjólin fyrir
alvöru að snúast; kubbarnir seldust eins og heitar lummur
og starfsfólki og vélum í verksmiðjunni í Billund fjölgaði dag
frá degi. Ole Kirk Christiansen lést árið 1958, en sonurinn
Godtfred, sem byrjaði tólf ára á verkstæðinu, var þá sestur í
forstjórastólinn.
Lego-fyrirtækið hefur alla tíð verið algjörlega í eigu
Christiansen-fjölskyldunnar; sonarsonur stofnandans tók
við forstjórastarfinu af föður sínum Godtfred (sem lést 1995)
en árið 2004 var í fyrsta skipti leitað eftir forstjóra út fyrir
fjölskylduna.
Árið 1960 voru starfsmennirnir orðnir 450 og það sama ár
Ole Kirk Christiansen
Maðurinn sem stofnaði
viðskiptastórveldi upp úr
leikfangasmíð. Hann lést árið
1958 en síðan hefur vöru-
merkið stækkað gríðarlega.