Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Qupperneq 83
Stefnir]
Um daginn og veginn.
369
„ÞiS munið ætla ykkur tvo“,
sögðu þeir við okkur, sem fylgd-
um C-listanum, og þeim var ó-
mögulegt að leyna háðinu í svip
og málróm.
Og svo kom nú „ósigurinn",
sem þessir hjartagóðu menn vor-
kenna okkur svo innilega. Og ó-
sigurinn er fólginn í því, að tveir
Sjálfstæðisnienn eru Jcosnir. —
Stjórnarflokkurinn, sem hefir 20
menn á þingi, og þykist fara með
völdin samkvæmt heilögu umboði
landslýðsins, kom einum manni
að, en sósíalistarnir komu alls
ekki manni að. Úrslitin eru, ef
satt skal segja, mjög háðuleg fyr-
ir báða. Og það er engin ástæða
til að vorkenna þeim, því að þeir
uppskera eins og þeir hafa sáð.
Hitt, sem barist var um, er
atkvæðamagnið. Það var þannig:
A fékk 4898 atkv.% B. 7585 atkv.
og C 11671 atkv. Þetta atkvæða-
magn sýnir:
1. Að C-listinn hefði mátt missa
uálega 2000 atkv, eða 1887 atkv.
og hefði þó komið tveim mönnum
að. Það var því ekki með neinum
herkjubrögðum, sem sigurinn var
unninn.
2. Að Sjálfstæðisflokkurinn fer
weð umboð rétt að segja helmings
öllum kjósöndum landsins,
y>Indiána« skór eru úr
sterku brúnu leðri með
suörtum gúmmísólum;
reynslan hefur sýnt að
þessi gerð af skóm er
mjög heppileg fyrir börn
og unglinga, uerðið er
kr. 7.50 no. 27—30,
kr. 9.00 no. 31—35,
’kr. 11.00 no. 36—38,
sendum gegn póstkröfu
um land alt.
Lárus G. Lúðvígsson
Skóverzlun
Símnefni Lúðvígsson
24