Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Qupperneq 19
LJÓSLÆKNINGAR.
Eftir Jónas Kristjánsson.
[Frh.].
Sólarljós, rafmagnsljós.
Fyrst framan af notaði Finsen
hláu og- ultrafjólubláu geisla sól-
arljóssins til þess að lækna lupus.
En -sólarljósið reyndist stopult í
Kaupmannahöfn eins og- víðar.
Kegar sólskinslaust var, fórust
lækningarnar fyrir. Þetta, var því
bæði tafsamt og hvimleitt, að
Vei'a háður dutlungum veðrátt-
Unnar með lækningu á mörgum
sjúklingum, sem biðu með óþreyju
eftir árangri lækningatilraunanna.
^1' þessu varð ekki bætt á ann-
•sn hátt en þann, að búa til „kúnst-
ugt“ ljós, í stað sólarinnar, og
var þá ekki um annað ljós að
SJöra, en rafmagnsljós. Finsen
bJO þá til lampa í þessu skyni,
sem gaf frá sér sterkt ljós, —
■og þar á meðal bláa geisla. Síð-
Leiðrétting. í upphafi siðasta kafla
0mst skökk lfna inn (4. lína). Setningin
^ að vera svona: Hann lifði fyrir hér um
*' 23 öldum. Notaði hann sólböð ....
an hafa þessir lampar tekið mikl-
um endurbótum, og hafa síðan
náð svo mikilli útbreiðslu, að vart
er nokkurt sjúkrahús, sem ekki
hafi þessi ljós — til lækninga.
Starfssvið eða notkunarsvið þess-
ara lampa, hefir líka breiðst út
eða víkkað að sama skapi, svo
að nú eru þeir ekki aðeins not-
aðir við berklaveiki í andliti, held-
ur hvar sem er í líkamanum, og
ekki aðeins berklaveiki, heldur og
fjölda marga aðra kvilla, bæði út-
vortis og innvortis. Hafa þessi
ljóstæki reynst hin öruggustu
vopn í baráttunni við berklaveik-
ina og ómetanleg hjálp — þar
sem svo lítið nýtur sólarinnar, svo
sem á sér stað hér á voru norð-
læga landi.
Nú eru mest notaðar tvær teg-
undir lampa til lækninga: 1) kola-
bogalampinn. í honúm er hleypt
sterkum rafmagnsstraum milli
tveggja odda af hreinu koli. Smá-
20