Kjarninn - 30.01.2014, Blaðsíða 38
05/06 alÞjóðamál
smyglararnir eru tækifærissinnar
Talið berst að því hvernig hægt sé að komast frá Sýrlandi til
Svíþjóðar. „Sumir fara til Tyrklands og taka þaðan flug eða
fara með vörubíl. Sumir fara með skipi eða bát frá Egypta-
landi til Ítalíu og keyra þaðan eða fara með lest,“ segir Mona.
Hún segir þetta hættulegt ferðalag, sérstaklega ef fólk fer
sjóleiðina. „Bátarnir eru oft bara litlir fiskibátar,“ segir hún.
Lampedusa-slysið er öllum í fersku minni og þau segja að
það sé langt frá því að öll slysin rati
í fréttirnar. Magdalena segir fólk
varnarlaust í bátunum. „Það tekur
sjö daga að komast til Ítalíu og þau
eru nánast matarlaus. Það var kona
á mínum aldri sem var sykursjúk en
smyglararnir hentu farangrinum
hennar fyrir borð þannig að hún var
án lyfja. Hún lést á þriðja degi.“ Þau
hafa einnig heyrt sögur af fólki sem
var skotið eða neytt til að kasta veikum börnum fyrir borð.
Þau segja kostnaðinn gríðarlegan. „Fólk þarf að borga
smyglurunum 8.000 evrur,“ segir Mohammad. Smyglararnir
koma frá mörgum löndum „Það fer eftir því hvaðan þú vilt
fara; ef þú ert í Egyptalandi eru þeir egypskir og svo fram-
vegis,“ segir Mona. Þau segja smyglarana ekki gera þetta af
gæsku. „Þetta eru tækifærissinnar, líklega væri best að kalla
þá glæpamenn.“
frekar til líbanon en jórdaníu
Þau segja marga Palestínumenn sem flýja Sýrland reyna að
komast til Líbanon. Margir eigi ættingja þar eða þekki Sýr-
lendinga sem eigi ættingja þar. Þá séu þar palestínskar flótta-
mannabúðir á borð við Barajneh, sem margir hafi sest að í
tímabundið. Jehad segir ástandið í þeim vera orðið óboðlegt.
„Í mörgum húsum sem hönnuð voru fyrir eina fjölskyldu búa
nú þrjár.“ Þau segja mun erfiðara að fara í gegnum Jórdaníu.
Færri eigi ættingja þar og áhættan sé mikil. „Það streyma
þangað menn frá Sádi-Arabíu, Katar og Sameinuðu arabísku
„Fólk þarf að borga smyglurunum
8.000 evrur,“ segir Mohammad.
Smyglararnir koma frá mörgum
löndum „Það fer eftir því hvaðan þú
vilt fara; ef þú ert í Egyptalandi eru
þeir egypskir og svo framvegis.“