Kjarninn - 30.01.2014, Page 27
06/06 topp 5
1 Kunnuglegir tónar úr stofunni
Björk Guðmundsdóttir er
frægasti Íslendingurinn.
Hún er ekki aðeins
stærsta stjarna sem
Ísland hefur eignast
heldur er hún virt
á meðal listafólks
um allan heim fyrir
hugmyndaflug sitt,
fjölbreytta tónlist og
einstaka framkomu.
Hún hefur líka stolið
senunni á stærsta sviðinu
– svo til alls staðar – oftar
en einu sinni. Nærtækast er að
nefna þegar hún mætti í Svanakjóln-
um á Óskarsverðlaunahátíðina 25. mars
2001 en líka þegar hún flutti lag sitt Declare
Independence í Kína árið 2008 og lýsti yfir
stuðningi við sjálfstæðisbaráttu Tíbeta.
Tíbet, Tíbet! sagði hún endurtekið í upp-
klappslagi sínu. Kínversk stjórnvöld urðu
æf, enda er ritskoðun óhugnanlega mikil í
Kína samhliða öllum hinum augljósu mann-
réttindabrotunum. Í alþjóða samfélaginu
uppskar Björk virðingu fyrir kjarkinn. Hún
þorði meðan næstum allir aðrir listamenn
sem koma til Kína þegja um sjálfstæðis-
baráttu Tíbet. Á Ólympíu leikunum í Aþenu
árið 2004 var hún stærsta stjarna opnunar-
hátíðarinnar sem stór hluti íbúa heimsins
horfði á. Þá fékk Björk Gullpálmann í Cann-
es fyrir leik sinn í kvikmyndinni Dancer in
the Dark eftir danska leikstjórann Lars Von
Trier. Hún sagði aðeins „takk“ þegar hún
tók við verðlaunum sínum og yfirgaf síðan
salinn
við
dynjandi
lófatak
helstu
kvikmynda-
stjarna heimsins. Árangur
hennar mældur í seldum
plötum er ótrúlegur, ekki síst
í ljósi þess að tónlist hennar
er ekki meginstraumstónlist
sem hljómar ótt og títt á útvarps-
stöðvum. Plöturnar hafa selst í milljón-
um eintaka um allan heim og tónleikar
hennar fá iðulega frábæra umsögn. Ég man
sterkt eftir því þegar ég var skiptinemi við
Kaupmannahafnarháskóla veturinn 2003
til 2004 og gekk um ganga skólabyggingar
heimspekideildarinnar út á Amager. Innan
úr einni stofunni bárust kunnuglegir tónar;
djassmeistaraverkið Gling gló sem Björk
gaf út með tríói Guðmundar Ingólfs sonar
píanóleikara. Það voru að mestu franskir
skiptinemar sem sátu í stofunni, töluðu
saman og drukku bjór. Sumir þeirra sungu
með og kunnu íslenska textann upp á hár.
Þarna blasti við hvað Björk Guðmunds-
dóttir er þekkt og hefur haft mikinn áhrif
um allan heim.