Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Side 55

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Side 55
Stefnir] • Ráðsmaður og úlfur. 341 andi hlut að máli. Surnir þeirra voru í fyrstu hásetar eða dag- launamenn. Dugnaður og ráð- deild kom þeim áfram. Þeir hafa með atorku sinni bætt ástæður al- mennings og aukið gjaldþol sitt og annara. Frá þeim stafa marg- földuð gjöld í bæjarsjóði, sveita- sjóði og ríkisfjárhirslu. Þeir hafa aukið getu alþjóðar. Útgerðarmenn og athafnamenn í landi voru hafa að lokum skap- að jarðveg fyrir lýðskrumara, með því að verða þess valdandi, að fólkinu fjölgar í bæjum og þorp- um. Þeir, bolsahöfðingjarnir, lifa á múgnum þeim. En ef það er hægt að segja, að nokkrir menn lifi eða alist á öðrum, eins og fúi í lifandi trjám, þá eru þessir iðju- lausu æsingamenn þess háttar fúi og drep. Sjálfir þeir vinna ekki, framleiða alls ekki, en grafa grunninn undan atvinnufyrir- tækjum með bollaleggingum, sem eru meira og minna loftkastala- kenndar. Þeir gera marga menn hugstola og villa um þá með því að leggja á hilluna vit og sann- girni, en hampa hátt æsingum og gauragangi. Ef þetta þykir grálega mælt, vil eg benda á ummæli ærslamann- anna, til dæmis, eitt atriði eða svo, því ógerningur er að fara um allar jarðir þessara vaðals-aska. Einn bolsi sagði nýlega, að sá bóndi, sem græddi á búskap, „hefði stolið frá einhverjum". — Hann mun hafa bætt við þeirri at- hugasemd, að jarðnæðið hafi verið of stórt, úr því að á því mátti græða, og að sumu leyti tekið frá þeim, sem vantaði jarðnæði. — Slíkir og þvílíkir falsspámenn lifa í landi voru og hljóta brautar- gengi, svo að furðu sætir. Nú er það svo, að fjöldi manna fer frá jarðnæði í sveitum, vegna þess, hve afar örðugt er að búa. Ekki þurfa þeir menn að kvarta um jarðnæðisleysi. En þeir fáu menn, sem græða á búskap, hagn- ast þess vegna, að þeir vinna hlífðarlaust, þeir og konur þeirra, og börn, fyrir lítið kaup, neita sér hinsvegar um flest öll þægindi og nautnir. Ef þessir menn lifa ó- heiðarlegu lífi, veit eg ekki hvar á jarðríki ætti að finna drengi- legt líf. Uppi-vöðslu-foringjarnir í landi voru eru sífelt með vopn sín á lofti yfir og andspænis kaupmönn- unum. Kaupmenn eru vissulega of margir í landinu. Ekki þarf all- an þann fjölda til að miðla varn- ingi. En ef landslýðurinn á að lifa

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.