Sagnir


Sagnir - 01.04.1986, Page 16

Sagnir - 01.04.1986, Page 16
Einn hinn óþarfasti maður . . . Hluti af biskupsskrúða frá Hólum. Á Þjóðminjasafni eru uarðueiltir þrír samkynja hlutar af biskupsskrúða frá Hólum, stóla. handlín ug hlað af höfuðlíni. Á bls. 14 er biri mgnd uf öðrum enda handlínsins en hér í opnunni mynd af hlaðinu (skraul á höfuðlíni). Á þeim enda handlínsins. sem uið sjáum hér. er mynd af Jóni biskupi helga ögmundarst/ni. hin- um fyrsia biskupi á l-lólum. og er hún 14,75 sm á fiœð. Á hinum endanum. sem ekki er sýndur hér. er hins uegar saumuð mynd af Þorláki biskupi helga. Á hlaðinu af höfuðlíninu (mál: 50.3x8,8 sm). sem sýni er hér á opnunni. má sjá Krist fyrirmiðju .in majestaie innan íferboga. en úi frá honum lil huorrarhliðarsianda posiular ísúlnahliðum, og má þekkja Péiur. Pál og Andrés af einkunnum þeirra." (Kristján Bldjárn) Þráti fyrir að á handlíninu séu íslenskar dýrlingamyndir er talið uíst að þessir gripir séu erlendir og álítur Elsa E. Guðjónsson. ásamlfleiri textílséifrœðingum, að þeir hafi uer- ið fengnir hingað til landsfrá Englandi. Elsa segir enn fremur um gerð þessara muna að þeirséu úr „rauðu silki... ísaumaðir með huítu. suarbrúnu. grœnu og bláu silki og gull- og silfuruir." Þessir gripir uoru aðskildir og illa farnir er þeir komu I uörslu Þjóðminjasafns en nú hefur uerið geri uið þá. Talið er að þessir gripir séufrá önduerðri 13. öld og þuí sennilegt að Guðmundur Ara- son Hólabiskup hafi borið þáfyrstur manna. Geia má þess að Hrafn Sueinbjarnarson frá Eyri I Arnarfirði fór I pílagrímsferð lil Englands. fáum árum áður en Guðmundur uígðist. Hrafn uar uinur Guðmundar og fór m. a. með honum ulan er hann uígðisl. Elsa E. Guð- jónsson hefur nefni þann möguleika I samiali. Iiuori hugsanlegt sé að Hrafn hafi paniað þennan skrúða frá Englandi handa uini sínum. biskupinum. hafi krafist að eiga dóm í klerka- málum eða að sektargjöld hafi ver- ið lögð á í hans nafni.10 Baráttu Guðmundar fyrir kröfunni um dómsvald var þar með lokið. Sukk og flakk Átök Guðmundar við höfðingja upp frá þessu voru spunnin af nýjum toga, þ. e. sukki hans með sjóði Hólastóls, og síðan flakki með flokk lausingja og göngumanna um landið. Þessi lausa- lýður var eitur í beinum bænda og klöguðu þeir Guðmund ákaflega fyrir höfðingjum. Þetta fyrirbæri eitt og sér myndi nægja til að gera Guðmund einstæðan í sögunni. Reynt hefur verið að setja það í samhengi við nýja trúarstrauma á meginlandi Evrópu, sem Guðmundur hafi hrifist af.11 Á tólftu öld óx þeirri kenningu fiskur um hrygg að kirkjunnar menn ættu að lifa í fátækt og auðmýkt og reyna að feta í fótspor Krists að sem flestu leyti. Talið er að Guðmundur hafi orðið fyrir áhrifum af þessari skoðun og ýmsum betlimunkareglum sem spruttu af henni. Þetta, ásamt trúarlegri reynslu sem hann varð sjálfur fyrir, hafi til samans valdið því að hann gerðist sérlegur verndari lítilmagnans.12 Guðmundur hafði litla stjórn á mislitri hjörð sinni og skreiðarhlaðar bænda þóttu rýrna í návist hennar. Honum var ósýnt um fjármál og að dómi flestra fræðimanna öldungis óhæfur til að halda rekstri biskupsstólsins í horfinu. Allt þetta varð höfðingjum mikill þyrnir í augum. Þeir töldu sig „þera ábyrgð á, að fé stólanna gengi eigi til þurrðar, enda vissu þeir, að það kostaði ný fjárframlög".13 Þetta leiddi til þess að höfðingjar gátu ekki látið Guðmund afskipta- lausan eftir 1209, þótt þá væri það annað sem á greindi: Hér var ekki um að ræða bein- skeytta baráttu gegn kirkjuvalds- stefnunni, heldur gegn því sem höfðingjarnir mátu sem óstjórn Guðmundar. Afstaða höfðingja virðist hafa mætt skilningi í erki- biskupsgarði en þar á bæ áttu menn hins vegar bágt með að fella sig við aðferðir höfðingjanna og meðferð þeirra á Guðmundi.14 Það hlýtur að teljast eðlilegt að norskir erkibiskupar ættu „bágt með að fella sig við“ hvernig höfðingjar hröktu Guðmund og sátu yfir hlut hans. Erkibiskupar stefndu höfðingj- unum utan hvað eftir annað en yfirleitt hunsuðu þeir þessar utanstefnur. Erkibiskupaskipti voru tíð á þessum tíma og það tafði fyrir framgangi mála. Sigurði erkibiskupi er þakkað að deilurnar hjöðnuðu loks um 1233.15 Þegar þar var komið höfðu höfðingjar margbrotið gegn boðorð- um páfa um friðhelgi kennimanna, einkum þó þeir feðgar Sighvatur og Sturla.16 Varö Sturla að fara suður til Róms og taka aflausn hjá páfa sem frægt er. Áður hefur verið bent á að eftir 1209 hélt Guðmundur ekki fram kröf- unni um dómsvald í málefnum klerka. Það er einnig eftirtektarvert að eftir fyrri utanför sína hætti hann líka að bannfæra þá sem risu gegn honum.17 Fræðimenn hafa lítt reynt að skýra þá breytingu, en líklegt er að erkibiskup hafi veitt honum ofanígjöf fyrirofnotk- un á bannfæringarvopninu og þegar frá leið ekki treyst honum til að fram- fylgja stefnu kirkjunnar og reka erindi hennar svo að lag væri á. Áhrif deilnanna Guðmundur Arason hefur verið sak- aður um að hafa stuðlað að auknum áhrifum norskra erkibiskuþa og kon- ungsvalds á málefni íslendinga með 14 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.