Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Qupperneq 63
Stefnir]
RáSsmaður og úlfur.
349
lang-ir um of, kauphallarbraskarar
og þeir, sem keyra í dróma-hringi
atviimuvegi og framleiðslu.
Það gengur svo, að hávar öld-
ur verða á stórum höfum. Og í
stórum mannfélögum verða átök-
in mikil og töflin stórkarlaleg.
Miklir atburðir munu jafnan verða
í þjóðlöndunum, hvernig sem lög-
íijöfin reynir að skorða alt með
skipulagi. Manneðlið breytist ekki,
J>ó skift sé um flokkanöfn. Bolsa-
forkólfar eru engu síður gráðugir
í völd og fé en konungasinnar
eða auðmenn, og grimmir eru
bolsar, engu síður en hinir, og sjá
ekki í að hella niður mannsblóði,
ef afhöfðun eða henging getur
orðið þeim til fjár eða frama.
St. G. St. segir í kvæðinu
Kveld, sem eg hefi áður vitnað í
í þessu máli:
villunótt mannkyns um veglausa
jörð
evo voðalöng orðin mér finnst,
sem framfaraskíman sé skröksaga ein
skuggarnir enn liafi ei þynnst;
bví jafnvel í fornöld s k e i n huguv
eins liátt,
°g hvar er þá nokkuð, sem vinnst f1
Þarna er mælikvarðinn, að hug-
Ur mannsins skíni, ljómi, að af
honum leggi birtu. Þá leggur sól-
skin af huga mannsins, er sann-
girni er sýnd og henni beitt.
Stjórpmálaflokkar, sem láta
mest yfir sér og gemsa mest, eru
snauðir af sanngirni. Foringjum
slíkra flokka fer illa að gera
pílagrímsferð að leiði Klettafjalla-
skáldsins.
Sú alda gengur nú yfir land
vort, að hafa ráðsmenn á hverju
strái, svo að segja. Hlutdræg
stjórn fær með því móti tæki-
færi til að koma sínum mönnum
á framfæri í öllum áttum og kúga
undir sig þorra manna. Alþýðu-
leiðtogarnir bæla undir sig sína
fylgifiska í þorpunum, með harðri
hendi. En í sveitunum er Fram-
sóknin svokallaða á ferðinni —
úlfsbleyða undir sauðargæru. í
sveitunum er unnið að því, eftir
fyrirskipunum, að engir verði
kosnir í hreppsnefnd, auk heldur
hærri stöður, aðrir en Framsókn-
armenn. Slík og þvílík ráðsmenska
á að koppsetja allan almenning
þjóðar vorrar. Að því er stefnt
frá hálfu ofbeldis og undir-
hyggju, að gera úlfana að ráðs-
mönnum, en alþýðu að fórnardýri,
á altari flokksstjórna.
Guðmundur Friðjónsson.