Sagnir


Sagnir - 01.04.1986, Page 36

Sagnir - 01.04.1986, Page 36
Helmingarfélög hjóna Jón danur Björnsson, launsonur Björns Þorleifssonar hiröstjóra,13 og Kristín Sumarliöadóttir lögðu meö sér helmingarfélag. Móöir Kristínar var Ólöf Aradóttir, systir Guömundar Ara- sonar, sem minnst var á hér framar.14 Faðir hennar var sonur Lofts ríka Guttormssonar. Annar sonur Lofts ríka var Eiríkur á Grund í Eyjafirði.15 Hann var afi Sveins Sumarliðasonar sem stofnaði til helmingarfélags viö Guöriöi Finnbogadóttur lögmanns. Vegna arfs Sveins eftir afa sinn Eirík, stóð Finnbogi tengdafaðir hans í miklum málaferlum. Hann sagöi þær eigur vera fallnar sér í arf eftir Guö- ríði, því hún hafi fengið þær eftir Guö- rúnu dóttur sína, sem erft haföi „allan helminginn" eftir föður sinn, Svein Sumarliðason.16 Kristínu dóttur sína gifti Finnbogi líka með helmingarfé- lagi. Fleiri dæmi um ættartengsl er aö finna í bréfunum. Systurnar Guö- laugu og Þóru Ketilsdætur gifti faöir þeirra sem helmingarkonur árið 1402, og Þorvarður lögmaður Er- lendsson er faöir Erlendar lög- manns17 sem giftist Þórunni Sturlu- dóttur. Þegar hjón geröu með sér helming- arfélag á búskaparárunum (Tafla 2) var þaö oftast um allt fé þeirra, fengiö og ófengið, og sagði ekkert frekar um eignirnar. Eignaskiptingin kemur að- eins fram þegar helmingarfélagiö er gert um leið og kaupmálinn (Tafla 1), og er eignanna aö einhverju getið í 15 bréfum af þeim 20 sem þar eru.18 Um flesta þessa samninga má segja að séu eignirnar ekki taldar í hundr- uðum hundraöa, eru það tugir hundr- aða. Eitt hundrað hundraða samsvar- aði um sex meðaljörðum. Ríkidæmið er áberandi. Aðeins í tveimurtilvikum eru eignirnar litlar, og eru þau bréf frá miðri 16. öld. Ólafur Árnason og Ragnhildur Þorsteinsdóttir áttu sam- tals aðeins 15 hundruð þegar þau byrjuðu búskap, og Jón Þórðarson og Ingveldur Jónsdóttir sex hundruð. Ákveðinn hópur í þjóðfélaginu virð- ist því hafa notfært sér helmingarfé- lög. í þann hóp skipuðu sér ríkustu og voldugustu ættir landsins, og sú spurning hlýtur að vakna hvers vegna þær velja helmingarfélögin. Hafa höfðingjar frekar en aðrir haft ástæðu til að semja þannig um eignirnar? Skoðum hver munurinn var á helm- ingarfélögunum og öðrum formum hjúskapar og hvernig lagalega hliðin var. Ættin og erfingjarnir Nokkurt rót hefur verið á því hvernig gengið var frá félögum milli hjóna, og heimildirnar fáorðar. I aðfaraorðum að Reykholtsmáldaga, sem prentað- ur er í Fornbréfasafninu, segir að Snorri Sturluson og Hallveig Orms- dóttir hafi gert með sér helmingarfé- lag árið 1224. Er vísað í Sturlungu um þetta. Snorri og Hallveig gáfu eignir til Reykholtskirkju, en af mál- daganum sjálfum sést ekkert um helmingarfélagið.19 í íslendingasögu Sturlungu er félagsstofnun Snorra og Hallveigar tvisvar nefnd, í fyrra skipt- ið sem „félag“ en í hið seinna sem „helmingarfélag".20 Aðgreiningin er óljós og ekkert segir um hvernig þau hafa skipt eignunum. Svo er ekki heldur í þau önnur tvö skipti sem „félag“ er nefnt í Sturlungu,21 Einhver helmingarsamningur hefur verið milli Hallberu, dóttur Snorra Sturlusonar, og Kolbeins unga. Það má ráða af deilum sem spruttu upp um arfinn eftir hana. Snorri krafðist helmingarskipta bæði á fé og goðorð- um. Fór svo að lokum að þeim samd- ist og Snorri fékk mest af því sem hann hafði farið fram á.22 Féráns- dómur frá árinu 1250, sem er í Svín- fellingasögu í Sturlungusafninu, gef- ur einnig vísbendingu um helmingar- félag. Sæmundur Ormsson fór fram á uppskipti á búi Ögmundar Helgason- ar og Steinunnar Jónsdóttur á Kirkju- bæ. Þar var fyrst tekin frá staðareign- in, þá helmingurinn sem Steinunni til- heyrði og þar með það fé sem Ög- mundur hafði gefið henni. Það sem eftir var tilheyrði Ögmundi.23 Þetta eru fá dæmi, en eiga það sammerkt að snerta auðuga Islendinga á þess- um tíma. Helmingarskipti af öllum eignum hjóna eru í samræmi við þá eignaskiptingu sem síðar varð lögleg með helmingarfélögunum og tíðkað- ist að einhverju marki. Elstu helming- arfélagssamningarnir í Fornbréfa- safninu eru frá árinu 1402, eins ög sjá má af töflunni hér að framan, og elsta vísbendingin um að hjón hafi haft með sér helmingarfélag er frá 1393.24 Sigurður Líndal segir að í Grágás sé bæði gert ráð fyrir að hjón geti stofnað félag og átt séreignir í hjóna- bandinu, en hið síðarnefnda hafi ver- ið algengara. Þó nefnir hann líka að helmingarfélög séu oft nefnd í íslend- ingasögunum.25 Ekki er mögulegt að segja til um útbreiðslu þeirra á þjóð- veldistímanum nema að leita fanga víðar í heimildum þess tíma. Af hin- um eldri lögum Norðmanna má ráða að helmingarfélög hafi þekkst í Aust- ur-Noregi. Einnig hefur verið bent á að ekkjur þar í landi hafi getað krafist helmingarskipta á búi, ef helmingar- félag hafi verið með hjónunum.26 í Jónsbók, sem lögtekin var hér á landi árið 1281, eru skýr ákvæði um hjóna- félögin. Þau eru sambærileg þeim sem tóku gildi í Noregi um svipað leyti með lögbók Magnúsar lagabæt- is.27 Þetta form félaga milli hjóna seg- ir Randi Andersen að hafi orðið ríkj- andi í Noregi. Réttarbætur Hákonar konungs í upphafi 14. aldar sýni að mótstaða hafi verið gegn hjónafé- lögunum. Hún hafi ekki beinst gegn þeim sem slíkum, heldur því að erf- ingjarnir hafi ekki getað haft neitt að segja um eignirnar yrðu hjónin barn- laus. Andróðurinn hafi dugað skammt, en markmið hjónafélaganna hafi fyrst og fremst verið að tryggja karlmann- inum yfirráðarétt yfir eignum konu sinnar.28 Hákon konungur háleggur sendi íslendingum líka réttarbætur við Jónsbók í upphafi 14. aldar. Þar er fyrst minnst á helmingarfélögin í lög- um hér á landi. Andstætt því sem var í Noregi, virðist sem þessi skipan hafi náð einhverri fótfestu hér á landi. Ákvæði um helmingarfélög koma þrisvar fyrir; árið 1305, 1306 og 1314. í réttarbót frá 1305 segir svo: Líkar oss og vel að frændur geri kaupmála sín á milli og helmingar- félag eftir því sem þeim semur; en ef hjón gera sín á meðal, standi eft- ir því sem lögbók vottar.29 Kvennagiftingar. Faðir og móðir skulu róða giflingum dœtra sinna, segir í upp- hafsorðum kaflans um kuennagiftingar í Jónsbók. Ef þeirra naut ekki uið. kom til kasta nónustu föður- og móðurfrœnda að róðstafa gjaforðinu. Ef brœður uoru nón- astir, réðu þeir giftingu sgstra sinna. Hand- ritið er frú fyrri hluta 16. aldar. 34 SAQHIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.