Sagnir - 01.04.1986, Síða 34
Ingunn Ólafsdóttir sótti rétt sinn
með vísun til helmingarfélags þeirra
hjóna. Á miðöldum áttu sum hjón
þannig allar eignir sameiginlega, allt
sem þau lögðu í búið uþphaflega og
allt sem í það bættist með erfðum
eða öðrum hætti. Helmingarfélög
voru ein leið af fleiri mögulegum til að
semja um eignir í hjónabandi, og voru
færð í lög með réttarbótum í upphafi
14. aldar. En mismunandi form hjú-
skaparsamninga tengdist bæði eign-
ar- og ráðstöfunarrétti, á tíma þegar
auður var fyrst og fremst fólginn í
jarðeignum.
Bent hefur verið á að helmingarfé-
lögin hafi orðið til að auka rétt giftra
kvenna. Þær hafi átt helming búsins
og öðlast fullan yfirráðarétt yfir eign-
unum til jafns á við eiginmennina. En
þarf helmingarfélagsskipan hjóna-
banda að benda til aukins jafnréttis
kynjanna?
í Jónsbók, sem lögtekin var í lok
13. aldar, var gert ráð fyrir annars
konar félagi um eignir milli hjóna,
hjónafélögum. Sú skipan er eldri en
helmingarfélögin, en samkvæmt
henni átti hvort hjóna um sig það sem
þau höfðu í búið lagt, en hjónafélagið
gert um búsaukninguna eða tapið. Ef
þeim hafði aukist fé átti karlinn tvo
þriðju og konan þriðjung. Tapinu var
skipt til helminga. Hjón þurftu þó ekki
aö gera félag, og var algengara að
semja um séreignir innan hjóna-
bandsins.
í íslenzku fornbréfasafni eru nokk-
ur bréf um stofnun helmingarfélaga.
Þau eru flest frá 15. og 16. öld. Miklar
eignatilfærslur urðu oft við gerð
þeirra, og gáfu karlar konum sínum
stundum heilu sveitirnar við brúð-
kaupið. Þessar gjafir hafa verið
nefndar sem leið til að jafna út eignir
hjónaleysanna til að gera helmingar-
félag mögulegt, annað hvort við gift-
inguna eða seinna. Hversu sennilegt
er það af helmingarfélagsbréfunum
að dæma?
Jafnrétti?
Einn af þeim, sem veitt hafa helming-
arfélögunum athygli, er Arnór Sigur-
jónsson. Kemur hann að þeim í ætta-
sögum sínum af vestfirskum og norð-
lenskum höfðingjum, Vestfirðinga-
sögu og Ásverjasögu. I formálum
beggja bókanna leggur Arnór áherslu
á, að aldirnar frá því fslendingar
gengu Noregskonungi á hönd og
fram til siðaskipta séu allrar athygli
verðar. Hann vill bægja frá hugsun-
inni um að þær hafi verið myrkar og
að íslendingar hafi þá verið ánauðug-
ir og ósjálfstæðir. í þessum anda túlk-
ar hann helmingarfélög hjóna. Þau
séu vottur um að meira jafnrétti hafi
tíðkast á íslandi á 15. og 16. öld en
víðast annarsstaðar og á öðrum
tímum. Kvenna sé víða getið í sagn-
fræðilegum heimildum þessara alda.
Þeim konum, sem áttu einhverjar
eignir þegar þær gengu í hjónaband,
hafi verið tryggður ráðstöfunarréttur
yfir fé sínu þegar þær giftu sig. Þar
með hafi þær öðlast fullt vald og virð-
ingu á við eiginmenn sína á heimilun-
um. Til að kona næði jafnri eign í bú-
inu hafi karlmaðurinn gefið henni
gjafir við giftinguna, hafi hann lagt
meira til í upphafi. Þannig gætu hjón-
in stofnað með sér helmingarfélag
seinna, væri það ekki gert við gifting-
una.2 Arnór bendir á breytingu á eign-
ar- og ráðstöfunarrétti, og túlkar hana
Tafla 1. Kaupmálar og helmingarfélög við upphaf hjúskapar 1402 Brandur Sölvason og Guðlaug Ketilsdóttir íslenzkt fornbréfasafn III 679-680
1402 Jón Gunnlaugsson og Þóra Ketilsdóttir III 678-679
1420 Einar Jónsson og Sigríður Einarsdóttir IV 277-278
1423 Guðmundur Arason og Helga Þorleifsdóttir IV 312
1449 Þorkell Einarsson og Ólöf Narfadóttir V 30
1460 Gísli Filippusson og Ingibjörg Eyjólfsdóttir V 205-206
1476 Guðni Eyjólfsson og Guðrún Gunnlaugsdóttir VI 92-93
1485/1486 Sveinn Sumarliðason og Guðríður Finnbogadóttir VI 547-549
1489 Sigurður Þorleifsson og Kristín Finnbogadóttir VI 660-661
1491 Þorgils Þorsteinsson og Guðrún Jónsdóttir VI 738
1495/1497 Ari Andrésson og Þórdís Gísladóttir VII 250-251
1498 Hallvarður Eiríksson og Þorgerður Jónsdóttir VII 406
1508/1512 Þorvarður lögmaður Erlendsson og Kristín Gottskálksdóttir VIII 230-232
1507/1520 Bjarni Andrésson og Guðrún Björnsdóttir (Guðnasonar) VIII 165-166
1525 Erlendur lögmaöur Þorvarðarson og Þórunn Sturludóttir IX 288-289
1528 Lazarus Mattheusson og Guðrún Ólafsdóttir IX 476-477
1538 Hallur Ólafsson og Cecelia Guðmundsdóttir XII 88
1545 Ólafur Árnason og Ragnhildur Þorsteinsdóttir XI 414-415
1548/1557 Pétur Vigfússon og Þóra Jónsdóttir XII 119-120
1562/1563 Jón Þórðarson og Ingveldur Jónsdóttir XIV 18-19
32 SAQHIR