Sagnir - 01.04.1986, Page 22
Óstýrilátur og heimtufrekur glanni?
Árni Pálsson prófessor. Hann hafði líiið álii
á Órœkju Snorrasrjni.
sinn mann og reynir jafnan aö rétt-
læta framferði Gissurar. Þaö má því
segja að bók Ólafs sé nokkurs konar
varnarræöa fyrir Gissur. Um leiö deilir
hann á höfuðandstæðinga hans,
Sturlunga, og er Órækja Snorrason
þar ekki undanskilinn. í bók sinni
dæmir Ólafur Órækju hart. Hann seg-
ir Órækju hafa verið yfirgangssaman
og ekki til forystu fallinn: „Að ribb-
aldahætti líktist hann frænda sínum
Sturlu Sighvatssyni, en skorti glæsi-
leik hans og höfðingbrag."4 Þessi
lýsing er athyglisverð fyrir þær sakir
að mannlýsingar í íslendingasögu
eru fáar og útliti Órækju er hvergi lýst.
Ólafur er því kominn út á hálan ís er
hann fjölyrðir um útlit Órækju. Óiafur
Hansson er samstiga Árna Pálssyni í
dómum um Órækju, en spyrja má
hvort hörð afstaða þessara mætu
fræðimanna mótist ekki af áhuga
þeirra á að upphefja þá Gissur og
Snorra fremur en hlutlægu mati á
Órækju?
Fastheldinn
bjartsýnismaður
í bók sinni Skyggnst umhverfis
Snorra dregur Gunnar Benediktsson
upp allt aðra mynd af Órækju en þeir
Árni og Ólafur. Gunnar sýnir okkur
mynd af manni sem þráir völd en að-
stæðurnar eru honum í óhag. Faðir
hans notar hann sem tæki til að auka
völd sín og bregst honum á örlaga-
stundum. „Landshornalýð drífur að
honum í Vatnsfjörð" sem síðan leiðir
til ógæfu, og Órækja „er hinn ófor-
betranlegi bjartsýnismaður sem
treystir andstæðingnum til að unna
heiðarlegra sátta. Og sú góða trú
leiðir hann að lokum í glötunina . . .“5
Gunnar finnur ýmsa kosti hjá Órækju.
Til að mynda hafi hann verið „lista-
maður í þeirri grein að sættast við
náungann, þegar eitthvað hafði slest
upp á .. ,“6 Hann hafi verið fastheld-
inn á gerða samninga og jafnframt
treyst öðrum til að standa við sinn
hlut. „Órækja er ekki hetja hins kalda
stríðs. Hann er maður áhlaupa og
sátta. Hann vildi sættast og þurfti að
sættast og var aldrei með neinar refj-
ar um gerða sætt.“7 Það má þó ekki
líta þannig á að Gunnar líti á Órækju
sem hálfheilagan mann. Hann viður-
kennir lesti í fari hans en telur að
finna megi skýringar á þeim.
Ólíkir dómar
Hér á eftir verður borið saman hvern-
ig þeir þremenningar, Árni og Ólafur
annars vegar og Gunnar hins vegar,
meta á ólíkan hátt einstök atvik í lífi
Órækju.
Þegar Sturla Sighvatsson fór til
Rómar á fund páfa, eins og alkunna
er, bað hann Odd Álason að gæta
hagsmuna þingmanna sinna en Odd-
ur var barnsfaðir Þórdísar, systur
Órækju. Órækja drap síðan Odd
vegna fjörráðabréfs sem síðan var af
Ólafur Hansson prófessor. Ólafur lók upp
hanskann fyrir Gissur Þorualdsson en
fannsi lítið lil Órœkju koma.
Gunnar Benediktsson rilhöfundur. Að
huns mali uar Órœkja sáttfúsari en maryir
andstœðinya hans.
flestum talið falsað. Gunnar finnur á
þessu sálfræðilega skýringu:
Sjálfsagt hefur Órækja fundið, að
hann náði engum tökum á við-
fangsefnum sínum sem höfðingi
þar vestra og réð ekki við neitt.
Hann fann óánægju héraðsbúa
með höfðingdóm hans og varð því
fullur tortryggni og auðveld bráð
þeim, sem vildu spana hann gegn
sínum óvinum . . .8
Árni er hins vegar stuttorður og
segir um sama atburð „að óhlutvand-
ir menn og illgjarnir hafi borið lognar
sakir á Odd og haft Órækju að ginn-
ingarf ífli.“9
Á þessum tveim frásögnum er mik-
ill munur. Gunnar hefur samúð með
Órækju sem er grátt leikinn af Grunn-
víkingum en þeir töldust hafa falsað
bréfið. Árna finnst hins vegar líkt
Órækju að láta hafa sig að fífli.
Eftir áralanga misklíð milli Órækju
og Sighvats á Grund vill Órækja
sættast:
Ok bauð Órækja af sinni hendi at
breyta þann veg öllu sem Sighvatr
vildi vera láta.
En Sighvatr lagði þat til, at
Órækja skyldi fara suðr til Borgar-
fjarðar ok setjast á kosti föður síns,
en síðan skyldi leitast um sætt
með þeim frændum.10
Órækja fór síðan suður og settist að í
Stafholti. Þess skal getið að þegar
Órækja giftist Arnbjörgu, hafði Snorri
lofað honum jörðinni en reyndi síðan
að komast hjá því að afhenda hana.
20 SAGNIR