Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 86
372 Um daginn og veginn.
[Stefnir
HJER SJÁIÐ ÞJER
fullkomnustu vefnaðarvöru-
og glervöruverzlun landsins.
I
VERZLUNIN EDINBORG.
Að staðaldri fyrirliggjandi
fullkomið úrval af
Glervörum
Kristal
Alum. vörum
Borðbúnaði
Ferðatöskum
Taurúllum og vindum.
Alklæði—Kápu- og kjólatau—
Reiðfatatau — Ótal silkiefni —
Nærfatn. ull og silki—Barna-
kjólar og kápur — m. m. fl.
Leggið leið yðar um Hafnar-
stræti i Edinborg.
Un til fyrirheitna landsins ligg-
ur engin önnur leið.
Þetta landskjör sýnir líka ann-
að. Alþýðublaðið segir sjálft, að
flokkur þeirra hafi fengið ríflega
það, sem hann þurfti til þess að
halda í horfinu frá 1926. Er þetta
mikilsverð játning þess sann-
leika, sem reyndar var kunnur áð-
ur, að sósíalistar hafa alls ekki
átt landkjörinn þingmann á þingi
með rétti kjörfylgis í landinu,
heldur aðeins fyrir sundrung og
slæleik andstæðinganna. — Verði
þeim sá sigur að góðu, og er
vonandi að langt verði að bíða
þess næsta. ,
Og svo vill Stefnir loks bjóða
hina nýju þingmenn velkomna,
bæði aðalþingmennina Pétur
Magnússon, bankastjóra, og frú
Guðrúnu Lárusdóttur, og vara-
þingmennina Kára Sigurjónsson
og Skúla Thorarensen, bændur, og
síra Jakob Lárusson, prest. Átta
ára starf er fram undan. Því
haggar ekkert þingrof. Er von-
andi, að þau átta ár verði vitni
að miklum framförum í landinu
og meiri heiðríkju yfir opinberu
lífi en nú hefir verið um stund.