Kjarninn - 03.04.2014, Page 41

Kjarninn - 03.04.2014, Page 41
06/08 Stjórnmál Nýhafin öld verður líka öld borganna ef að líkum lætur. Fyrir um hundrað árum bjó tíunda hvert mannsbarn í þétt- býli en gangi spár eftir munu þrír fjórðu hlutar mannkyns búa í borgum um miðja þessa öld. En þær borgir verða ekki allar sælureitir, margar samsafn yfirfullra fátækrahverfa. Offjölgun er einmitt einn manngerði vandinn enn. Taki fólk ekki í taumana mun náttúran gera það fyrir okkur, sagði David Attenborough nýlega. Hvernig mun aðþrengdum lýð ganga að búa í sátt og samlyndi? Auðvelt er að ímynda sér síaukin átök um þverr- andi auðlindir, væntanlega í nafni þjóðar eða trúar. Megi marka nýlega rannsókn gætu skortur og misskipting valdið borgarastyrjöldum, fólksflótta og samfélagsupplausn um víða veröld innan fárra áratuga. Langt er reyndar síðan lærðir menn spáðu hruni vestrænnar menningar og nú síðast hnignun Bandaríkjanna, heimsveldis okkar daga. Fólkið sjálft virðist á fallanda fæti, margt þjakað af offitu, sykursýki og öðrum velmegunarkvillum. Í þessu sambandi má líka velta fyrir sér framtíð Evrópusambandsins. Verða til Bandaríki Evrópu eða munu þjóðríkin halda velli? Verður sambandið jafnvel lagskipt? Um það getur enginn fullyrt nú. Ísland Við hlýnun jarðar er ekki spurt um landamæri. Hækki sjávarmál eins mikið og verst má vera verður Seltjarnarnes að eyju og Kvosin í Reykjavík fer í kaf. Jöklar hyrfu eða yrðu ekki nema svipur hjá sjón. Það hefði áhrif á nýtingu vatnsafls í landinu. Fari svo verður að koma í ljós hvort nýjar siglingar- leiðir um bráðnandi norðurheimskaut færi björg í bú á móti. Þar er ekkert fast í hendi. Að sama skapi gæti hlýnun sjávar laðað fiskistofna á Íslandsmið eins og makríllinn hefur þegar sýnt. Þetta gæti þó reynst skammgóður vermir. Sjávardýr dafna ekki í súru hafi. Og þá var til lítils barist í þorskastríðunum. Er útvegur Íslendinga kannski í sömu stöðu og land- búnaður var fyrir um hundrað árum, meginstoð sem hlýtur þó að minnka að vægi eigi hagur þjóðarinnar áfram að

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.