Sagnir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sagnir - 01.04.1986, Qupperneq 48

Sagnir - 01.04.1986, Qupperneq 48
Dyggðaspegill þær að snúa sér örlítið undan ef þær geta, eða halda „nasaklútnum" fyrir andlitinu. Þessum kafla lýkur með áminningu um það sem ber að varast, en það er illur munnsöfnuður; slæmar samræður; ótuktugur dans og vikivaki; dreissugur klæðabúnað- ur; Amors óhæverskar sþurningar; æfintýr; kerskni og lýðgaman. Þvi að Kristur sagði: „Ef hægra auga þitt hneykslar þig, þá slít það út og snara því frá þér. . .“ Jafnvel í mannasiða- kaflanum var hægt að finna röksemd- ir úr Gamla Testamentinu, og hér er vísað til hegðunar Rebekku og fleiri góðra kvenna. Þriðja dyggðin er hreinlæti, en orð- ið hefur hér aðra merkingu en nú á tímum fjölbreytilegustu sáputegunda. Hreinlætið sem hér er lýst mundi kall- ast snyrtimennska í dag. Hreinlæti Dyggðaspegils er „þegar ein píka heldur sig hreinlátlega með hæ- versku og tukt, með siðsömum klæðabúnaði og tilbærilegu skarti." Hún á að forðast dramb og hroka, subbuskap og vanrækslu. Spegillinn gefur nokkrar reglur um klæðaburð. Það að prýða sig og skrýða, þvo sér og halda sér hreinni er ekki nein synd, heldur útvortis dyggð. Þó eiga jómfrúr að klæða sig „eftir sínum burðurn", svo að greinarmunur sé gerður milli ætta og slektis og enginn verði hneykslaður. í klæðnaði og skarti eiga jómfrúr að „haga sér eftir tíðinni", eins og sá vísi Salómon sagði: „Allir hlutir hafa sinn tírna." Jómfrúrnar eiga þó ekki að þrýða sig á hverjum degi. Á sunnudögum eiga þær að fara í skart, svo þær séu hreinlegar þegar þær koma til kirkj- unnar. En á rúmhelgum dögum þurfa þær ekki að prýða sig, því að við vinnu og erfiði verður prýði ekki við komið. Þær mega líka berast á þegar þær eru í brúðkaupum og „öðrum ær- legum gestaboðum", eða ef feður þeirra óska þess. Þegar sorgin sækir þær heim og þær missa foreldra sína eða ástvini, væri það fávíslegt og jafnframt tákn miskunnarleysis að klæðast skarti. Slíkt hjarta væri ei hlýðið við guð, því hann býður mönn- um að gráta með grátendum. Jómfrúr eiga að klæða sig eftir þeirra „föður- lands ærlegri vísu og siðvenju", en eiga ekki að taka „nýjar nótur“ eftir út- lendu fólki. Síðasta reglan er um hóf- semi. Meyjarnar eiga að forðast of mikið skart „svo að menn megi merkja að í einum fagurt prýddum lík- ama sé einnig það innra skartið hjartans", sem er guðsótti og kristi- legt lítillæti. Of mikið skart elur á drambsemi. Rómverjar skömmtuðu meyjum sínum skartið og Spartverjar leyfðu aðeins opinberum skækjum að berast á til óhófs og „gjörðu þetta óhóf viðurstyggilegt fyrir sínum kvinn- um og dætrum og vöndu þær svo til hófsemi og máta.“ Eftir að þessar reglur um klæðaburð hafa verið tald- ar segir spegillinn að frómu og guð- hræddu fólki geðjist vel að jómfrúm sem haldi reglurnar. Fjórða dyggðin er hófsemi og sparneytni. Bænir og dagleg vinna eiga ekki aö hindrast af „líkamans óhófi og vellystingum", en þó á að varast að vera svo hófsamur að það skaði heilsuna og hindri eðlilega hvíld. Ein Biblíutilvitnunin sem hér fylgir er sérlega hvöss: „Verið spar- neytnir og vakið því yðar mótstandari djöfullinn gengur um kring sem grenj- andi Ijón og leitar að þeim sem hann kunni að svelgja." Þetta var vinsæl til- vitnun, en hún var notuð sem yfirskrift bænabókar Anders Jenssön Mari- ager sem gefin var út á Hólum 1606.8 Önnur tilvitnun sem stendur fyrir sínu enn í dag, þótt djöfullinn sé hættur að ganga um kring, hljóðar svo: „Sá sem hóflega étur lifir þess lengur." Síðan segir að kjötát og víndrykkja hafi ekki tíðkast á jörðinni fyrr en eftir Nóaflóð- ið og einmitt þess vegna hafi fólk þá náð háum aldri. Þó segir að það sé ekki synd fyrir guði að drekka einn víndrykk, en hófsins skuli jómfrúr gæta. Fimmta dyggðin í þessum flokki er sparsemi. Sparsemi er það „að kunna að nægjast með það sem guð gefur." Jómfrúr þurfa að umbera fá- tækt og annan skaða og þær eiga að fara sparlega með það sem þær hafa. Þær eiga að láta sér það nægja sem foreldrar þeirra geta veitt þeim af mat, drykk, klæðum og skarti, í stað’þess að „brekast eftir öllu því sem þær sjá eður heyra“. Jómfrúr eiga að venja sig við að líða skort, því að þá þola þær slíkt mótlæti betur ef þær missa foreldra sína eða hafa lítið viðurværi í ellinni. Kristilegt hugarfar Þrjú blóm úr dyggðakransinum teljast til þessa flokks, en það eru miskunn- semi, mildi og örlæti, og trúfesta og einfeldni. Miskunnsemi er „þegar ein mann- eskja lætur sér til hjarta ganga ánauð og mótgang þeirra frómu og guð- hræddu, hefur hjartanlega með- aumkvun og hugsar um ráð og meðul hvernig þeim megi hjálpaö verða." Hér segir að ekki þurfi að knýja jóm- frúr til miskunnsemi með orðum og áminningum, þar sem kvenfólk sé af náttúrunni „hneigt til miskunnar". Mildi og örlæti eiga jómfrúr að venja sig við strax í föðurhúsum. Þótt þær hafi ekki eigur til ráðstöfunar, skulu þær sýna fátæklingum og mun- aðarlausum börnum gæsku. Þær geta safnað afgangsmolum sem ann- ars ónýtast kynnu og þegar þær síðar hafa eignir milli handanna geta þær sýnt gjafmildi. Jómfrúr eiga að vera trúfastar og einfaldar. Þær eiga að láta í Ijósi meiningu sína og vera hreinsinnaðar; láta sér falla það sem aðrir gera og segja; líta á orð og gjörðir annarra með hlýhug og hafa ekki illan grun um annað fólk nema þær neyðist til þess. Þær eiga að unna því góða og gleðjast þegar vel gengur hjá öðrum. Þær eiga ekki að tala um þá hluti sem eru vafasamir, heldur forðast ósann- indi og það að hafa „óstöðugt orðatil- tæki sem hefðu þær tvær tungur". Siðgæði Martínus telur tvær dyggðir sem flokka má undir siðgæði, en þær eru skirlífi og heiðarleg blygðan. Jómfrúr sem tileinka sér heiðarlega blygðan óttast vont nafn og umtal og forðast opinberar syndir og glæpi „af ótta fyrir guðs reiði, vegna góðrar samvisku og líka sökum frómra manna.“ Konur eiga að blygðast sín fyrir líkama sinn. Hér segir að það hafi tíðkast hjá Rómverjum að for- eldrar hættu aö baða sig með börnum sínum þegar þau voru komin til „myndugra ára“. Mágurinn átti ekki að baða sig með föðurnum eða dóttir- in með frænda sínum. Annað dæmi lýsir því hvernig grísk meyja reyndi 46 SAQMIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.