Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Page 72

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Page 72
358 Gersemar sveitaþorpsins. [Stefnir og þegar inn kemur, stendur hinn velski þar með Önnu Resí í faðm- -’im. Hún er náföl og með augun lokuð. En varirnar rauðar sem blóð. Enda drýpur blóð af þeim. Hann er líka litverptur og star- ir villtu augn,aráði á þá, er að koma, eins og hann viti ekki deili á þeim...... Þeir þrífa hana af honum og taka óþyrmilega til hans. Eg veit ekki, hvað þeir hefðu viljað við hann gera, segir öldungurinn. Því að hún var heilög í augum þeirra allra. En þá kvað hún hafa rankað við sér og mælt: „Látið hann fara -— látið hann fara“ — en síðan fallið í ómegin. Þá slepptu þeir honum, og fóru að stumra yfir henni. Og hann fór — eins og hann stóð, berhöfðaður og allslaus. Það sást síðast til hans úr þorpinu, að hann ráfaði lengi með ánni — eins og sá, er gengur í svefni — unz hann hvarf út í rökkurmóðuna .... Og gott var það fyrir hann, að hann kom ekki aftur — „því að mér heilum og lifandi skyldi hann verða grýttur út úr þorpinu!“ sagði Pétur Melzer. Og sennilegt er það, að hann hafi ekki skort skap til þess, hann Pétur gamla! Það var ekki honum að þakka, að hundum var ekki sigað á hvern einasta velskan ferðalang, sem hér bar að garði upp frá því. Það var Anna Resí, er því fékk af- stýrt: „Ekki skal þeim mein gera nú, frekar en áður“, mælti hún, „því að ekki er sökin þeirra“. Hún lá í hitasótt svo vikum skifti. Og það var ekki heldur nein furða — eftir slíka skelfing- ar-meðferð! Og mælt var, að þá hefði hún sjálf viljað fara að ráð- um prestsins og hverfa til hinna heilögu í klaustrinu. Því að hún var orðin mædd á vonzku þessa heims. En Pétur grét við rúm hennar og bað hana að fresta því áformi, þangað til hann væri til moldar genginn. Og svo varð hún kyr. — Allir þorpsbúar viknuðu, er þeir sáu þau leiðast til kirkju næsta skáfti. Aldrei hafði hún verið þeim jafn kær og nú. Já, hún var eins og áður, yndi og eft- irlæti föður síns og allra þorpð- búanna. Dul var hún orðin og alvörugef- in *— enda hafði hún löngum ver- ið það — og aldrei kom það fyrir, að henni stykki bros. En kjark- mikil var hún sem fyr, ráðsnjöll og raungóð. Það voru þær tvær, Guðsmóð-

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.