Kjarninn - 27.02.2014, Side 60

Kjarninn - 27.02.2014, Side 60
03/04 álit þeirra fái ekki réttláta málsmeðferð í sakamálum sem eru til rannsóknar eða komin fyrir íslenska dómstóla. Verjendurnir hafa einnig lýst þem áhyggjum sínum að dómskerfið sé ekki í stakk búið til að taka við flóknum málum sem þessum og sumir þeirra hafa ekki séð sér fært að sinna samfélagslegu hlutverki sínu sem verjendur vegna þess að þeir treysta ekki íslenskum dómstólum til að gæta grundvallarréttinda skjólstæðinga þeirra. Einnig hefur verið rætt um ætlaða þöggun fjölmiðla og ætlaða þögn fræðasamfélagsins í þessu samhengi. Þrátt fyrir ætlaða þöggun eða þögn hefur stjórn Lögmanna félagsins ályktað um þessi mál oftar en nokkur mál, í það minnsta ef tekið er mið af heimasíðunni www.lmfi. is Á heimasíðu félagsins fann ég tvær nýlegar ályktanir sem varða báðar niðurstöður dómstóla í sakamálum sem varða efnahagsbrot sem tengjast hinu svokallaða bankahruni. Annars vegar frá því í júní 2013 varðandi framlagningu gagna. Hins vegar frá því fyrr í þessum mánuði varðandi samskipti verjanda við vitni og aðfinnslur héraðsdómara í svokölluðu Al-Thani máli vegna þess, en áður hefur verið fjallað um það mál á heimasíðu Kjarnans. Tengill á um- fjöllun Kjarnans: http://kjarninn.is/stjorn- logmannafelagsins-alyktar-i-al-thani-mali Í ljósi þessa hugsaði ég að fyrst við værum svona illa stödd hlyti stjórn Lögmannafélagsins einnig að hafa ályktað oft um grunnstoðir réttarríkisins á undan- förnum árum í hinum ýmsu sakamálum. Ég fann ekki eina einustu ályktun um önnur mál. staðan í réttarríkinu íslandi Hinn 15. febrúar síðastliðinn birtist frétt á vef Morgun- blaðsins um fyrrnefndan fyrirlestur Geirs Lippestad. Í þessari frétt vakti athygli mína að sagt var frá því að að formaður Lögmannafélags Íslands hefði haldið stutta tölu áður en fyrirlesturinn byrjaði þar sem hann benti á að líkindi með máli Breiviks mætti finna í íslensku samfélagi þar sem einnig „Já, eða á ég kannski að segja hið svokallaða bankahrunsí ljósi ályktunar stjórnar Lögmanna- félags Íslands.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.