Sagnir


Sagnir - 01.04.1986, Síða 27

Sagnir - 01.04.1986, Síða 27
Viðhorf til kvenna í Qrágás virðist sem kvenþjóðin hafi verið ís- lenskum miöaldakörlum hugleikin. En hvaða sess skipuðu þeir konum á þjóðveldistímanum? Konur og kynhlutverk Konur eru veikari að líkamsburðum en karlar, þær ala af sér börn og næra fyrstu mánuðina eftir fæðingu þeirra. Þetta hefur áhrif á stöðu kvenna í öllum samfélögum og er þjóðveldið forna þar engin undan- tekning. Viðurkennt var að konur gætu síður aflað sér lífsbjargar en karlar. í ákvæðum um ómagafram- færslu í Grágás segir að hver og einn eigi að framfæra sína ómaga, en fyrst beri mönnum að sjá mæðrum sínum farborða, þá feðrum.5 í Grágás er einnig borin virðing fyrir lífi fósturs og ungbarna og viðhorf til kvenna mót- ast af því. Ófrískar konur voru undan- þegnar föstuhaldi og einnig konur með ungbörn á brjósti.6 Ef ófrísk kona var dæmd sek, mátti ekki vega hana fyrr en eftir fæðingu barnsins. Væri þunguð kona vegin saklaus þá voru tvær vígssakir um drápið. Ann- ars giltu sömu viðurlög um sekar kon- ur og karla.7 Það að ekki mátti vega seka ófríska konu var því réttarvernd sem beindist að fóstri. í ættarsamfélagi þjóðveldistímans var lögð áhersla á að feðra óskilgetin börn. Ógift kona, sem bar barn undir belti, átti að segja hver faðir þess væri. Ef hún færðist undan, þá gat sakaraðili pínt hana til sagna í votta viðurvist. Ekki mátti þó pína konuna þannig að á henni sæist né að hún hlyti örkuml af.8 í húfi var líf fóstursog því mátti ekki beita móður þess lík- amlegum pyntingum. Konur voru mikilvægar af því að þær fæddu nýja einstaklinga inn í ættir. Líf þeirra var dýrmætara en karla af þessum sökum. Á meðan karlmenn Sturlungaaldar börðust hver við annan sátu konur þeirra heima og gættu bús og barna. Sam- kvæmt Grágás var konum ekki ætlað að bera vopn.9 Er það í fullu sam- ræmi við það viðhorf að konur bæri að vernda vegna móðurhlutverks þeirra. Þetta mikilvæga hlutverk kvenna veitti þeim þó ekki jafnan rétt á við karla. Sjálfræði og erfðir Reglur um sjálfræði og erfðir í Grá- gás sýna að konur nutu minni réttar en karlar. Þeir urðu sjálfráða 16 ára gamlir og gátu þá ráðið sínum dval- arstað. Konur urðu ekki sjálfráða fyrr en um tvítugt, og máttu ekki ráða sínu heimilisfangi fyrr en þá. Allir giftir karlar máttu ráða hvar þeir og eigin- konur þeirra bjuggu, nema þær ættu bú eða hefðu verið ekkjur fyrir gift- ingu. Karlar urðu fjárráða 16 ára en konur 20 ára. Ef konur giftust áður en þær urðu fjárráða eða urðu ekkjur fyr- ir þann aldur, þá máttu þær ráða yfir fjármunum. Þó konur yrðu fjárráða lögum samkvæmt um tvítugt þá voru þær samt áfram undir lögræði feðra sinna eða annarra ættmenna karlkyns. Og gifting veitti konum að- eins málamynda fjárforræði því í raun voru það eiginmenn sem sáu um fésýslu beggja. Karlmenn urðu lögráða 16 ára og við giftingu héldu þeir sínu fjárforræði óskertu.10 Karlar voru rétthærri til erfða en konur. Sú meginregla gilti í erfðamál- um að sonur átti að erfa föður sinn og móður. Ef hann var ekki þá dóttir, þá faðir, þá bróðir samfeðra, þá móðir, þá systir samfeðra, þá bróðir sam- mæðra, þá systir sammæðra osfrv. Væru ekki börn til staðar eða aðrir nánir ættingjar, átti sá að erfa hinn látna sem skyldastur var. Ef karlmað- ur og kona voru bæði jafn náin, þá átti karlmaðurinn aö erfa. Arfur átti að skiptast jafnt á milli löglegra ættingja. Ef hjón áttu td. fjóra syni og eina dóttur, þá fengu þeir jafnan hlut af eignum foreldra þeirra að þeim látnum, en dóttirin var arflaus. Ekki hafa allar stúlkur þó farið félausar úr foreldrahúsum í hjónaband. Á þjóð- veldistímanum var það til siðs að for- eldrar létu fé af hendi rakna til barna sinna ef þau giftust. Kallaðist það að gera þau að heiman. Venja var að gefa stúlkum heimanfylgju, en ekki var það þó skylda samkvæmt lögun- um. Ætti stúlka bræður þá mátti upp- hæð heimanfylgjunnar ekki vera hærri en arfur þeirra. Piltur gat fengið fé til kvánarmundar, sem kallað var, en hluta af honum þurfti hann að greiða verðandi konuefni sínu við festar (trúlofun). Á þjóðveldistíman- um var lögð rík áhersla á að ekki yrðu eignafærslur á milli ætta sem hjón til- heyrðu, en hjón gátu ekki erft hvort annað. Kemur það skýrt fram í ákvæðum Grágásar um heimanfylgju og kvánarmund. Foreldrar gerðu ekki börn sín að heiman af sameiginlegu fé. Konur gátu gefið dætrum sínum heimanfylgju og sonum kvánarmund. Karlmenn gátu gert hið sama. Ef dæt- ur og synir féllu frá barnlaus, þá áttu faðir og móðir að erfa jafn mikið og hvort hafði gefið með þeim. Gilti það líka um aðra erfingja ef foreldrar voru látnir.11 Hagsmunir ættarsamfélagsins skína í gegnum erfðalöggjöfina. Við giftingu áttu hjón ekki að rugla saman eignum ættanna og sama gilti um af- komendur þeirra. En löggjöf þessi segir okkur líka að um konur giltu aðr- ar reglur en karla. Faðir átti td. að varðveita fé barna sinna. Væri hann ekki á lífi, átti bróðir barnsins sam- feðra að sjá um varðveisluna. Það kom ekki í hlut móður barnsins að hafa umsjá með fé þess, nema það ætti hvorki föður á lífi né uppvaxinn bróður.12 Ólík viðhorf til karla og kvenna í Grágás sjást einkar vel í lagaákvæð- um um stofnun hjúskapar, um réttindi hjóna í sambúð og reglum um hjóna- skilnað. Hj úskaparstaða kvenna í Grágás er sérstakur lagabálkur um hjúskaparmál. Nefnist hann Festar- þáttur.13 Samkvæmt honum máttu ekki allir íslendingar til forna ganga í hjónaband. Saman þurftu hjónaefni að eiga minnst sex hundruð fyrir utan hversdagsklæði sín og vera ómaga- laus til að mega giftast. Ef fátækara fólk giftist þá varðaði það fjörbaugs- garð (þriggja ára útlegð), nema ef kona var úr barneign.14 Til að fyrir- byggja ómegð var efnalitlu fólki mein- aður aðgangur að því heilaga. Margir álíta að hjónabandið á þjóð- veldistímanum hafi verið kaupsamn- ingur milli tveggja ætta. Bent hefur verið á að ættartengsl hafi verið mjög náin á þessum tíma; karlkyns ættingj- ar kvenna hafi ráðið hverjum þær giftust.15 Engin slík ákvæði eru varð- SAQMIR 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.