Kjarninn - 03.04.2014, Page 34
06/06 topp 5
1 ríkið verðlaunar starfsmenn landsbankans fyrir frábæra rukkun
Þegar íslenska ríkið samdi við kröfuhafa
gamla Lands bankans í desember 2009
um skiptingu eigna hans fékk ríkið 80
prósenta hlut í nýja Landsbankanum, sem
stofnaður var á rústum hins gamla. Þessi
hlutur gat hækkað umtalsvert ef vel gengi
að innheimta tvö lánasöfn, sem heita Pony
og Pegasus. Afrakstur þeirrar innheimtu
átti að renna til gamla Landsbankans og
hlutur ríkisins myndi vaxa upp að 97,9
prósentum ef endurheimtir yrðu góðar.
Afganginn, 2,1 prósent, áttu starfsmenn
nýja Landsbankans að fá í verðlaun fyrir
vel heppnaða rukkun. Steingrímur J.
Sigfússon, þá verandi fjármála ráðherra,
skrifaði undir samninginn fyrir hönd
íslenska ríkisins.
Niðurstaðan varð sú að endurheimtir
urðu með hæsta móti og starfsmennirnir
fengu umræddan hlut gefins. Miðað við
eiginfjárstöðu Landsbankans um síðustu
áramót var innra virði hlutarins um 4,7
milljarðar króna. Þeir munu fá um 144
milljónir króna í arð vegna eignar sinnar
á þessu ári og verða þar með einu starfs-
menn fyrirtækis í eigu ríkisins sem fá
greiddan arð vegna hlutabréfa sem þeir
fengu gefins.