Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Side 57
Stefnir]
Ráðsmaður og úlfur.
343
að eflast af sjálfsdáðum. Hann
varar við því, að leggja andlega
eign sína á vald fjárhaldsmanns,
þ. e. a. s. hann vill ekki hafa ráðs-
menn yfir sálunum. Hann segir
ennfremur:
„pað er meiri mæða að safna
maureldum en lýsigulli' ‘.
Fiskurinn, sem þarna liggur
undir steini, er tvöfaldur í roðinu.
Fyrst og fremst á hann við maur-
eldi í sjó og í fiski, eða hákarli,
lýsigull það, sem hægt er að
hafa hendur á, geislamálminn
sjálfan. En undir niðri á skáldið
við andleg maureldi og andlegt
lýsigull. — Maureldi í óeiginlegri
merkingu eru þær kenningar, sem
eru glóru-bjartar í fljótu bragði,
en þó ekki Ijósgjöfular né verm-
andi. Andlegt lýsigull táknar heil-
^rigðan sannleika, sem göfgar og
lýsir.
3>essi verðmæti eru fágæt. —
Maureldi eru í boði hjá falsspá-
^uönnum. Lýsigull er á borði, þeg-
ar sannarlegir spámenn birtast.
Mennirnir eru misjafnlegamikl-
lr Ijósberar og Ijósgjafar. — Mér
kemur nú í hug það, sem Jóhann-
Jörgensen, danskt skáld, segir
1 bók sinni einni. Hann er að tala
Urn falsspámenn og hina, sem eru
sPámenn, guðfræðinga og skáld.
Hann segir á þá leið, að sumir
orðabelgir eigi í vitum sínum týru-
ljós, sem líka mætti kalla kertis-
skar, sem þeir veifa svo ótt og
títt um sig í hring, að úr því sýn-
ist verða geislabaugur eða vafur-
logi. Svo þykjast þessir menn vera
ljósgjafar alþýðu. En reyndar eru
þeir aðeins týrumenn. Andans-
mennirnir eru vitamenn, sem
kynda leiðarljós og varðelda.
„pað er meiri mæða að safna
maureldum en lýsigulli* ‘.
Þeir menn eru tjóngefendur,
sem safna maureldum, en hirða
ekki um að ná í lýsigullið, handa
sér né öðrum.
Nú er svo komið í landi voru,
að „áhrif lakra miðlungsmanna"
liggja á þjóðinni eins og mara.
Miðlungarnir ráða nú lögum og
lofum í landinu. Meðan þeir voru
að ginna fólkið eins og þursa,
lofuðu þeir réttarbótum, en þeir
hafa haft í frammi rangsleitni.
Þeir lofuðu sparnaði. En hafa
aukið eyðslu.
Þeir lofuðu lögspeki. En hafa
beitt lögbrotum.
Þeir lofuðu lækkun skatta. En
þeir hafa haft ólöglegan og auk-
inn handagang í öskju ríkisfjár-
hirzlunnar.
Þeir lofuðu að gefa þjóðinni