Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Page 64

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Page 64
GERSEMAR SVEITAÞORPSINS. Eftir I. M. Sick. I Suður-Tíról er dalverpi eitt, með háum og hrikalegum fjöllum á báðar hliðar. — Eftir dalnum rennur á. Og við ána liggur þorp. Og í þorpinu er kirkja, með hárri rauðmálaðri turnspíru. En ekkert af þessu er í frá- sögur færandi, og þú munt segja sem svo, að í því góða landi, Tír- ól, muni vera margir slíkir dalir, mörg þorp við ár og margir kirkjuturnar. Enda er það svo. En þetta þorp við ána er þó að nokkru leyti sér- stakt í sinni röð. Ekki vegna þess, að stórt kross- mark er við veginn, þar sem hann beygir inn í þorpið, og lít- ið bænhús með næturljósum við vegamótin. Ekki vegna þess, að hinn helgi Antóníus frá Padúa er málaður á annan húsgaflinn, en Martínus hinn helgi á hinn, í skrúðgrænni kápu. Ekki vegna þess, að á öllum hvítu húsunum eru veggsvalir úr tré, og í öllum gluggum útsprungnar rósir. Og ekki vegna þess, að öldungarnir í þorpinu setjast um sólarlag á bekki fyrir dýrum úti og reykja stuttpípur, en ungu mennirnir með strýtuhatta á höfði reka heim geitur og gula uxa, og stúlkur með stríðkembt og gljáandi hár bera vatn úr brunninum mikla. Og ekki heldur vegna þess, að þar er klukkum hringt seint og snemma, af því að þá er helgidag- ur, eða hann er nýliðinn eða í vændum. Og enn sízt vegna þess, að þar eru vínekrur við fjallsræt- urnar milli kastaníutrjánna nokkru ofar í hlíðinni. Því að þessu leyti svipar öllum þorpunum saman. Það er allt ann- að, sem skilur. Gangirðu um þorpið um sól- arlagsbil, þegar kvöldklukkan er að þagna, og tyllir þér á bekk hjá einhverjum gamla öldungn-

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.