Kjarninn - 30.01.2014, Side 31

Kjarninn - 30.01.2014, Side 31
03/05 nEytEnDamál Írsku smjöri blandað í íslenskar vörur Það vakti því mikla athygli þegar spurðist út að Mjólkur- samsalan (MS), sem samkvæmt Samkeppniseftirlitinu er í ein- okunarstöðu á íslenskum mjólkurmarkaði sem er samkeppn- ishamlandi og andstæð markmiðum samkeppnis laga, hefði flutt inn um 80 tonn af írsku smjöri til að drýgja vörur hjá sér fyrir síðustu jól. Ástæðan var að ekki var nægjanlegt hráefni til að anna eftirspurn sem varð eftir vörum fyrirtækisins. Írska smjörið var notað í rifosta, rjómaosta, kökur og smurosta. Þær vörur sem því var blandað í voru ekki merktar sérstaklega, en þær eru meðal annars mikið notaðar til matargerðar. Því var ógjörningur fyrir landann að vita hvort hann væri að neyta vara sem drýgðar höfðu verið með írska smjörinu. Einar Sigurðsson, forstjóri MS, segir að þetta hafi verið nauðsynleg aðgerð vegna þess að sala hafi aukist og framleiðsla minnkað. „Í upphafi árs 2013 mátum við það svo að framleiðsla yrði um átta milljónum lítra yfir þörf á innanlands markaði. Þess vegna seldum við nokkuð af smjörbirgðum í upphafi ársins. Salan fyrstu þrjá mánuði ársins benti ekki til annars en að þessi spá myndi ganga eftir. Eftir það fór sala á fituríkari afurðum að aukast og upp úr miðju ári for sala á feitari mjólkurvörum eins og smjöri, rjóma og ostum á mikið flug. Upp úr miðju ári jókst svo samdráttur í framleiðslu. Þegar upp var staðið hafði salan aukist sem nam sex milljónum lítra og framleiðslan minnkað milli ára um 2,5 milljónir lítra. Til viðbótar kom svo salan á smjórbirgðunum í upphafi árs. Smjör- innflutningurinn var 0,06 prósent af hráefni síðasta árs.“ „Auk þess greiðir ríkissjóður himinháar fjárhæðir í styrki til mjólkurframleiðslu á hverju ári. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2014 fara 6.465 millj- ónir króna í þá á þessu ári. “ eSa Segir innfluTningSbann andSTæTT eeS Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, komst að þeirri niður- stöðu í október síðastliðnum að innflutningsbann stjórnvalda á mjólk, fersku kjöti og eggjum gengi gegn ákvæðum EES-samningsins, sem Ísland er fullgildur aðili að. Þetta kom fram í formlegu áminn- ingarbréfi sem stofnunin sendi til íslenskra yfir- valda. Bregðist þau ekki við innan nokkurra mánaða getur ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.