Kjarninn - 03.04.2014, Page 20
Sælir félagar.
Sl. laugardag bar það til tíðinda að forsíða MÁS-FRÉTTA (áður Mbl.) var ekki lögð undir
fréttir af „Stóra-Más-Málinu“ eins og hafði þá gerst í átta blöðum í röð.
Blaðið hefur ekki lagt átta forsíður í röð undir eitthvert eitt efni síðan í hruninu árið
2008. Þó voru þá eitthvað mismunandi áherslur og breiðari efnistök heldur en í þessu
einfalda klúðursmáli sem lögsókn Más gegn Seðlabankanum er. Sumir halda því fram að
efnahagshrunið á Íslandi árið 2008 sé jafnvel enn stærra mál en klúðrið kringum launa-
mál Más! Ljóst er að formaður bankaráðs, Lára V. Júlíusdóttir, hrl., er með allt niður um
sig í þessu máli og einnig Már. En hvers vegna er verið að fjalla um þetta tiltölulega
ómerkilega mál með því offorsi og þeirri þráhyggju sem fram kemur hjá þessum eina
fjölmiðli?
Fyrir því liggja nokkrar ástæður – og flestar eru þær frekar subbulegar:
1. Sálartetur fyrrum bankastjóra Seðlabankans er ennþá skaddað eftir að hann var
rekinn af fyrri ríkisstjórn eftir að hafa haft forystu um að gera bankann gjaldþrota upp
á 300 milljarða króna. Um það gjaldþrot hefur lítið verið fjallað í Mbl., og alls ekki hefur
þótt taka því að leggja forsíður undir slíka smámuni. Því þarf að beina athygli að öðrum
vandræðalegum málum hjá bankanum.
2. Núverandi bankastjóri er ekki nógu handgenginn ríkisstjórninni og því þarf að
tryggja að hann geti ekki sótt um. Klúðrið kringum málið er þannig að löngu ætti að vera
ljóst að hann sækir ekki um. Því ætti ekki að þurfa þessi læti – en fleira kemur til. Gengið
verður frá ráðningu tveggja þjálla manna sem annar kemur frá Framsókn og hinn frá D.
3. Það sem einnig veldur því að blaðið gengur af göflunum er að helsti eigandi þess,
Samherji, á í miklum deilum við gjaldeyriseftirlit Seðlabankans sem fór í gríðarstóra
rannsókn á gjaldeyrissvindli Samherjasamstæðunnar en það mál er nú hjá Sérstökum
saksóknara. Verði ákært í því máli og nái saksóknari fram með málatilbúnað sinn, er
hætt við að „fínir menn“ bætist við langan lista þeirra sem fá „frítt fæði og húsnæði“
hjá ríkinu á næstu missirum og árum. Það vekur ekki kátínu og veldur því að það þarf að
hefna sín grimmilega á Má sem að sjálfsögðu kemur mjög við sögu í þessari rannsókn.
Já, það er gott að eiga fjölmiðil sem þjónar lund manns ef maður á marga óvildarmenn
sem þarf að jafna um! Enda er hermt að eigendur blaðsins borgi tapið af því með glöðu
geði.
4. Spillt hugsun Framsóknar og Sjálfstæðismanna, sem mjög hefur verið gagnrýnd
og er talin hluti af orsökum hrunsins árið 2008, er enn til staðar. Helmingaskiptamórall-
inn er enn í fullu gildi. Og þá gegnir Seðlabankinn lykilhlutverki. Hjá bankanum er vistað
eignarhaldsfélag sem tekur við ýmsum eignum sem tilheyra uppgjörum eftir hrun vegna
þrotabúa og annara mála. Framundan er að þetta eignarhaldsfélag taki við krónueignum
úr þrotabúum Kaupþings og Glitnis, m.a. hlutabréfum í Arion og Íslandsbanka. Þá skiptir
miklu máli að Framsóknarmenn fái annan bankann á mjög góðu verði og handgengnir
sjálfstæðismenn hinn. Við slíkar aðstæður gengur ekki að hafa við stjórnvölinn í Seðla-
FEROERYQERRE±IRćWXVERKLIM±EVPIKEąWIRHMWZIMREJPSOOERRE 7N¢YQFEVEXMP Einhverjum kann að þykja þetta harkalegt mat. En því miður er það byggt á meiri
staðreyndum en ætla má í fyrstu. Við skulum fylgjast vel með og meta í sameiningu
hvort þessi greining mín á ekki eftir að eldast vel.
12/13 ViðSkipti
16. marS 2014