Kjarninn - 03.04.2014, Page 55
07/07 Viðtal
verkefnið verið að gera blýantsteikningu eftir fyrirsætu.
Venjulega gera listnemar nokkar upphitunarteikningar áður
en verkefnið sjálft hefst. Þessar upphitunaræfingar eiga
ekki að taka meira en eina til tvær mínútur og þegar þeim
er lokið vanda nemarnir sig við að teikna fyrirsætuna á mun
lengri tíma. „Þegar ég fletti teikningunum mínum fundust
mér upphitunar teikningarnar yfirleitt bestar. Þær voru
einstakari.“
tæknin hverfur
Undanfarin misseri, eftir að snjallsímar og spjaldtölvur hafa
verið svo gott sem fullþróaðar, hafa stærstu tölvufyrirtæki
heims beint sjónum sínum að þróun svokallaðrar klæðan-
legrar tækni. Þar hafa snjallúr, snjallgleraugu og alls kyns
öflugir smáhlutir verið í brennidepli. Ljóst er að slík tækni
verður með tíð og tíma álíka vinsæl og snjallsímarnir eru nú.
En hvaða sýn hefur yfirhönnuður hjá Google á tækni fram-
tíðarinnar?
„Ég hef í raun enga skýra hugmynd um í hvaða átt tæknin
mun fara. Fyrir mér er takmarkið að tæknin hverfi, þó að við
munum alltaf njóta þess sem hún býður upp á. Ég veit auð-
vitað ekkert hvernig það mun líta út. Kannski verður þetta
Star Trek-pinni, fötin þín, eitthvað sem þú setur í eyrað, jafn-
vel derhúfa. Tæknin mun nefnilega alltaf færast í þá mynd
sem við viljum. Við viljum til dæmis ekki þurfa að halda á
einhverjum tækjum ef við komumst upp með annað.“
Wong vildi ekki greina blaðamanni Kjarnans frá verk-
efnunum sem hann vinnur að í dag. Það er kannski eðlilegt
í ljósi þess hversu gríðarlega hörð samkeppnin er á markaði
með tölvunýjungar. Hann fullyrti þó að þar væri að finna
drög að framúrstefnulegum græjum sem vonandi yrðu
kynntar almenningi í nánustu framtíð. Ætli það séu Star
Trek-pinnar?